Bjúgur
Bjúgur, bólgur eða þroti verður vegna óeðlilegrar uppsöfnunar vökva milli fruma í líkamanum í stað þess að haldast í æðakerfinu. Hann getur verið staðbundinn vegna meiðsla eða bólgu, en hann getur líka verið um allan líkamann. Algengast er að hann myndist vegna aukins þrýsting í æðum þegar eins og þegar blóðrennsli er hægara í bláæðum en slagæðum og við það eykst gegndræpi í æðaveggjunum.
Bjúgur er ekki sjúkdómur heldur einkenni einhvers kvilla eða ójafnvægis í líkamanum. Bjúgurinn getur verið staðbundinn eða jafnvel í öllum líkamanum. Hann getur verið vægur og meinlaus, en einnig getur hann verið lífshættulegur. Bjúgur ætti að minnka við hvíld, en ef svo er ekki er nauðsynlegt að leita læknis. Nauðsynlegt er að greina orsök þessarar vökvasöfnunar til þess að hægt sé að vinna á raunverulegum vanda í stað þess að einbeita sér eingöngu að afleiðingunum.
Bjúgur getur verið af ýmsum ástæðum bæði andlegum og líkamlegum. Stress og álag getur til dæmis valdið bólgum í líkamanum með þrota kringum augun, bólgna ökkla eða annarsstaðar í líkamanum. Einnig getur mikil saltnotkun, mikið kryddaður matur, ónóg vökvainntaka, bjórdrykkja, unnar kjötvörur og rangt mataræði aukið á vökvasöfnun. Einnig getur bjúgur verið fylgikvilli offitu og ýmissa sjúkdóma og má þar nefna háan blóðþrýsting og hjartasjúkdóma. Ofþjálfun, langstöður og kyrrsetur eru allt viðurkenndir og þekktir bjúgvaldar. Fatnaður sem þrengir að líkamanum getur valdið bjúg eins og sokkateygjur og fleira. Þetta eru algeng einkenni á meðgöngu og einnig samhliða tíðareinkennum. Ýmis lyf geta verið bjúgvaldandi.
Bjúgur á meðgöngu getur verið mismikill milli einstaklinga og því nauðsynlegt að fylgst sé með þyngdaraukningu, blóðþrýstingi og eggjahvítu í þvagi og að konan sé meðvituð um ástand sitt.
Æskilegt er að ef einstaklingur er haldinn einhverjum sjúkdómi eða er á lyfjum að hafa samráð við lækni áður er notuð eru vökvalosandi efni. Ef einstaklingur notar þvagræsilyf er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir að samhliða þeim þarf oft að taka inn sérstakar forðatöflur þar sem samhliða vökvalosun þá losnar um ýmis efni sem eru nauðsynleg líkamanum og þarf þá að bæta upp þá skerðingu.
Gott er að drekka vel af hreinu vatni, drekka eplaedik og borða próteinríka fæðu. Oft á tíðum má drekka te af vökvalosandi jurtum eins og klóelftingu, brenninetlu, gullhrísi, birkilaufi og túnfífli. Hallast skal heldur að saltskertu mataræði og svo er engiferrót talin vera vatnslosandi. Engiferrótina skal rífa niður og setja 2 teskeiðar í 1 lítra af vetni og setja 3-4 sítrónusneiðar út í, látið standa í kæliskáp og drukkið yfir daginn.
Reglubundin hreyfing er mjög mikilvæg til þess að sogæðakerfið geti unnið sem skildi, en það gegnir mikilvægu hlutverki við að ná vökva úr vefjum líkamans.
Hómópatía
Hér að neðan mun ég nefna nokkrar af fjölmörgum remedíum sem hafa reynst vel vegna bjúgsöfnunar. Heillavænlegast er þó að leita til hómópata til þess að velja bestu remedíuna og rétta styrkleikann í hvert sinn.
Apis: nýtist vel við bólgum bæði innvortis sem og útvortis. Bólga eftir meiðsli. Reynist oft vel ef bólga stafar af ofnæmisviðbrögðum, ef þroti er í útbrotum. Hjálpar oft ef um er að ræða bólgur í andliti, undir augunum, í húð, útlimum og liðamótum handa og fóta. Hún er oft góð ef orsökin er að nýrun starfa ekki alveg sem skyldi, bjúgur á meðgöngu eða ef eggjahvíta er í þvagi.
Calcarea carbonica: ef bjúgur leggst á neðri útlimi, sérstaklega í kringum hnén en einnig við vökvasöfnun í andliti. Einkenni versna við kyrrsetu. Einstaklingar sem eiga við offituvandamál, þreytast auðveldlega og líður verr við áreynslu.
Ferrum metallicum: ef einstaklingur hefur misst mikinn líkamsvökva eins og eftir mikinn niðurgang, að svitna mikið eða blóðmissi getur bjúgur safnast á útlimi. Einkenni lagast oft við rólega hreyfingu.
Graphites: vinnur vel ef bjúgur safnast á neðri útlimi fólks sem er viðkvæmt fyrir húðvandamálum og eiga tilhneigingu til að fá sprungur á bak við eyru eða á fingurgóma.
Kali carbonicum: ef bólgur eru eins og pokar yfir augunum. Viðkvæmni á iljum með bjúgsöfnun á neðri útlimum en þó stundum aðeins á öðrum fæti í einu. Hæg hreyfing dregur oft úr bólgum. Góð remedía fyrir eldra fólk
Ledum: góð ef að iljar og ökklar eru bólgnir, til dæmis við tognun og þá samhliða Apis. Kaldir bakstrar geta hjálpað til við að draga úr þrota.
Lycopodium: bjúgur samhliða doða og þyngslum í útlimum. Bjúgmundun í andliti og á fótum. Einstaklingur á við meltingarvandamál og er uppþaninn. Líður verr síðdegis og á kvöldin.
Natrum muriaticum: styður vökvajafnvægi líkamans. Hjálpar ef bjúgur er vegna ofnæmis eða eftir að hafa verið í mikilli sól. Þroti umhverfis augu vegna ofnæmis. Tilfinningalega lokaðir einstaklingar með löngun í salt.
Berberis: þessi remedía er góð til að styrkja nýrun og þannig örva líkamann við losun umframvökva.