Olía fyrir andlit og líkama
Þegar verið er að telja upp allt sem slæmt er fyrir húðina ber manni einnig að benda á það sem gott er.
Auglýsingarnar frá húðvöruframleiðendum eru frábærar og samkvæmt þeim er ég hissa á hvað við eldumst. Hvað borgar maður svo fyrir þessi frábæru krem og hreinsivörur út úr snyrtivörubúðunum og oft með misjöfnum árangri.
Þessi draumaolía nýtist vel til að hreinsa húðina, sem næturkrem, rakakrem og til að næra húðina.
Sem hreinsiolía þarf ekki að varast að koma of nálægt augum og því sérlega góð til að hreinsa augnmálninguna án þess að finna fyrir óþægindum í augum. Ýmist má bera olíuna umhverfis augun og þvo síðan af með vatni, eða setja 3 dropa af olíunni í rakan bómullarpúða og strjúka burtu augnmálninguna. Að hreinsa allt andlitið, hvort sem er andlitsfarða eða bara venjuleg kvöldhreinsum, er gott að bera olíuna vel á andlitið og skola vel með vatni á eftir.
Sem næturnæringu fyrir húðina er gott eftir að hafa hreinsað húðina að bera sömu olíuna á andlitið og nudda hana létt inn í húðina. Hún gengur vel inn í húðina þannig að þó notað sé vel af henni þá verður húðin bara mjúk með vellíðan að morgni.
Sem dagkrem eða rakakrem er olían borin þunnt á húðina og gengur hún auðveldlega inn í húðin á stuttri stundu.
Uppskriftin:
Til helminga Jojobaolía og lífræn virgin Ólífuolía.
Ef húðin er mjög slæm má blanda saman við þetta örlitlu af E-vítamíni, Calenduluolíu eða hverju sem við höfum reynslu af að sé gott fyrir húðina okkar.