• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Þroski og vellíðan barnanna okkar.

Skrifað 2010-02-01 · Börn

Hlúa þarf að hverjum einstakling allt frá getnaði fram í andlát.  Ef hlúð er vel að einstaklingi sem ungviði, eru mun meiri líkur á að á fullorðinsárum verði hann hraustari bæði andlega og líkamlega.

Strax á meðan fóstrið er í móðurkviði er nauðsynlegt að hafa í huga að þetta er einstaklingur sem er móttækilegur fyrir ytri áhrifum.  Móðirin þarf að huga vel að sinni eigin heilsu og reyna að stuðla að sem mesta jafnvægi andlega sem líkamlega.  Heilbrigt mataræði, hæfileg líkamshreyfing, næg hvíld og jákvæður lífsstíll er grunnur að vellíðan barns og móður.

Heimildir kínverskra lækninga varðandi uppvöxt og vellíðan barna, samkvæmt rannsóknum í nokkur þúsund ár, eru víða þekktar.  Æskilegt að mæður í hinum vestræna heimi geti haft aðgang að þeirri vitneskju samhliða vestrænum kenningum, þannig að þær hafi val fyrir sitt eigið barn.

 

Fæðing og fyrstu mánuðirnir:



Fæðingin sjálf getur verið mikil lífsreynsla bæði fyrir móður og barn.  Er því æskilegt að umhverfið við fæðingu, skapi öryggi, jafnvægi og jákvæða hvatningu.  Það getur auðveldað fæðingu og dregið úr líkum á hvers kyns vandamálum.  Meiri líkur eru á að barnið verði rólegt og heilbrigt ef fæðingin hefur gengið vel fyrir.  Móðurinni líður einnig betur bæði líkamlega og andlega og nýtur þess betur að takast á við breyttar aðstæður.

Samkvæmt kínverskum lækningum er mjög gott að gefa barni seyði af lakkrís strax eftir fæðingu.  Það hreinsa tunguna, kemur jafnvægi á magann og barnið verður rólegra.   Algengt er að börn allt til 6 mánaða fái magakrampa, sem geta staðið yfir allt að nokkra klukkutíma á sólarhring og valdið erfiðum andvökunóttum (sjá nánar í kafla um næringu).


Ráðlagt er að læknir skoði barnið með vissu millibili, en reglulegt mæðraeftirlit fylgist einnig með þroska og heilbrigði barnsins.  Mælt er bæði hæð og þyngd,  og kannaður þroski og atgervi barnsins samkvæmt fyrirfram ákveðnum staðli.  Komið er á framfæri ráðleggingum um mataræði og bætiefni, og ef hæð og þyngdarmörk eru ekki innan vissra marka samkvæmt staðli, er talið afar mikilvægt að breyta fæðuvali.  Hafa ber þó í huga að sumum börnum er t.d. eðlilegt að vera smá og fíngerð meðan öðrum er eðlilegt að vera stór og kraftaleg.

 

Næring :



Brjóstamjólk er sú næring sem talin er sú næringarsamsetning sem hæfir barninu best fyrsta æviskeiðið meðan meltingavegurinn er að þroskast.  Brjóstagjöf getur verið mikilvæg ekki bara frá næringarlegu sjónarmiði heldur einnig fyrir andlegt og tilfinningalegt jafnvægi.  Þegar móðir leggur barn sitt við brjóst, finnur það nálægð og hlýju móðurinnar.  Æskilegt að móðurinni líði vel og sé afslöppuð við brjóstagjöf. (Ekki er æskilegt að hún sé rétt að ljúka erfiðisverkum eða rétt eftir samfarir).  Einnig er nauðsynlegt að móðirin sé meðvituð um hvaða fæðu hún neytir meðan hún hefur barn á brjósti, því fæðan fer út í mjólkina.  Sum börn eru viðkvæm  í maga allt fram að 6 mánaða og ef móðirin neytir vissra fæðutegunda, þá aukast líkur á að barnið fái magakrampa.  Þar á meðal er t.d. reyktur matur, sítrusávextir, maltöl, alkahól, mjólkurafurðir, laukur, hvítlaukur, brokkólí, hvítkál, blómkál og mikið kryddaður matur, grænn pipar, súkkulaði og jarðaber.  Grasalæknar og hómópatalausnir hafa einnig hjálpað verulega hvað varðar magakrampa ungra barna.


