• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

3. Inflúensa

Skrifað 2007-09-14 · Pistlar

Influensa getur verið margskonar, af ýmsum stofnum og er aðallega um veirusýkingu að ræða.   

Nú er að nálgast sá tími þegar inflúensur fara að herja á landann.  Influensa getur verið margskonar, af ýmsum stofnum og er aðallega um veirusýkingu að ræða.  Vírusarnir eru af þrem stofnum A, B og C,  en A stofninn er þeirra algengastur.   Læknar gefa iðullega lyf vegna einkenna eins og t.d. hitastillandi, verkjastillandi eða  vegna nefrennslis og hósta og rinnig lyf til að reyna varnir gegn afleiðingum eins og t.d. lungnabólgu, en eiginleg lyf gegn veirusýkingu eru ekki til.  Ráðlagt er að hafa hægt um sig og hvílast vel til að komast hjá að slá niður og verða enn veikari.

Bólusetningar gegn flensu hafa borði misgóðan árangur og komið hefur fyrir að bólusett hefur verið fyrir flensuvírus sem hefur svo ekki verið af þeim stofni sem borist hefur til landsins.  Bóluefni eru aldrei eingöngu það efni sem ræktað er til varnar viðkomandi veikindum, því til þess að vekja varnarkerfi líkamans til að verða móttækileg fyrir bóluefninu, þarf að blanda það aukaefnum sem eru líkamanum oft ekki æskileg.  Ólíkar skoðanir eru varðandi bólusetningar, en heilbrigður einstaklingur ætti að geta komist af sjálfdáðum gegnum flensu  á örfáum dögum.

Einkenni eru ákafari en af venjulegu kvefi, með beinverkjum í baki og útlimum, hita, kuldahrolli.  Einnig getur verið um höfuðverk að ræða, pirring, særindi í hálsi og þurrum hósta sem getur varað í nokkrar vikur.  Þróttleysi og dapurleiki er algengur samhliða þessum einkennum og geta varað í einhvern tíma eftir vírussýkingu.

Hómópatía hefur upp á að bjóða ýmsar remedíur sem geta flýtt fyrir bata og aðstoðað við betri líðan meðan líkaminn er að vinna á þessum vágesti.  Hér á eftir munum við telja upp örfáar af þeim remedíum sem við höfum tiltækar og þeim flensueinkennum sem tilheyrir hverri og einni.

Hómópatar geta blandað nokkrum remedíum saman og hafa þá styrkleikann hærri en 30c, til að ná betri árangri.   Best ef hægt er að byrja sem fyrst að taka remedíur um leið og einkenna verður vart, því það gefur mun betri árangur en þegar flensan hefur náð góðum tökum á manni.


Aconite:  Er góð til að taka strax og vart verður einkenna og síðan fyrsta sólarhringinn.  Hiti kemur snögglega með kuldahrolli.  Þörf fyrir að breiða vel ofaná sig í rúminu vegna kuldahrollsins.  Hraður, harður púls og andlit annaðhvort rjótt eða til skiptis fölt og rautt.

Arsenicum:  Skyndilegur hár hiti samhliða máttleysi en samt eirðarleysi.  Höfuðverkur, kvef, hálsbólga, meltingarvandamál og þá iðullega samhliða niðurgangi.  Útskilnaður er þunnur og vatnskenndur sem brennir húðina.  Mikill þorsti sækir á sjúkling en hann vill bara smásopa af vatni í einu.  Sjúklingi er mjög kalt,  eirðarlaus og kvíðinn.

Belladonna:  Einkenni eru rjótt andlit og varir, slímhúðin í gómi verður rauð.  Veikist snögglega með  háum hita. Höfuð verður heitt og útlimir kaldir.  Hitinn streymir frá höfðinu.  Sjúklingur er þurr og heitur, svitnar ekki og er með sterkan púls.  Fær oft óráð við að loka augunum.  Svefn getur verið órólegur og sjúklingur fær iðulega martraðir.  Þrátt fyrir háan hita er sjúklingur ekki þyrstur.


Bryonia:  Hiti hækkar hægt í upphafi og líkaminn er undirlagður af verkjum.  Hver hreyfing veldur óþægindum.  Þessu fylgir þurr hósti og verða að halda um brjóstið þegar hóstar.  Munnur er þurr og sjúklingur er þyrstur og vill hafa drykkinn kaldan.  Rauð, tárvot augu.  Þolir illa heitt herbergi og hita almennt.  Líður verst á morgnana og um kl.21.00 á kvöldin.  Sjúklingi líður best í köldu herbergi með fersku lofti, ef hann liggur kyrr og hvílir sig.  Höfuðverkur er framan til í höfðinu og versnar við minnstu hreyfingu.  Pirraður og vill ekki fá samúð.

Gelseminum:  Er algengasta flensuremedían.  Sjúklingur er mjög máttfarinn og honum finnst allur líkaminn  þungur.  Augun opnast jafnvel aðeins til hálfs sökum máttleysis.  Verkir eru alls staðar og höfuðverkur aftan til í höfðinu (hnakka).  Roðnar og svíður undan nefrennsli. Brennandi útskilnaður úr nefi og líður illa við hreyfingu og áreynslu.  Kulvís. Ekki þyrstur.  Líður betur eftir að pissa. 

Influenzinum:   Oft tekin í styrkleika 30c einu sinni í viku til tvisvar í mánuði fyrir flensutímabilið til að fyrirbyggja veikindi.  Einnig góð ef sjúklingur er lengi að jafna sig eftir flensu.

Rhus. Tox.:   Ef um er að ræða verki með stífleika.  Stirðnar upp við hvíld og eru fyrstu hreyfingar oft erfiðar, en liðkast við áframhaldandi hreyfingu.  Eirðarlaus.  Verkir og hiti sem veldur meiri vanlíðan á nóttunni og að liggja í rúminu.  Fær stífleika í bak og háls með beinverkjum.  Fær þurran hósta, hnerrar og líður verr í kulda.  Hiti með kuldahrolli.  Tungubroddur oft rauður.

Eup.-per.:   Miklir beinverkir og líður verr við hreyfingu.  Fær kuldahroll og oft líður honum verst um kl. 7.00-9.00 á morgnanna.  Sækir á hann þorsti.  Verkir eru sérstaklega í bakinu.  Þurr hósti fylgir þessu og oft niðurgangur.  Þrátt fyrir að sjúklingi sé kalt, vill hann samt hafa drykkina kalda og sækist jafnvel í ís.  Sjúklingur er þreyttur og veikburða og  vill liggja, en er eirðarlaus.  Honum líður betur við að svitna.

 

Nokkrar remedíur sem einnig geta verið afar hjálplegar ef um flensu er að ræða eins og  t.d. Babt., Carc., Euph., Ferr.Phos., Merc., Nux vom., Phos., 


Til að minnka líkur á að fá flensu er gott að taka einu sinni í viku til tvisvar í mánuði á þeim tíma sem flensan gengur:      Influenzinum 30c 1 tafla og næsta dag Tuberculinum 30c 1 tafla. 

 Bestu kveðjur

Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir
Hómópatar LCPH

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).