Njálgur
Við veltum ekki mikið fyrir okkur hvað er að gerast í innyflum okkar og hvarflar ekki að okkur að þar geti búið um sig óvelkomin snýkjudýr fyrr en við greinumst sem hýslar.
Sem betur fer er ekki eins breið flóra hér á landi eins og víða erlendis. En stöku sinnum hafa ókunnar tegundir borist hingað til lands með ferðamönnum en ekki orðið landlægar. Aftur á móti eru nokkrar tegundir orma í dýrum hér við og á landi sem geta tekið sér bólfestu í mönnum. Samhliða fjölgun gæludýra og breytts mataræðis, er nauðsynlegt að sýna fyllsta hreinlæti.
Sá ormur sem er algengur í meltingarfærum fólks á Íslandi er njálgur (Enterobius vermicularis). Njálgur sýkir jafnt
fullorðna sem börn. Hafa þarf fyllsta hreinlæti og þvo sér um hendur strax og vaknar að morgni, fyrir hverja máltíðir og eftir hverja salernisferðir. Börn klóra sér í rassinn á nóttunni og þvo sér jafnvel ekki þegar þau vakna, en það er helsta leiðin til að viðhalda síendurtekinni smitun. Smitaðir einstaklingar mega ekki klóra sér, ættu ekki að ganga um berrassaðir og æskilegt að hafa daglega nærfataskipti. Gott að klippa vel neglur því það auðveldar hreinlæti. Þvo vel þá staði þar sem líklegast er að finna egg og hafa nærfataskipti daglega.
Einkenni geta verið kláði við endaþarmsop og þá helst á kvöldin eða nóttunni, lystarleysi, svefntruflanir, eirðarleysi eða erting í leggöngum. Best er að skoða endaþarmsopið þegar einkenni finnast og nota til þess vasaljós, en einnig er hægt að setja límband við endaþarminn þannig að eggin festist við það og auðveldar það staðfestingu smits.
Njálgur er þráðlaga, hvítleitur á litinn og kvendýrið er um 10mm að lengd en karldýrið um 3-4 mm. Þegar karlnjálgurinn hefur frjóvgað kvennjálginn, fer kvennjálgurinn að endaþarmsopi viðkomandi hýsils og kemur eggjunum þar fyrir til þess að þau berist út, en yfirleitt að því loknu drepst kvennjálgurinn.
Eggin festa sig við hendur einstaklinga og berast þannig upp í munn og niður í meltingarveg þar sem þau klekjast út mjög fljótt. Dýrin verða fullþroska í neðri hluta þarmanna á 2 til 6 vikum. Kvendýrin skríða út úr endaþarminum og verpa eggjum sínum í húðfellingar og festa þau þar með límkenndu efni en það gerist oftast að næturlagi. Límið sem þeir festa eggin með og hreyfing ormanna veldur síðan kláða. Kláðanum fylgir stundum roði og eymsli. Það er þekkt að eggin geti klakist út við endaþarmsop og ormarnir skríði aftur inn í endaþarminn þannig að ástandið viðhelst. Það getur einnig komið fyrir að njálgur komist upp í leggöng kvenna og valdi óþægindum. Smitaðir einstaklingar geta þó verið einkennalausir. Hann er yfirleitt ekki hættulegur en veldur óþægindum og ekki beint geðslegur.
Smitun verður á þann hátt að egg berast frá smituðum einstaklingum í munn annarra. . Eggin berast með fingrum, fötum, sængurfötum og leikföngum. Þau geta lifað í umhverfinu í allt að þrjár vikur við stofuhita. Þau geta líka svifið í loftinu og borist í öndunarfæri og með kyngingu flust niður í meltingarfæri manna þar sem eggin klekjast út. Greina má njálg með því að finna orma eða egg umhverfis endaþarm eða í hægðum.
Eins og sjá má er erfitt að losna við njálg og þegar leikskólabörn smitast aftur og aftur af njálg er stundum erfitt að eiga við
það þar sem smithætta er mikil í leikskólum. Til eru aðgengileg lyf við njálg en það verður að meðhöndla alla fjölskyldumeðlimi og oftar en einu sinni. Þvo þarf öll föt og rúmföt við 60° hita eða senda í efnalaug. Vegna þess hve smitleið er víðtæk er nauðsynlegt að hafa samband við leikskóla barnsins þar sem heildarþrif þurfa að fara fram á deildinni, meðhöndlun allra barnanna og fjölskyldna þeirra.
Lyfjameðferð ein og sér dugar ekki og hreinlæti er nauðsynlegur hluti meðferðarinnar. Tvennskonar lyf er hægt að fá á Íslandi en það er Vermox sem er lyfseðilsskylt og Vanquin sem hægt er að kaupa án lyfseðils. Vanquin er bæði hægt að fá í töfluformi og sem mixtúru. Það drepur njálginn en ekki eggin og er því nauðsynlegt að endurtaka meðferð 14 dögum síðar. Bæði lyfin geta valdið aukaverkunum, en þær eru mjög vægar. Vermox skyldi ekki gefa þunguðum konum né börnum yngri en tveggja ára. Kláði við endaþarm getur verið af öðrum ástæðum og er æskilegt að leita læknis til að fá greiningu á hvað veldur.
Hómópataráðleggingar.
Gott að setja vel af vaselíni í kringum endaþarm barnsins því ormar festast í því þegar þeir skríða út og komast þá ekki aftur inn. Auðveldar að þrífa þá í burtu.
Cina er ein helsta remedían vegna njálgs. Hún er einnig notuð með öðrum remedíum og þá í 200c. Börn verða pirruð, gnísta tönnum og verða óróleg í svefni. Þau get fengið magaverki og jafnvel kastað upp.
Með þessari remedíu er til dæmis hægt að nota Filix mas sem hefur áhrif ef barnið fær magakrampa eða kláða í nefi. Nat phos ef börn borða of mikinn sykur sem eykur ákjósanlegt ástand fyrir orma í meltingarvegi. Spigelia vegna kláða og pirrings í endaþarmi. Teucrium mar einnig vegna kláða í endaþarmi á nóttunni.
Ýmsar einstaklingsmiðaðar remedíur til viðbótar geta komið einnig gert gagn.