Sinadráttur
Sinadráttur er sársaukafullur samdráttur í einum vöðva eða nokkrum samliggjandi vöðvum. Algengast er að sinadráttur verði í kálfunum og einnig er algengt að fá sinadrátt í iljar, tær og læri. Sumir fá jafnvel sinadrátt í kviðvöðva, hendur eða í hvaða vöðva líkamans sem er. Sinadráttur getur komið fyrir hjá fólki á öllum aldri en eldra fólk finnur gjarnan meira fyrir þessum kvillum.
Sinadráttur er algengastur í svefni við að liggja lengi í sömu stellingu og einnig hjá eldra fólki sem hreyfir sig lítið. Einnig er það algengt vegna mikilla átaka, einhæfrar hreyfinga í langan tíma eða eftir meiðsli. Vel þekkt er þegar íþróttamenn reyna mikið á sig eða göngufólk eftir lengri göngur. Algengt er að fá sinadrátt í hendur eftir langvarandi skriftir (skrifkrampa) eða að beita einhverjum áhöldum í langan tíma. Við einhæfar hreyfingar í langan tíma getur sinadráttur komið fram nánast hvar sem er í líkamanum. Ef sinadráttur er algengari að nóttu til er hann yfirleitt meinlaus og leiðir sjaldan til skemmda á vöðvum og enn sjaldnar á sinum.
Orsakir sinadráttar geta verið af ýmsum toga. Til dæmis er einn algengasti orsakavaldurinn skortur á magnesíum eða ójafnvægi á kalki og magnesíum í líkamanum. Vökvatap getur einnig aukið hættu á sinadrætti og því nauðsynlegt að forðast vökvatap. Einnig getur langvarandi hreyfingarleysi aukið hættu á sinadrætti eins og kyrrsetufólk og eldra fólk. Blóðleysi, langvarandi uppköst, lélegt blóðstreymi, vefjagigt, liðagigt, kransæðastífla, ofvirkur skjaldkirtill, óhófleg svitnun, og ýmislegt fleira getur einnig stuðlað að sinadrætti.
Lyf gegn háum blóðþrýstingi eða hjartasjúkdómum sem hafa þvagdrífandi áhrif eða önnur þvagdrífandi lyf valda ójafnvægi á söltum líkamans sem síðan valda vöðvakrampa. Samhliða þessum lyfjum er nauðsynlegt að taka kalíum þar sem samhliða þvagdrífandi lyfjum tapast kalíum auðveldlega úr líkamanum og valdið ójafnvægi á steinefnabirgðum hans. Svo er um ýmis önnur lyf.
Sjálfshjálp
Yfirleitt er besta ráðið við sinadrætti að teygja varlega en ákveðið á viðkomandi vöðva. Einnig er gott að spenna vöðvana
sem eru á móti þeim vöðvum sem sinadrátturinn er í eins og ef sinadráttur er í kálfa þá er gott að spenna fótinn upp á við þar til sinadrátturinn dvínar.
Mikilvægt er að hreyfa vöðvana reglulega. Ávallt skal gera teygjuæfingar fyrir og eftir áreynslu. Til eru sérstakar olíu sem gott er að nudda vöðvana með eins og til dæmis hreinni jómfrúar ólífuolíu eða góðum slakandi olíum.
Bananar geta hjálpað mikið þar sem þeir eru kalíumríkir, en sinadráttur getur verið vegna skorts á söltum (s.s. NaCl, KCL, CaCl). Regluleg vatnsdrykkja hreinsar burt eiturefni sem vilja safnast fyrir í vöðvunum og væri gott að drekka vatnsglas á um þriggja tíma fresti.
Kalk og magnesíum eru mikilvægustu steinefnin fyrir fólk, sem fær sinadrætti og fæst þetta saman í blöndu þar sem magnið er í réttu hlutfalli á milli kalks og magnesíum. Hlutfallið er yfirleitt í hlutföllunum 2 af kalki eða 1500 mg á móti 1 af magnesíum eða 750 mg. Magnesíum Citrat er talið mjög gott.
Truflanir á blóðsöltum geta sem sagt stuðlað að sinadrætti og valdið krömpum. Meðal þeirra er kalíum sem er gott til að viðhalda réttu jafnvægi á efnaskiptum steinefna í líkamanum og er bráðnauðsynlegt ef einstaklingur er á þvagdrífandi lyfjum. Einnig má nefna natríum sem hefur áhrif á vökvajafnvægi líkamans.
Í miklum hita þegar fólk tapar vökva með svita skiptir miklu að bæta vökvatapið upp, ekki bara með vatni heldur líka söltum. Gott að drekka orkudrykki, ölkelduvatn, blandaða ávaxtasafa eða gosdrykkir.
D-vítamín er nauðsynlegt fyrir líkamann til að geta nýtt kalk að fullu og er lýsi til dæmis mjög góður D-vítamíngjafi.
E-vítamín er gott fyrir æðakerfið og getur verið gagnlegt vegna lélegs blóðstreymis og svo er einnig talið varðandi C-vítamín. Góður skammtur af B-fjölvítamíni ásamt C-vítamíni getur mögulega hjálpað einhverjum.
