Offita barna
Ýmislegt getur valdið offitu hjá börnum.
Ýmislegt getur valdið offitu hjá börnum
Til dæmis getur vansvefn haft áhrif á þann veg að offita sækir á börn. Of stuttur svefn truflar jafnvægi hormóna sem stjórna matarlyst, og síðan getur ofþyngd valdið öndunarerfiðleikum, sem aftur geta haft áhrif á svefninn. Þannig myndast vítahringur.
Skortur á góðum fitusýrum getur verið einnig valdið offitu hjá börnum. Nýlega var gerð rannsókn í Sahlgrenska Academy í Háskólanum í Gautaborg. Ásamt því að kanna lífsstíl. Insúlínmagn í blóði og lífsstíl ásamt fitustuðull (BMI) barna og þessir þættir skoðaðir í samhengi. Það sem kom mest á óvart, var að þau börn sem höfðu fitustuðul (BMI) innan heilbrigðismarka, voru þau sem að neyttu hæsta hlutfalls fitusýra. Þá er helst verið að tala um Omega 3 fitusýrur.
Tekið var eftir samfylgni á milli insúlínsmagns, þyngdaraukningar, insúlínsmagns og inntöku fitu. þau sem höfðu mesta magn insúlíns í blóðinu, þyngdust mest. En þau sem tóku þau mest inn af fitusýrum höfðu lægsta insúlínmagnið. Malin Haglund Garemo, sem leiddi þessar rannsóknir, sagði að aukið magn insúlíns í blóðinu gæti valdið offitu.
Hlutfall hitaeininga í formi ruslfæðis í daglegri neyslu hefur því miður aukist og hefur mikil áhrif á aukningu offitu. Niðurstöðurnar sýndu einnig fram á að meiri hluti barnanna voru lág í járnbúskap og þó nokkur þeirra liðu kalkskort.