Ef brjóstagjöf nægir barninu ekki eða fellur niður af öðrum ástæðum  er ráðlagt að nota ekki kúamjólk, þar sem hún er mjög slímmyndandi.  Meltingin er ekki fær um að umbreyta mjólkinni fullkomlega og veldur slímmyndun, sem fer upp til lungnanna, sérstaklega meðan þau liggja svona mikið útaf eins og vöggubörn gera.  Það getur komið fram sem niðurgangur, nefrennsli og jafnvel vandamál í öndunarvegi samhliða hósta.


Meltingavegur barnsins heldur áfram að þroskast eftir fæðingu og er ekki tilbúinn að taka við fastri fæðu fyrr en eftir 3 mánaða.  Ef mjólkin nægir barninu er gott að láta líða lengri tíma eða allt að 6 mánuði, en barnið lætur yfirleitt vita hvenær sá tími er kominn.  Hollt mataræði er mjög mikilvægt, og getur stuðlað að góðu heilbrigði barnsins.  Best er að byrja með mjög auðmeltanlegu fæði, en hrísmjölsgrautur er t.d. léttur í maga.  Í upphafi skal forðast hrátt fæði og þar á meðal ávexti, en ef það er létt soðið er það mun auðmeltara.  Kornmat og fræ, skal aftur á móti sjóða vel.  Lífrænt ræktað fæði er mun hollara og ekki hætta á óæskilegum aukaefnum.  Forðast skal unnið fæði, dósamat, kaldan mat, fitu og sætt fæði.

Heilbrigði :



Ónæmiskerfi ungra barna er óþroskað og því meiri næmni gagnvart sjúkdómum.  Margt í daglegri umgengni getur stuðlað að vellíðan og heilbrigði barna okkar eins og t.d.:

Fyrst eftir fæðingu er æskilegt að barn sofi nálægt móður sinni, þannig að hún sé strax til taks og geti þannig dregið úr fyrstu aðskilnaðartilfinningum eftir fæðingu.  Ekki skal þó vera með börnin í fanginu að óþörfu, því jarðartengingin er nauðsynleg til að efla sjálfsöryggi.  Móðir gerir sér yfirleitt grein fyrir þegar barninu líður illa og þarfnast umhyggju og þá er æskilegt að taka þau í fangið og sýna þeim ástúð og umhyggju.  Grátur er tjáningarform ungbarna til að gefa til kinna hungur, verki, og vanlíðan og móðirin lærir fljótlega að þekkja tjáningaform barnsins.

Samkvæmt kínverskum fræðum er Yin tengt baki ungbarna, en það tengist aftur himninum.  Yang er tengt bringunni, sem aftur tengis móður jörð.  Það er því talið betra fyrir börn að liggja sem mest á maganum.

Klæðnaður barna ættu vera í samræmi við hitastig, veðráttu og leiki, þannig að þeim sé ekki of heitt né of kalt.  Hafa skal í huga að þeim sé ávallt hlýtt á baki og bringu (verndar maga og nýru), einnig á höndum og fótum (verndar hjarta og lungu).

Hreinlæti er nauðsynlegt, en hafa skal í huga, að ofþvottur getur valdið ofþurrki og skertum eðalélegum vörnum húðarinnar.

Reykingar ættu aldrei að viðgangast nálægt börnum.  Lungu barna eru afar viðkvæm og reykmettað loft getur haft varanleg áhrif á öndunarveg barnsins.

