2. Skyndihjálp
![]()
Skyndihjálpar remedíur til heimilisnota:
Nokkrar Skyndihjálpar remedíur til heimilisnota:
Þegar hægt er að grípa strax til þessarra remedía, um leið og eitthvað kemur uppá, annaðhvort strax eftir að einhver meiðir sig, eða um leið og verður vart við neðangreind einkenni, verða viðbrögð líkamans mun fljótari að takast á við það sem aflagað hefur farið. Þar af leiðandi er gott að eiga remedíur við höndina því stundum tekur tíma að ná í hómópata og útvega remedíurnar. En hver klukkutími getur skipt sköpum varðandi virkni.
Arnica: Remedía nr.1 fyrir öll líkamleg áföll
Remedía við slysum /losti / örmögnun og líkamlegu áfalli t.d. eftir bílslys, beinbrot, byltu eða fall, tognun, mar, bólgur eftir slys, ofreynslu og við flugþreytu. Arnica er góð fyrir og eftir uppskurði og tannviðgerðir. Alltaf að gefa Arnicu þegar einhver meiðir sig.
Aconite: Remedía nr.1 við öllum andlegum áföllum og til að stöðva veikindi í byrjun
Remedía til að stöðva kvef/flensu í upphafi. Ef byrjað er að taka hana nógu fljótt getur hún stöðvað sýkingu t.d. kvef, hálsbólgu, barkabólgu, barkahósta eða eyrnaverk. Góð við tilfinningalegum áföllum, hræðslu t.d. flughræðslu o.þ.h. Aconite getur einnig dregið úr kvíða.
Belladonna: Remedía nr. 1 við Háum hita, Eyrnaverk og Sólsting.
Remedía við háum hita og bólgum. Er gefin m.a. við heilahimnubólgu, sólsting, höfuðverk, tanntöku, tannpínu, eyrnaverk, kvefi, flensu eða hálsbólgu og við myndun graftarkýla. Góð fyrir börn sem bíta.
Calendula - Morgunfrú: Remedía nr. 1 til að græða sár
Remedía græðir sár. Mjög græðandi og sótthreinsandi. Fyrirbyggir ígerðir. Mjög góð sem fyrsta hjálp fyrir opin sár, skurði og brunasár. Mjög gagnleg eftir fæðingu og fyrir sprungnar geirvörtur. Góð við pirringi.
Cantharis: Remedía nr. 1 við Bruna – sviða – blöðrubólgu.
Remedía við áköfum verkjum vegna bruna. Skordýrabit þegar verkir eru miklir og brennandi. Góð við blöðrubólgu þegar það eru miklir og brennandi verkir fyrir, á meðan og eftir þvaglát.
Skerandi brennandi verkir.
Gelsemium: Remedía nr. 1 við flensu og prófkvíða
Remedía við flensu. Sérstaklega þegar fylgir þróttleysi, vöðvaverkir, drungi, áhugaleysi, seyðingsverkur í höfði og kuldahrollur eða skjálfti ásamt þungum augnlokum. Flensa og kvef koma smám saman. Er einnig gefin við hræðslu og kvíða, svo sem prófkvíða og sviðsótta, sem einkennist af máttleysi eða lömun af völdum óttans.
Hypericum: Remedía nr. 1 við hvers konar Taugaáverkum
Remedía við meiðslum á taugum (taugaendum), t.d. á tám – fingrum – rófubeini – hálshnykkur – tannrótarverkir. Gagnleg við meðhöndlun á tættum sárum frá beittum áhöldum eða hverskonar meiðslum á tauga-miklum svæðum. t.d. þegar einhver dettur á rófubeinið, skellir hurð á fingur o.þ.h. Notuð við stunguáverkum – fyrirbyggir stífkrampa. Eftir uppskurði eða slys þar sem taugar hafa orðið fyrir áverka svo sem barkaskurði, tannholdsskurði.
Nux Vomica: Remedía nr. 1 Eftir ofát – timburmenn – frjókornaofnæmi – morgunógleði
Remedía við magatruflunum og þynnku. Góð við ógleði með magakrampa. Uppköst og niðurgangur ásamt krampakenndum verkjum. Gyllinæð og hægðatregða. Einkenni sem geta verið afleiðing af röngu mataræði t.d. kaffidrykkju og alkahóli.
Pulsatilla: Remedía nr. 1 við Eyrnasýkingum – tíðaverkjum – vogrís.
Remedía nr. 1 við eyrnasýkingum barna. Góð remedía t.d. fyrir vessandi eyrnabólgu, ennis- og kinnholu bólgu, stíflað nef, lausum hósta, augnkvefi og vogrís. Nefrennsli eða önnur útferð eru yfirleitt mikil og gul eða ljósgræn að lit. Gigtarverkir sem flökta úr einum lið í annan. Góð gegn blæðingaóreglu og á breytingaraldri kvenna
Rhus Tox: Remedía nr. 1 við Ofreynslu á liði/vöðva – tognun – stirðleiki – áblástur.
Remedía við tognun og ofreynslu vöðva og sina. Tognun (fyrst Arnicu síðan Rhus Tox). Harðsperrur. Gigt. Áreynslumeiðsl. Hálsbólga eftir raka. Áblástur í munni og kring um munnvik. Nothæf í flensu, kvefi og hita en þá er oft þrihyrndur rauður blettur á tungubroddinum.
Gott fyrir og eftir æfingar eða gönguferðir, linar harðsperrur.
-------
Hægt er að kaupa flestar þessar remedíur í betri heilsubúðum og í Skipholtsapóteki. Þar eru þær aðeins til í styrkleika 30c. Ekki á alltaf við að gefa remedíu í þeim styrkleika. Í þeim tilfellum sem þörf er á öðrum styrkleika er einfaldast að hafa sambandi við Hómópatann þinn sem þá gæti útvegað þann styrkleika sem við á.
Bestu kveðjur
Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir
Hómópatar LCPH