4. Eyrnabólga
Eyrnabólga er eitt af helstu vandamálum varðandi börn á Íslandi.
Eyrnabólga er eitt af helstu vandamálum varðandi börn á Íslandi. Helsta ráðið hefur veriðað gefa börnum endalaust peneselín, en með misgóðum árangri. Sumir foreldrar þekkja það þegar barnið virðist rétt hafa lokið einum lyfjaskammti þegar sá næsti hefst með. Barnið verður pirrað, ergilegt og listalaust. Sumir einstaklingar hafa síðan fengið sveppasýkingar og magavandamál, og jafnvel orðið ónæmir fyrir sýklalyfjunum.
Hómópatalausnir hafa í flestum tilvikum reynst afar vel og jafnvel virkar á örfáum klukkustundum. Það er afar mild meðferð, án allra aukaverkana og það sem gott er við hómópatíuna er að á sama tíma virðist líkaminn byggja sig upp þannig að eyrnabólgan verður ekki sífellt að koma aftur. Stundum ber þó við að hún kemur upp aftur, en þá alltaf lengra á milli þar til hennar verður ekki vart. Komið hefur fyrir að barn sem átti að fara í röraaðgerð innan viku, slapp við það og hefur aðeins þurft að fá remedíur einu sinni eftir það nokkrum mánuðum síðar.
Hómópatískar remedíur (remedíur er heiti hómópatískra lyfja) eru margar. Þær eru þannig að þær hafa áhrif á mismunandi einkenni eyrnabólgu og oft á tíðum er gott að blanda saman fleiri en einni til að ná sem bestri virkni. Einnig er oft um mismunandi styrkleika að ræða þannig að auðveldast er að leita til hómópata til að fá það sem hentar best í hverju tilviki fyrir sig til að ná sem bestum árangri.
Þegar notuð er hómópatía við fyrstu einkennum á eyrnabólgu og hálsbólgu má oft koma í veg fyrir að sýkingarnar fái að þróast yfir í alvarlegri stig. Þegar remedíur eru notaðar taka veikindin oft skemmri tíma, einkennin eru mildari og þróast ekki yfir í önnur veikindi.
Með þessari upptalningu sést að eyrnabólga getur verið margvísleg og orsök af margskonar ástæðum og þarfnast mismunandi meðferða og ekki bara notuð ein remedía fyrir alla einstaklinga.
Hér að neðan munum við nefna smá dæmi um breytileika nokkurra remedía:
Pulsatilla er ein algengasta remedían við eyrnabólgu. Hún byrjar með kvefi sem leiðir til eyrnabólgu. Hún virkar vel þegar nefrennslið verður fljótlega litað (gulleitt eða grænleitt) og þykkt en brennir ekki húðina. Eyrnabólga kemur í kjölfar kvefsins, ytra eyrað verður rautt og eyrnamergur litaður. Barninu líður verr á nóttunni og verður vælið og viðkvæmt.
Belladonna virkar á sláttarverki og barnið fær háan hita. Eyrað getur verið rautt og heitt og andlitið getur orðið rjótt. Hægra eyra er oft verra en það vinstra. Belladonna er þó venjulega ekki notuð ef eyrnabólga hefur verið meira en 3 daga.
Mercurius virkar vel þegar vond lykt er úr eyranu, eyrnamergur er graftarkenndur, gulur, grænn eða brúnleitur og jafnvel eins og blóðlitaður vessi komi úr eyranu. Vanlíðan meiri að nóttu til. Oft er hálsbólga samhliða og eins og hella sé fyrir eyrum. Mercurius Iodatur flavus virkar betur á eyrnabólgu hægra megin, en Mercurius iodatus ruber ef eyrnabólgan er vinstra megin.
Calc Carb er þegar börn fá eyrnabólgu við hæga tanntöku. Þessi börn eru kulsæl og viðkvæm fyrir kulda, en þrátt fyrir það er þeim oft heitt á höfðinu og svitna mikið á höfðinu. Eyrnamergur er þykkur, gulur, lyktar ekki vel og verkir verða verri í köldum vindi. Hægðir eru oft súrar og oft harðar, sem erfitt er að losna við.
Hepar Sulph oft notað vegna stingandi verkja og lyktandi útskilnaðar. Bráða eyrnabólgu og einnig langvarandi eyrnabólgu, með verkjum og oft vond lykt úr eyrum. Barnið mjög viðkvæmt bæði tilfinningalega og líkamlega fyrir snertingu. Samhliða er oft þurr hósti. Ef eyrnabólga kemur í kjölfar hálsbólgu getur þessi remedía dregið úr hálsbólgunni og komið í veg fyrir að eyrnabólga þróist
Chamomilla hefur áhrif á óþolandi verk, sem eru verri í vindi, verri eftir sund, kemur oft við tanntökur. Verkir geta verið miklir, barnið pirrað og erfitt að gera því til hæfis. Það grætur oft hátt en líður oft betur við að láta halda á sér.
Aconite nýtist oft vel ef mögulegt er að nota hana um leið og vart verður við kvef eða eyrnaverk, sérstaklega eftir kulda. Einnig ef eyrnaverkur kemur mjög snögglega eftir að barnið hefur verið í köldum þurrum vindi. Barnið verður þá órólegt og fær mikla verki.
Allium Cepa virkar á verki sem leiða í hálsinn og með kvef samhliða eyrnabólgunni. Horið er þunnt, og veldur roða og særindum, í og umhverfis nefið. Einnig ef nefrennsli og eyrnabólga getur stafað af ofnæmi
Aðrar algengar remedíur sem eru góðar við eyrnabólgu eru t.d.: Apis, Nux vom, Kali Bi, Kali sulph, Kali mur, Ferrum phos, Lach, Mag phos, Silica, Sulph, Lycopodium, Mullein og Plantago.
Athugið:
Leitið tafarlaust til læknis ef eyrnabólgunni fylgir roði, bólgur og viðkvæmni í beininu fyrir aftan eyrað og samhliða því alvarlegir ákafir verkir.
Bestu kveðjur
Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir
Hómópatar LCPH