Hægðatregða barna
Hægðir ungra barna:
Fyrst eftir fæðingu skilar barnið frá sér slímugum, svargrænum útskilnaði sem smám saman breytast í eðlilegar hægðir. Brjóstabörn hafa venjulega vatnskenndar sinnepsgular hægðir með sætum ilmi. Pelabörn hafa mótaðar, brúnleitar, lyktandi hægðir.
Mjög ung börn hafa oft hægðir. Sum hafa hægðir í hvert sinn sem þau nærast meðan önnur hafa ekki einu sinni hægðir daglega þar sem þau frásoga megnið af næringunni. En fljótlega myndar hvert barn sínar eigin venjur, hvenær það hefur hægðir.
Hægðatregða hjá barni fer ekki eftir hve oft barnið hefur hægðir, heldur hvort hægðirnar eru harðar og hvort þær valda erfiðleikum við að losa sig við þær. Algengt er að börn fái hægðatregðu þegar þau byrja að borða fasta fæðu.
Brjóstabörn fá yfirleitt aldrei hægðatregðu, en æskilegt að borða sjálf trefjaríka fæðu og drekka nóg vatn. Sum pelabörn geta verið viðkvæm fyrir mjólk eða mjólkurdufti sem getur valdið hægðatregðu. Sum börn sýna viðkvæmni gagnvart sojablöndum. Ekki skyldi nota sojavörur fyrir börn þar sem þær innihalda jurtaestrógen sem ekki er æskilegt að gefa neinu barni.
Sum börn þurfa meiri vökva en önnur og er þá gott að gefa þeim aukalega vatn og ef þau þarfnast þess taka þau yfirleitt vel við því.
Fæðuval:
Gott er að byrja með hverja fæðutegund fyrir sig þannig að hægt sé að gera sér grein fyrir hvaða fæða veldur erfiðleikunum. Þegar byrjað er að neyta sterkju þá er æskilegt að byrja á hrísgrjónum en ekki hveiti né heilhveiti þar sem glúteinið í hveiti eða heilhveiti getur hægt á meltingunni og valdið hægðatregðu. Bananar eru afar vinsælir og þægilegt að stappa þá. Þeir þurfa að vera vel þroskaðir til þess að meltingarvegurinn nái auðveldlega að melta þá en óþroskaðir bananar valda iðulega hægðatregðu.
Mjólk getur verið mjög stemmandi og þá sérstaklega ef hún er soðin. Til að forðast hægðatregðu eru hér nokkur ráð. Gott að gefa sveskjusafa dagleg. Forðast hrísgrautana því þeir eru mjög stemmandi. Gott að setja 1 teskeið af hörfræarolíu út í grautinn eða setja daglega 1 teskeið af malt extrakt út í matinn eða þurrmjólkina. Gott er að drekka malt eða sveskjusafa.
Forðast skal brauð, kex og kökur úr hvítu hveiti og hafa skal í huga að í sumum tilfellum er heilhveiti engu betra. Gefa barninu grófar trefjar en passa þarf að það drekki nóg með því annars virka trefjarnar ekki eins og ætlast er til og geta jafnvel virkað stemmandi.
Bíða þar til eftir eins árs áður en farið er að gefa barninu egg þar sem það hefur neikvæð áhrif á þarmana.
Sjálfshjálp:
Ef börn fá hita skal reyna að fá þau til að drekka meiri vökva því annars getur vökvatap valdið hægðatregðu.
Gott er að nudda kviðinn mjúklega ef barnið á erfitt með að losa hægðir. Einnig er gott að bera Calendúlukrem umhverfis endaþarm ef barnið hefur tilhneigingu til að hafa fyrirferðarmiklar hægðir
Ekki er gott að þvinga börn á kopp eða klósett, heldur er betra að gefa því tíma til að aðlagast smám saman. Þvingun getur valdið togstreitu sem erfitt er að komast yfir.
Þegar börn hafa harðlífi getur það valdið miklum óþægindum að koma hægðum frá sér og börnin verða hrædd við að kúka. Þau halda í sér eins lengi og mögulegt er sem getur gert illt verra. Eina ráðið er oft að setja bleyjuna aftur á barnið sem fyrir rest laumast út í horn, sest á hækjur sér og kúkar í bleyjuna. Andleg togstreita eða vanlíðan getur einnig valdið því að þau halda í sér.
Gott er að hæla börnum í hvert sinn sem þau kúka í koppinn og hafa eitthvert umbunarkerfi til hvatningar. Ef barnið hefur fengið sprungur við endaþarminn er gott að bera á hann græðandi og mýkjandi krem.
Gott að hvetja barnið til að hreyfa sig eða fara með það í göngutúr, fótbolta, út að hjóla eða hvað eina sem það hefur gaman að. Það kemur hreyfingu á ristilinn.
Til þess að barnið drekki nóg er gott að gefa því fallegan vatnsbrúsa og setja í hann vatn, hreinan ávaxtasafa eða hvað sem þú telur að barnið vilji drekka. Leyfðu barninu síðan að ganga í brúsann eins og það vill sjálft.
Gott er að gefa acidophilus sem til er í tuggutöflum og fást í apótekum og heilsubúðum. Þær eru mjög góðar fyrir þarmaflóruna.