Andlegt jafnvægi hefur mun meiri áhrif á heilbrigði barna, heldur en flestir gera sér grein fyrir.  Rólegt andrúmsloft þar sem foreldrum og börnum líður vel getur lagt grundvöll að góðri heilsu.  Ýmis atriði sem virðast smávægileg geta einnig haft áhrif á heilbrigði barna, eins og nudd, knús og athygli.  Jafnvel þó barninu sé haldið frá deilum, er það oft næmt á líðan foreldra sinna og nánasta umhverfi.  Nauðsynlegt er að setja ákveðnar reglur fyrir börnin okkar, sem skapa þeim öryggi og leggur grunn að framtíðinni og að við séum okkur sjálfum samkvæm í daglegu uppeldishlutverki. Halda ber börnum frá myndum í sjónvarpi sem geta valdið óhug hjá barninu eða sem inniheldur klámfengið efni.

Hafa skal í huga að í nútíma þjóðfélagi geta sjúkdómar verið afleiðing af læknisfræðilegum afskiptum.

Til dæmis ógagnrýnin notkun sýklalyfja, þar sem viðurkennt er ofnotkun sýklalyfja hefur valdið stökkbreytingum í bakteríum þannig að þær eru að verða ónæmar fyrir öllum þeim sýklalyfjum sem eru á markaðnum.  Sýnt hefur verið fram á tengsl sýklalyfjaónæmis og endurtekinnar notkunar sýklalyfja  og geta þessar ónæmu bakteríur breiðst til annarra í fjölskyldu, milli barna á leikskólum og um samfélagið.  Einnig er mikil aukning á þrálátum sveppasýkingum, af lyfjanotkun, hjá einstaklingum allt niður í smábörn.   Ýmsar bækur fást varðandi þetta efni eins og til dæmis:  Breaking the Antibiotic Habit: Parent's Guide to Coughs, Colds, Ear Infections and Sore Throats   by John Wiley & Sons Inc  og The antibiotic crisis: Natural alternatives and antidotes, by Leon Cheitow.  Auðvelt er að nálgast´þær til dæmis hjá Amason.

Sterameðferðir eru einnig vandamál, en það virðist oft vera eina úrræði hinna hefðbundnu lækninga við svo mörgum kvillum og sjúkdómum.  Sterar ættu aðeins að vera neyðarúrræði, þar sem afleiðingarnar geta verið varasamar og raunverulegur bati ekki augljós.

Ekki má gleyma hinum hefðbundnu bólusetningum.  Mikill ágreiningur er milli aðila í hinum hefðbundnu læknavísindum og aðila í fjölmörgum óhefðbundnum meðferðafræðum.  Meðal annars eru kenningar uppi um að til dæmis geti hefðbundnar bólusetningar stuðlað að athyglisbresti, ofvirkni,  ofnæmi og þunglyndi .

Hér á landi hefur verið  miðað við að bólusett sé samkvæmt þessum reglum, með örfáum frávikum.

Aldur: Bólusetning gegn:
3 mánaða kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu.
5 mánaða kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu.
12 mánaða Kíghósta, barnaveiki, stífkrampa, Haemofilus influenzae sjúkdómi gerð b (Hib) og mænusótt í einni sprautu.
18 ánaða Mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu. (MMR)
5 ára Barnaveiki, stífkrampa og kíghósta í einni sprautu.
9 ára Mislingum, hettusótt og rauðum hundum í einni sprautu.
14 ára Barnaveiki og stífkrampa í einni sprautu + Mænusótt í einni sprautu.

Einnig hefur verið hafist handa með bólusetningar á börnum frá 6 mánaða til og með 18 ára, gegn Meningókokkum C.

