• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Ákvörðun um að vera hamingjusamur

Skrifað 2010-02-01 · Andlegt

Ef þú sættir þig bara við það þegar þú ert vansæll og gerir ekkert í því, þá verður lífið ekki mjög skemmtilegt. 

 Í hreinskilni sagt, þá er enginn hamingjusamur allar stundir og það er bara allt í lagi.  Ef þú sættir þig bara við það þegar þú ert vansæll og gerir ekkert í því, þá verður lífið ekki mjög skemmtilegt.  En ef þú villt vinna í því að lífið brosi við þér, þá taktu ákvörðun um að vinna í málunum.  Það hjálpar ekki bara andlegri vellíðan, heldur einnig er það gott fyrir líkamlegt heilbrigði.

Ekki velta þér upp úr vantúr þinni, um að hægt sé að trúa á hamingju og ekki velta þér upp úr liðnum leiðinlegum atburðum og tilfinningum.

Meðfylgjandi læt ég fylgja 2 afar góða tengla, sem báðir fjalla um tilfinningar og hamingju. Emotional Freedom Technique (EFT)    og   17 “happiness principles”

Hlúðu að tengslum við fjölskyldu og vini;  Brostu þegar þú tekur á móti þeim, og leggðu metnað þinn í jákvæð samskipti.

Vertu bjartsýnn: Einbeittu huganum frá neikvæðum atburðum og hugsunum, leitaðu uppi jákvætt viðhorf og hugsanir. Bjartsýni virkjar góðar tilfinningar.

Kallaðu fram einlægt bros og vertu tilbúin að hlæja hvenær sem færi gefst. Ef þú hagar þér eins og þú sért hamingjusöm, þá hefur það áhrif.  Það er ekki bara meint eins og að setja upp grímu fyrir aðra sem þú veltir þér svo upp vansæld bak við grímuna, heldur skaltu vinna að því að gera það sem þú myndir gera ef þú ert hamingjusöm.  Brostu mikið og þegar þú gengur framhjá spegli, brostu enn breiðar. Því meira sem þú brosir, verður þú glaðari og mun meira aðlaðandi.

Bænir og andleg mál:  Ekki eru allir trúaðir, en það er ekki vafi á að bænir og hugleiðsla hjálpa til að takast á við hlutina.

Vertu örlátur að deila með öðrum.  Eins og sagt er, “sælla er að gefa en að þiggja”.  Deildu einnig gleði þinni og umhyggju með öðrum og það gefur bæði þér og viðkomandi meiri vellíðan.

Farðu með tímann eins og hann væri vinur þinn:  Ekki alltaf vera með augun á klukkunni.  Ekki skipuleggja tímann þannig að hann sé ofhlaðinn og valdi þér streitu.

Þjálfaðu hugann og hafðu hugann opinn;  Vertu ávallt tilbúin að fylgjast með nýju efni eða hugmyndum.  Það er svo margt skemmtilegt sem hægt er að gleðja hugann.  Margir virðast halda að þeir viti allt sem þarf að vita.  En endalaust er eitthvað sem fræðir og gleður.

Hugsaðu vel um líkamann: Vertu dugleg að hreyfa þig.  Regluleg leikfimi fyrir þá sem hafa getu og tækifæri til,  gönguferðir, sund, heitir pottar, eða hvað eina sem hentar hverjum og einum.  Ef þú ert aftur á móti ekki með heilsu til að hreifa þig mikið, þá er betra en ekkert að fara t.d. út á svalir, snúa andliti að sólinni og anda hægt og eins djúpt og þú getur.

Reyndu að hafa lífið skemmtilegt:  Einbeittu þér að því að slaka á undir álagi og njóttu hverrar stundar sem kostur er.

Settu þér markmið:  það þarf ekki að vera einhver risastór markmið, en hvað eina sem við tökumst á við og sigrum, gefur lífinu gildi.

Hafðu trú á sjálfum þér.  Við komum í þennan heim með mikla möguleika, og það fer mikið eftir því hvernig við nýtum þá.  Mundu að þú ert frábær.

Njóttu þess að eldast:  Hvert aldursskeið hefur eitthvað nýtt og skemmtilegt upp á að bjóða.

Vertu óspör á hrós og gullhamra: Taktu hvert tækifæri til að hæla öðrum.  Ekki er verra ef þú gerðir það sama gagnvart sjálfri þér.  Hól er viðurkenning á því sem gott er.  Ef ekki er haft orð á því góða fyrr en við jarðarför viðkomandi þegar hann er kvaddur, þá gerir það ekkert gagn.

Vertu heiðarlegur: Meiðarleika kemur hreinskilni og fólk ber virðingu fyrir opnu heiðarlegu fólki.

Taktu erfiðleika sem áskorun eða viðfangsefni:  Hver áhætta og hindrun í lífinu er til að takast á við.   Hugarfarið meðan við vinnum að þessum viðfangsefnum lífsins getur gjörbreytt hvort það er yfirþirmandi, eða vel yfirstíganlegt.  Lífið er eins og leikur, því hvað veit maður hvað er skemmtilegt, ef maður hefur aldrei reynt eitthvað leiðinlegt.

 

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).