Tannréttingar og tannviðgerðir.
Eitt af því sem flestir hafa kynnst eru óþægindi eða verkir hjá tannlækni og nokkrir eiga einnig við tannlæknakvíða. En þá eru tannréttingar ekki síður erfiðar og fyrst á eftir uppherslu geta verkir í gómum verið skelfilegir. Tennurnar eru togaðar fram eða til baka í gómnum og það getur valdið verkjum í kjálkum og sárum taugaverkjum.
Hómópatían getur dregið ótrúlega úr þessari vanlíðan og því leitt hve fáir vita af þessari lausn sem getur hjálpað mörgum til að ganga léttar í gegn um þetta tímabil.
Vegna tannréttinga:
Gott er að taka blöndu af:
Arnica montana: gómar sárir og bólgnir og tognun á tannrótum.
Hypericum perforatum: dregur úr taugaverkjum í kjálkum og tannrótum.
Hecla lava: dregur úr verkjum og bólgu. Flýtir fyrir aðlögun höfuðbeina.
Bryonia: verkir í gómum og tannrótum. Eins og tennur séu lausar.
Staphisagria: rífandi tannrótarverkir.
Ruta: getur flýtt fyrir aðlögun góms og tanna á ný.
Calendula officinalis: má bæta við ef særindi eru í tannholdi.
Þessi blanda þarf að vera í pótensíu 15m og skal taka hana 3 sinnum á síðasta hálftíma fyrir uppherslu og síðan má taka hana samkvæmt þörfum allt að 10 mín millibili þar til líðanin er betri. Þessu fylgja engar aukaverkanir en líðanin getur orðið allt önnur.
Vegna tannviðgerða:
Fyrir tannviðgerð á 10 mín fresti síðustu 60 mín fyrir:
Arnica montana, Hypericum perforatum og Staphisagria blanda í pótensíu 15m.
Saman við þetta er bætt Aconitum napellus ef einstaklingur þjáist af tannlæknakvíða.
Eftir tannviðgerð:
Phosphorus í 200c er notuð til að flýta fyrir að einstaklingur jafni sig eftir deyfingu.
Einnig er gott að taka Arnica montana, Hypericum perforatum og Staphisagria; blöndu í pótensíu 15m samkvæmt þörfum ef verkir eru eftir viðgerð.