 

Veikindi barna:

Börn verða oft skyndilega veik og geta orðið mjög veik á stuttum tíma með háan hita.  En oft varir ástandið ekki lengi.  Sýkingar af völdum sýkla, baktería og vírusa eru algengar og smitast auðveldlega.  Hefðbundnir lækningar eru því miður oft of fljótir til að ávísa á sýklalyf að óathuguðu máli, og stundum algerlega að tilefnislausu þar sem sýklalyf vinna yfirleitt ekki á veirum.  Veirur valda langflestum hóstapestum, hálsbólgu og öllum kvefpestum.  Hómópatía er oft afar hjálpleg við eftirtalda kvilla:

Kvef og aðrir kvillar í öndunarvegi Kvef er algengasti kvillinn, með rennsli úr nefi, hnerra, hósta og jafnvel hita.  Augnlokin verða oft rauðþrútin og lekur oft úr augunum eins og vökvi eða gröftur.  Einnig eru augnlokin oft límd aftur eftir svefn, þannig að nauðsynlegt er að þvo augun upp úr soðnu vatni til að geta opnað þau.  Þetta gengur yfirleitt bara yfir og þarf aðeins að fylgjast vel með barninu sé hvorki of heitt né of kalt.  Í flestum tilfellum stafa kvillar í öndunarvegi af veirusýkingu.  Nægir oftast að hafa hægt um sig þar sem veirusýkingar batna oftast af sjálfu sér, þegar sjúkdómurinn hefur runnið sitt skeið.  Sýklalyf vinna hvort sem er ekki á veirum.

Eyrnabólga er oft fylgikvilli eftir kvef hjá börnum með viðkvæm eyru.  Þetta er oft slímmyndun í miðeyra sem veldur þrýstingi og verkjum.  Gott er að hafa hátt undir höfði á nóttunni, hafa hægt um sig, hvítlauksdropar hjálpa oft og varast flugferðir. Bæði kínversk læknisfræði sem og hómópatía, eiga afar auðvelt með að hjálpa til við eyrnabólgur, og sleppur barnið þá við sýklalyfjainntökur, sem er eina ráð hinna hefðbundnu lækninga til að byrja með, en við síendurteknar eyrnabólgur er um mun afdrifaríkari lækningar eins og að rjúfa hljóðhimnu og hleypa út vökva eða jafnvel að koma fyrir rörum sem halda opnum losunarfarvegi úr miðeyranu.

Ef um asma er að ræða, bólgnar slímhimnan í lungnaberkjum, samdráttur verður í berkjum, ástandið leiðir til aukinnar slímmyndunar sem framkallar öndunarerfiðleika með pípandi eða hvæsandi öndunarhljóði. Hann getur verið af mismunandi ástæðum, eins og t.d. vegna ofnæmis eða bældra grunnlægra einkenna.  Ef barnið á í öndunarerfiðleikum, skiptir um húðlit einkum ef blánar kringum varir, öndunarþreyta, (andar grunnt og hratt) skal leita aðstoðar.  Koma þá hinar óhefðbundnu meðferðir oft að góðu gagni.

Barnaexem er algengt meðal barna.  Þetta getur lýst sér sem rauð útbrot í andliti, hálsi, bleiusvæði, einnig á utanverðum hand- og fótleggjum, í hnés- og olnbogabótum, við úlnliði og ökkla.  Mikill kláði í útbrotum sem veldur því að börn klóra sér og þarf að fylgjast vel með því að ekki komist sýkingar í rispur eftir klór.  Börn sem þjást af kvillanum eru með þurra húð, mikinn kláða og eiga á hættu að aðrir ofnæmiskvillar fylgi í kjölfarið eins og t.d. asmi og ofnæmi.  Í þeim tilfellum eru óhefðbundnar lækningar góður kostur, þar sem sterakrem geta haft mun alvarlegri afleiðingar en fólk gerir sér almennt grein fyrir.  Æskilegt er að frá ráðleggingar varðandi mataræði, varast föt úr ullar og gerviefnum sem erta húð, minnka sápunotkun, nota ilmefnalaus rakakrem og þvo þvott með ilmefnalausum þvottaefnum

Meltingasýking   sem veldur niðurgangi og / eða  uppköstum, er algengur kvilli.  Þetta gengur yfirleitt yfir á einum sólarhring.  En ástæða er til að fylgjast vel með barninu og gæta vel að barnið ofþorni ekki.

