Skán í hársverði ungbarna
Skán í hársverði ungbarna er hvítt, gulleitt eða gulbrúnt fitukennt hrúður. Það er algengast ofan á hvirfli en getur einnig verið á öðrum afmörkuðum blettum eða um allan hársvörðinn. Getur lyktað en ekki í öllum tilvikum. Skánin er yfirleitt vegna offramleiðslu olíu í fitukirtlum. Mörg þeirra barna sem hafa ungbarnaskán á höfði hafa einnig
nokkuð feita húð. Þetta er hættulaust ástand og varir yfirleitt ekki lengi en gæti þó í stöku tilvikum verið þrálátt allt til 2-3 ára aldurs. Þetta veldur barninu ekki óþægindum og verður minna áberandi eftir því sem meira hár vex á höfði barnsins. Mörg börn framleiða skán á fyrstu vikum ævinnar sem getur verið í þykkum lögum og jafnvel líkst vægu flösuexemi en flest komast út úr þessu ástandi á fyrstu mánuðum ævinnar.
Alls ekki reyna að kroppa skánina í burtu án þess að mýkja hana upp áður. Það gæti farið að blæða úr hársverðinum og getur þá myndast sýking.
Bera skal ríkulega af möndluolíu, ólífuolíu eða öðrum góðum olíum áður en barnið fer að sofa og lofa þessu að vera yfir nótt. Daginn eftir er notuð fíngerð greiða eða lúsakambur til að greiða skánina varlega úr. Varast skal að greiða þétt upp við hársvörðinn þannig að höfuðleðrið ertist ekki. Þá gæti myndast sýking í hársverðinum og valdið óþægindum. Að lokum skal skola hárið eða þvo það með mjög mildu sjampói og mun þá hrúðrið skolast að mestu leiti burtu. Þetta gæti þurft að endurtaka.
Gott er að gefa börnum:
Calcarea Carbonica ef lyktin af höfðinu er súr og barnið svitnar mikið á höfðinu.
Lycopodium fyrir börn sem eru grönn en sífellt með vindgang
Sulphur þegar börnunum klæjar í þurran hársvörðinn. Gæti verið sterk lykt af barninu sem gæti verið eirðarlaust.
Einnig er gott að bera Rock Rose blómadropa eða Rescue Remedy krem til að draga úr kláða eða öðrum einkennum á hársverði
Ef hársvörður er rauður bólginn eða eins og ef sýking virðist vera í hásverði skal leita aðstoðar. Einnig ef þetta ber ekki árangur eða ef þetta verður eins og exem sem breiðist út um andlitið eða kemur fram annars staðar á líkamanum skyldi leita læknis þar sem ekki virðist vera um venjulega barna höfuðskán að ræða.