Remedíur

Remedíur er heiti sem notað er um hómópatalyf. Grunnefni sem eru notuð í hómópatíu eru rúmlega 5.000 talsins úr jurta, steina og dýraríkinu. Hvert efni hefur sína innihaldslýsingu á flestum þeim einkennum sem tengjast viðkomandi remedíu, bæði líkamlega og andlega og í hvaða tilgangi hún er notuð. Einkenni eru vísbending um það ójafnvægi sem dylst bakvið hver veikindi eða óþægindi hvort sem um er að ræða andlegt eða líkamlegt.
Grunnefnin eru útþynnt með ákveðnum aðferðum til að ná fram dýpri og mildari virkni. Kraftefling, eða að pótensera efnið, er framkvæmd með sérstakri aðferð þannig að efnin sem notuð eru í hómópatískar remedíur eru orðin að skaðlausum örefnum. Vegna hinnar miklu þynningar eru hómópatískir smáskammtar hættulausir, jafnvel fyrir ungabörn, ófrískar konur og mæður með börn á brjósti. Hún hentar fólki á öllum aldri og getur aðstoðað fólk við fjöldann allan af vandamálum.
Hómopatía lítur á mannveruna sem samþætta heildarmynd, þar sem bæði líkami og tilfinningar skipta miklu máli. Hver einstaklingur er ekki ósvipaður púsluspili þar sem hvert stykki skiptir máli. Þess vegna þarf að spyrja afar margvíslegra spurninga til að finna réttu mynd púsluspilsins. Geta t.d. 10 einstaklingar komið með svipaða sjúkdómslýsingu en allir farið út með mismunandi remedíur.
En geta svona mikið útþynnt efni haft áhrif?
Um þetta hafa risið háværar deilur meðal lækna og annarra fræðimanna þar sem hluti þeirra segir útilokað að remedíur hafi áhrif þar sem ekki sé unnt að mæla þær á tilraunastofu í efnafræði, meðan aðrir aðrir hafa orðið vitni að miklum árangri sjúklinga sinna.
Rétt er það að ef farið væri með remedíur og þær rannsakaðar á efnafræðistofu, þá fyndist ekki neitt nema sykur. En sem örlítið dæmi ef þú stendur við litla tjörn í stafalogni, getur þú séð spegilmynd fjalla, gróðurs og skýja næstum eins og um raunveruleika væri að ræða. Ef þú tekur stein og kastar í miðja tjörnina þá hverfur speglunin og ef þú setur höndina niður í vatnir þá getur þú jafnvel fundið hvernig litlu hringlaga bárurnar gæla við höndina.
Þetta er raunverulegt, þú sérð það, þú finnur það, en þú getur ekki farið með það á efnafræðistofu og mælt það.