Flensa fer eins og faraldur yfir landið að minnsta kosti einu sinni á ári.  Yfirleitt gengur hún bara yfir án nokkurra eftirmála.  Fylgjast skal þó vel með barninu, mæla það reglulega og vera viðbúinn ef barnið fær hitakrampa.  Við hitakrampa er gott að fækka fötum og strjúka því með volgum svampi og leita eftir frekari ráðleggingum.

Heilahimnubólgu getur fylgt hár hiti, höfuðverkur, ógleði, uppköst og mjög einkennandi stífni aftan á hálsi, sem þó gæti verið erfitt að sjá hjá ungabörnum.  Þessu geta fylgt húðblæðingar og jafnvel meðvitundarleysi.  Skal þegar í stað leita læknis eða hringja í neyðarlínuna, 112.

Barnasjúkdómar stinga sér iðulega niður í skólum og leikskólum.  Mislingabróðir hefur meðgöngutíma í 7-17 daga.  Fyrstu einkenni eru hár hiti í 3 daga og gæti valdið hitakrampa, en síðan koma fram útbrot þegar hiti minnkar.  Meðferð hvíld og ró.  Rauðir hundar hefur meðgöngutíma í 14-21 dag.  Einkenni eru útbrot, hósti og bólgnir kirtlar.  Ráðlagt hvíld og ró.  Mislingar meðgöngutími 11 dagar.  Byrjar með hósta og háum hita en á 3ja degi koma rauð útbrot og hár hiti.  Hætta er á lungnabólgu og eyrnabólgu ef ekki er farið sérlega vel með sig.  Skarlatssótt með 2-7 daga meðgöngutíma.  Fyrstu einkenni eru hálsbólga og getur fylgt því hiti og jafnvel uppköst.  Síðar koma rauð útbrot, rauð og þrútin tunga (jarðaberjatunga) með hita.  Þarf að hafa góða hvíld því fylgikvillar af skarlatssótt geta verið nýrnahnoðrabólga og eyrnabólga.  Hefðbundnar læknismeðferðir ráðleggja penesilínmeðferð, en óhefðbundnar lækningar hvetja til annars konar meðferðar.  Hlaupabóla hefur 14-21 dags meðgöngu. Einkenni eru hiti og rauðir blettir sem breytast í vessakenndar bólur með töluverðum kláða.  Hvíld og ró er ráðlagt og ýmis góð ráð eru til að draga úr kláða.  Hettusótt hefur 14-24 daga meðgöngu.  Einkenni er bólga við kjálka og hiti.  Nauðsynlegt er að hvílast vel og gæta að ekki slái að manni, þar sem hætta á heilahimnubólgu og eistabólgu ef ekki er gætt ýtrustu varúðar.  Kíghósti hefur 7-9 daga meðgöngu.  Einkenni er hóstaköst, aðallega um nætur, með andþrengslum og uppköstum.  Ef þörf er talin gefa hefðbundnir læknar fúkkalyf, til varnar lungnabólgu og heilahimnubólgu.

Öll veikindi barna okkar, ber að umgangast með gætni og af skinsemi. Róleg yfirvegun er bæði okkur og börnunum nauðsynleg.  Einnig er börnum nauðsynlegt að fá umhyggju og öryggi, þar sem þau eru oft lumpin samhliða lasleikanum og líður oft ekki  vel.

 

Viðmiðunartafla:

Algengt er að þroskaferli barna sé mælt  samkvæmt fyrirfram ákveðnum viðmiðunarstöðlum, sem miðast við viss tímamót æviskeiðsins.  Hafa ber þó í huga, að um frávik getur verið að ræða án þess að um einhver vandamál sé að ræða.  Börn fæðast mismunandi stór, foreldrar eru mjög mismunandi stórvaxnir, fjölskylduaðstæður eru mismunandi,  menningarvenjur eru breytilegar o.s.frv.

