• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Mótsagnir okkar tíma

Skrifað 2010-02-01 · Almennt

Yndislegt bréf eftir George Carlin, skrifað eftir andlát eiginkonu hans:

Þversagnir í sögu okkar tíma, er að við höfum hærri byggingar en minni þolinmæði, breiðari þjóðvegi, en þrengri sjónarmið. Við eyðum meira,
en höfum minna, við kaupum meira en njótum minna.

Við höfum stærri hús og minni fjölskyldur, meiri þægindi, en minni tíma. Við höfum fleiri gráður en minni skynsemi, meiri þekkingu, en minni dómgreind, fleiri sérfræðinga, enn meira vandamál, fleiri lyf, en minni vellíðan.

Við drekkum of mikið, reykjum of mikið, eyðum of hirðuleysislega, hlæjum of lítið, ökum of hratt, verðum of reið, vökum of lengi, verðum allt of þreytt, lesum of lítið, horfum of mikið á sjónvarp, og biðjum of sjaldan. Við margföldum okkar eignir, en drögum úr gildi okkar. Við tölum of mikið, elskum of sjaldan, og hötum of oft.

Við höfum lært hvernig á að vera lifandi, en ekki að lifa. Við höfum bætt árum við lífið, er ekki lífi við árin. Við höfum farið alla leið til tunglsins og til baka, en eigum í vandræðum að fara yfir götuna til að hitta nýja nágranna. Við sigrum ytri heim en ekki innri heim.

Við höfum gert stóra hluti, en ekki betri hluti. Við höfum hreinsað upp á lofti, en mengað sálina. Við höfum sigrað atómið en ekki fordóma okkar.

Við skrifum meira, en lærum minna. Við áætlum meira, en náum minna.

Við höfum lært að þjóta, en ekki að bíða. Við byggjum fleiri tölvur til að halda utan um meiri upplýsingar, að framleiða fleiri eintök en nokkru sinni fyrr, en eigum minni og minni  samskipti.

Þetta eru tímar skyndifæðis, en hægrar meltingar, stórra manna en lítið eðli, himinhár hagnaðar en grunn sambönd. Meiri innkoma þar sem tveir sjá um að afla tekna, en fleiri skilnaðir, flottari hús, en fleiri brostin heimili.

Þetta eru dagar fljótra ferða, einnota bleyja, yfirgefiðs siðferðis, einnar nætur kynni, yfirvigtar líkama, og töflur til að hressa mann við, gera mann rólegri og drepur mann í rólegheitunum.

Það er tími þegar það er mikið er í sýningargluggunum en ekkert á lagernum.

Þegar með tækninni er hægt koma þessu bréfi til þín, og tími þegar þú getur valið um annað hvort að deila þessu innsæi, eða bara eyða því.

Mundu; að eyða tíma með ástvinum þínum, því að þeir eru ekki hér að eilífu. Mundu að segja hvetjandi orð við þann sem lítur upp til þín, því þessi að litla manneskja munu brátt vaxa upp og fara burt.

Mundu að gefa hlýtt faðmlag til þess sem er við hliðina á þér því það er eini fjársjóðurinn sem þú getur gefið úr hjarta þínu og það kostar ekki neitt. Muna, að segja, "ég elska þig" við vini þína og ástvini, en nauðsynlegast af öllu þarftu að meina það. Koss og faðmlag mun lækna særindi þegar það kemur djúpt innan frá þér.

Mundu að meta augnablikin sem þú heldur í hönd þess sem er þér kært því einhvern daginn mun þessi manneskja ekki vera þar aftur. Gefðu tíma til að elska, gefðu tíma til að tala og gefðu tíma til að deila dýrindis hugsunum í huga þínum.

Og mundu alltaf: 
Lífið er ekki mælt í hve oft þú dregur andann, heldur á því augnabliki sem þú hættir að anda.


 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).