Túrverkir / Tíðaþrautir
Flestar konur upplifa óþægindi eða verki einhvern tímann á ævinni í tengslum við blæðingar. Um eða yfir helmingur kvenna finnur reglulega fyrir túrverkjum og margar hverjar það slæmum að það hefur áhrif á daglegt líf þeirra í 1-3 daga í mánuði.
Verkirnir eru mismunandi, allt frá daufum þrautum í baki eða kviðarholi til mikilla sárra krampaverkja sem leiða um kviði aftur í bak og niður í læri. Sárum túrverkjum geta fylgt hægðatregða eða niðurgangur, ógleði, uppköst, svimi, yfirlið og einnig er algengt að á þessum tímabilum finni konur fyrir pirringi og andlegri vanlíðan.
Yfirleitt eru túrverkir eðlilegir í tengslum við blæðingar hjá heilbrigðum konum. En ef konur til dæmis finna fyrir miklum óvæntum breytingum á verkjum eða byrja að fá verki eftir að hafa verið verkjalausar, geta verið undirliggjandi orsakir sem valda því að ástæða er til að leita læknis til vonar og vara. Ástæður þeirra verkja geta stafað af legslímuflakki, sýkingum í eggjaleiðurum eða eggjastokkum, sléttvöðvahnútar og fleiri ástæðum.
Túrverkir stafa af vöðvasamdrætti í leginu og geta líkst fæðingarhríðum en ekki eins sárir. Samdrættirnir tengjast efnunum prostaglandín sem meðal annars taka þátt í að loka æðunum til að koma í veg fyrir miklar blæðingar þegar slímhimna legsins losnar í upphafi tíða. Einnig getur notkun á getnaðarvarnalykkju aukið túrverki sumra kvenna og sumar konur finna fyrir auknum verkjum ef þær nota túrtappa.
Meðferðir við túrverkjum geta verið mjög mismunandi. Við venjulegum túrverkjum er ýmist hægt að nota sjálfshjálp, leita til óhefðbundinna meðferðaraðila eða fá aðstoð læknis.
Mælt er með hvíld og slökun en jafnframt léttum líkamsæfingum. Hitapoki á kviðinn getur hjálpað sumum konum og sama er að segja um létt nudd. Hægt er að fá ýmis verkjastillandi lyf án lyfseðils og hómópatalyf hafa reynst mörgum ómetanleg.
Hómópatía
Hómópatalyf eru valin sérstaklega fyrir hvern einstakling með hliðsjón af hvernig einkennin lýsa sér og hve miklir verkirnir eru. Í sumum tilfellum dugar ein tegund af remedíu, en í öðrum tilfellum er betra að útbúa sérstaka blöndu fyrir viðkomandi konu. Hér á eftir mun ég telja upp nokkrar gagnlegar remedíur, en það er aðeins brot að þeim remedíum sem í boði eru.
Cimicifuga: hefur mikil áhrif á krampa í legi þegar verkir lýsa sér einna helst eins og fæðingarhríðir. Oft er höfuðverkur á undan blæðingum.
Magnesia phos: er þegar verkir eru krampakenndir og einstaklingi líður betur við að liggja í hnipri, með heita bakstra, að halda þétt við magann og við hreyfingu.
Sepia: getur verið góð við krampaverkjum sem eru eins þrýstingur sé mikill niður í grind. Þessu fylgir oft mikill pirringur og jafnvel lystarleysi.
Chamomilla: þegar krampaverkir eru miklir, jafnvel samhliða eirðarleysi og geðvonsku.
Belladonna: verkirnir eru verri á undan blæðingum og eru verri við að leggjast útaf. Húðin getur verið heit og rjóð.
Pulsatilla: þegar blæðingar eru litlar en þeim fylgir ógleði eða uppköst. Konan mjög oft grátgjörn.
Nitric Acid: ef verkir eru miklir með stöðugri þörf fyrir þvaglosun.
Borax: ef ljós útferð er í nokkra daga á undan blæðingum. Þrýstingsverkir niður á við. Oft fylgir ógleði og suð fyrir eyrum