Hér að neðan er lausleg viðmiðunartafla byggð bæði á erlendum og íslenskum upplýsingum.  Þetta er eingöngu til lauslegrar viðmiðunar og hafa ber í huga, hvern einstakling fyrir sig, varðandi frávik.

Aldur Viðmiðun og geta
Við fæðingu Eðlilegur hjartsláttur um 140 slög á mín.
6 vikna

Eðlilegur hjartsláttur um 135 slög á mín.
Barn byrjar að hald höfði og stjórna höfuðhreyfingum.
Hreyfir útlimi svipað og í sundi.
Ósjálfráð nýburaviðbrögð enn til staðar.
Bros ern enn viðbrögð við vindverkjum og vanlíðan.

4-8 vikna Aftari höfuðmót lokast
4  mánaða Hafa góða stjórn á höfuðhreyfingum
6  mánaða fyrsta tönnin
7-8 mánaða

Situr óstutt í nokkrar sekúndur.
Byrjar að hreyfa sig um, venjulega með því að rúlla sér.  Komið yfir nýburaviðbrögð.
Stöðugar handahreyfingar og öruggt grip.
Áhugi á hlutum sem hverfa af sjónarsviði.
Fært um að staðsetja hljóð.
Markvissara og hljómmeira hjal.

8-9 mánaða

Byrjar að skríða.
Eistu hafa gengið niður á drengjum.

10-18 mánaða Fremra höfuðmót lokast
12 mánaða

Eðlilegur hjartsláttur 115 slög á mín.
Getur byrjað að ganga.

15 mánaða Hættir að kasta hlutum síendurtekið
18 mánaða

Getur gengið óstutt.
Heldur jafnvægi á öðrum fæti eitt augnablik.
Gengur upp stiga með báða fætur í þrepi.
Skríður niður stiga.
Nákvæm beiting við að teygja sig eftir hlutum.
Þroskað, að rétta og grípa sjálfviljugt.
Hættir að bera alla hluti í munninn og slefa.
Hljómfagurt barnamál og notar stöku sinnum tvö og tvö orð saman.
Drekkur úr glasi og notar skeið, en fer mikið eftir þjálfun.

2 ½ - 3 ára

Hleypur auðveldlega beint áfram,  getur hoppað og klifrað.
Fer upp og niður stiga með báða fætur í þrepi.
Getur farið eftir einföldum fyrirmælum.
Framkomið, rétt- eða örvhentur og notar hina til aðstoðar.
Skilningur á myndum og leikur hlutverkaleik.

3-4 ára

Grípa bolta með báðum höndum.
Ganga stiga og skipta um fót, ganga á tánum.
Geta farið eftir einföldum reglum og fyrirmælum.
Skilningur hefst á samvinnu við önnur börn.
Þekkir 4 liti og talnaskilningur að hefjast.
Þekkir nokkra líkamshluta.

4 ½ - 5 ára

Eðlilegur hjartsláttur er 100 slög á mínútu.
Geta verið klunnaleg án þess að óeðlilegt sé.
Hefur lært að hald á blýanti.
Getur teiknað fólk.
Getur hermt eftir svipbrigðum.
Talmál skýrt, lipurt og vel skiljanlegt.
Sjálfstætt varðandi borðhald, þvott og  fer sjálft á klósettið.

5 ára Hefur fengið 20 barnatennur.

5-6 ára

Byrjar að missa barnatennur og fá fullorðinstennur
10 ára Eðlilegur hjartsláttur er 90 slög á mínútu
13-15 ára Hefur fengið 28 fullorðinstennur

 

Alltaf skal hafa í huga að hvet barn er sjálfstæður einstaklingur, með eigin þarfir og viðbrögð gagnvart umhverfinu.  Allar ákvarðanir skulu metnar með einstaklinginn og velferð hans í huga.  Hafa ber í huga að móðirin er sú sem þekkir sitt barn betur en nokkur annar og með því að hlusta á það sem hún hefur fram að færa,  er bestum árangri náð til að afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegt er að fá til að geta hjálpað barninu.

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).