Ef hægðirnar vilja alls ekki skila sér þá gæti hjálpað að fara í hanska, setja vaselín á litla putta og stinga honum aðeins upp í rassinn. Gott að láta þau liggja á bakinu og hjóla með fótunum í stórum hreyfingum eða lyfta krepptum fótum þannig að hnén fari upp að brjósti.
Forðast skal:
Ef einstaklingur á tilhneigingu til að fá hægðatregðu skal forðast kex, brauð og kökur, sérstaklega úr hveiti, en margir þola heilhveitið engu betur.
Mjólkurmatur hefur stemmandi áhrif og þá sérstaklega hjá börnum.
Hrísgrjón, epli, bláberjasúpa, óþroskaðir bananar, ostur og egg geta myndað hægðatregðu.
Forðast skal stólpípur nema í algerri neyð, því þarmaveggir barna eru mjög þunnir og viðkvæmir og geta auðveldlega skaðast.
Einnig skal forðast hægðalyf nema í ýtrustu neyð.
Hómópatía:
Hómópatía hefur hjálpað mörgum einstaklingum varðandi meltingarvandamál, en það er þá í góðri samvinnu viðkomandi einstaklings og hómópatans.
Stundum virka ekki ofangreind ráð og getur orsökin oft verið stress af einhverjum toga. Þar sem taugakerfið stjórnar vöðvahreyfingum meltingarkerfisins getur álag eða önnur streita valdið truflun á eðlilegu ferli. Eins og hjá fullorðnu fólki geta börn einnig fengið hægðatregðu ef þau ferðast og fara í ókunnugt umhverfi.
Hómópatían lítur á einstaklinginn sem eina heild og tekur alla þætti með í mat á meðhöndlun.
Eftirfarandi remedíur eru aðeins örfáar tilgreindar af fjölda remedía sem miðast við hvernig hægðatregðan getur lýst sér. Þessar remedíur eru góðar bæði fyrir börn og fullorðna. Hægt er að kaupa þær í Skipholtsapóteki og heilsubúðum en þar fást Þær aðeins í styrkleika 30c.
Alumina: Einstaklingur er þreyttur og orkulaus. Þarmahreyfingar virðast hægar, hægðir lengi að skila sér gegnum meltingarveginn. Erfitt getur verið að losna við hægðir og jafnvel erfitt að losna við mjúkar hægðir. Hægðirnar eru venjulega harðar, þurrar og koma í kúlum eða kögglum. Endaþarmur getur verið þurr og aumur. Kartöflur geta haft stemmandi áhrif hjá þessum einstaklingum.
Bryonia: Stórar, harðar, þurrar hægðir sem erfitt er að þrýsta út. Tungan er oft með hvíta skán. Einstaklingur getur verið pirraður og vill vera í friði. Líður verr við minnstu hreyfingu. Ljósfælinn. Oft þyrstur og vill hafa drykkina kalda.
Calcarea Carb: Oft er súr lykt af þessum einstaklingum, svitanum og hægðunum. Einstaklingurinn er daufur og þróttlaus. Hann sækir í egg (frekar linsoðin), brauð, ís, sætindi og salt. Mjólk getur valdið hægðatregðu hjá þessum einstaklingum. Hægðir oft miklar og harðar, oft í kögglum eða eins og leirkenndar. Eftir hörðum kögglum getur komið eins og niðurgangur.
Causticum: Þörf fyrir hægðalosun án þess að geta losað um. Verkir. Hægðir geta verið mjúkar en þó erfitt að skila þeim frá sér.
Hepar sulph: Mjúkar hægðir sem erfitt er að skila frá sér ef barn hefur eyrnabólgu eða önnur veikindi.
Lycopodium: Hægðatregða þegar endaþarmsopið herpist saman og ekki hægt að losa hægðir. Erfitt að hafa hægðir á ferðalögum eða á ókunnum stað. Hægðir harðar, erfiðar og lítið í einu. Eymsli í endaþarmi.
Mag mur: Hægðatregða með litlum kúlum og oft þörf án árangurs.
Nat mur: ef barnið er undið andlegu álagi. Hægðir geta verið í litlum kúlum og tilfinningin að geta ekki klárað.
Nux vomica: Finnst alltaf vera þörf fyrir að kúka, og þrátt fyrir að fara á klósettið þá er eins og að geti ekki klárað. Hægðatregða myndast oft eftir að hafa verið á lyfjum, eftir að hafa verið undir andlegu álagi, eða jafnvel eftir ofát. Vont að láta fötin þrengja í mittið. Oft fylgir ógleði og jafnvel uppköst. Brjóstsviði, uppþemba, vindgangur og höfuðverkur geta fylgt ástandinu.
Opium: Þrálátar hægðir, harðar litlar kúlur og dökkar á litinn. Verkir í endaþarmi.
Silicea: Hægðir virðast vera að skila sér en fara aftur upp í endaþarminn. Hægðir geta verið í hörðum kögglum sem valda sviða og óþægindum í endaþarmi. Endaþarmur getur sprungið við átökin. Oft mjög erfitt að hafa hægðir og börn neita iðulega að kúka. Ef börn eru orðin hrædd við að hafa hægðir þarf oft að gefa þeim einhverja aðra remedíu samhliða sem getur slakað á hræðslunni.
Zinc met: Nýburar sem eru óöruggir, kippast til og eiga erfitt með að þroska reglulegar þarmahreyfingar.