Gott er að borða magnesíumríka fæðu. Þar á meðal eru flestar algengar hnetutegundir, möndlur, avókadó, þurrkaðar apríkósur, maís, rúgur, linsubaunir, hafragrjón, sesamfræ, hveitikím, hveitiklíð, grænt grænmeti, bananar og sölur. Alfalfa, ölger og þari fást í bætiefnaformi.
Ef sinadráttur er algengari að nóttu til er gott að fara í heitt bað fyrir svefninn og þá gjarnan með slakandi olíum út í. Ef sinadrátturinn kemur frekar á daginn þá gæti verið æskilegt að leita læknis þar sem hann gæti verið fylgikvilli einhvers sjúkdóms. Eins ef sinadráttur er viðvarandi vandamál getur verið nauðsynlegt að fá utanaðkomandi aðstoð.
Hómópatía
Hómópatía er einstaklega mild og aukaverkanalaus aðstoð gegn sinadrætti. Hómópatalyf virka yfirleitt fljótt og þau má taka svo oft sem þörf krefur. Þau geta hjálpað fólki á hvaða aldri sem er allt frá börnum fram á efri ár. Margar remedíur (hómópatalyf) geta komið til greina og þær valdar með hliðsjón af staðsetningu og einkennum vöðvakrampanna.
Verða hér nefnd nokkur dæmi:
Calcarea Carb; sinadráttur í kálfunum á nóttunni og þegar teygt er úr fótunum í rúminu.
Causticum; herpingur í vöðvum og sinum. Sinadráttur í kálfum, fótum, tám, iljum og hásin. Skrifkrampar.
Cimex; herpingur í sinum. Hásin, sinar í hnésbótum og við öll liðamót. Hefur tilhneigingu til að teygja á sinunum en því fylgja oft verkir. Verkir í liðamótum eins og sinar séu of stuttar.
Colocynthis; sinadráttur og herpingur í vöðvum. Vöðvar útlima, liðamótum, í mjöðmum sem leiðir niður í hné. Magavöðvar, kviðarholi og er þá betra að hnipra sig saman.
Cuprum Metalicum: sárir krampar sem byrja oft í fingrum, tám og kálfum og geta leitt um allan líkamann. Eins og vöðvar séu hnýttir, betra að rétta úr fótleggjum og teygja á iljum. Krampar í brjóstholi og kviðarholi. Börn geta blánað í framan vegna verkja.
Graphitis; sinadráttur í tám. Einstaklingar sem eiga við húðvandamál að stríða.
Lycopodium; krampar í kálfum og tám. Verra síðdegis á eftirmiðdögum. Einstaklingar með lélega meltingu og lítið sjálfstraust.
Magnesia Phosphorica; vöðvakrampar og stirðleiki. Krampar í kviðarholi og er betra að beygja sig saman. Krampa í kálfum, höndum og fingrum. Sinadráttur eftir mikla áreynslu á vöðva og skrifkrampi.
Secale Cornutum; krampar í kálfum, höndum og fótum. Einstaklingar sem eru oft hand og fótkaldir.
Hefðbundnar meðferðir.
Ef sinadráttur er viðvarandi eða til mikilla vandræða án þess að nokkuð annað geti hjálpað þá kemur til greina að nota svefnlyf af vissri gerð eða kínin. Kínin var fyrst uppgötvað sem fyrsta malaríulyfið sem vitað er um og hefur verið notað sem slíkt í meira en 350 ár. Kínin dregur úr áhrifum taugaboða til beinagrindarvöðva og verkar þess vegna sem vöðvaslakandi. Það hefur því verið notað til margra ára til að draga úr mikilli spennu í vöðvum og þar á meðal verið til að fyrirbyggja sinadrátt í fótum yfir nóttina.
Actavis framleiddi kínin en af einhverjum ástæðum var það afskráð 1. júlí 2010. Aftur á móti virðist enn vera á lyfjaskrá Quinine Sulphate Actavis sem er ein tegund af kínin. Áhrifin eru á vöðvana og virkar innan 3 klst og allt að 4 vikur geta liðið þar til árangur næst við sinadrætti.
Kínin var ráðlagt í einum skammt að kvöldi og rannsóknir á gagnsemi þess eru mjög misvísandi. Nýleg samantekt á nokkrum litlum rannsóknum sýndi að kínin fækkaði köstum, en dró ekki úr alvarleik eða lengd hvers kasts.
Kínin er mjög hættulegt í ofskammti. Það er alls ekki saklaus lyf og skyldi aðeins tekið í skamman tíma í einu. Kínin er náskylt kínídín sem notað er við hjartsláttartruflunum en bæði lyfin geta valdið hjartsláttartruflunum og hefur valdið erfiðum aukaverkunum hjá þeim sem hafa verið á hjartalyfjum. Einnig getur kínin valdið verulegri hækkun á blóðþéttni digoxín. Önnur hættuleg aukaverkun er blóðflögufæð með marblettum og fleiri hættulegum einkennum sem tengd hafa verið heilablóðfalli. Alls ekki má gefa kínin á meðgöngu.
Annars er æskilegt að leita nánari upplýsinga hjá lækni.