7. Blöðrubólga.
Blöðrubólga er mun algengari sjúkdómur meðal kvenna en karla.
Blöðrubólga er fremur algengur kvilli og er mun algengari sjúkdómur meðal kvenna en karla. Sjúkdómurinn er talinn frekar meinlaus í konum en getur verið mun alvarlegri í körlum. Orsök blöðrubólgu eru oftast bakteríur sem eiga uppruna sinn í ristli og endaþarmi, eins og t.d. E.coli, Klebsiella, Proteus mirabilis og Streptococcus faecalis. Aðrir sýklar geta líka valdið sýkingum eins og Herpes virus hominis, Chlamydia og jafnvel lekandabakterían.
Það er mikilvægt fyrir blöðruna að tæma blöðruna reglulega, því þannig ná sýklarnir síður að fjölga sér
Drekka skal mikið af vökva til að auka flæðið í gegnum líkamann og minnst 2 lítra á dag meðan á meðferð blöðrubólgu stendur. Helst vatn, en te og ferskur nýpressaður ávaxtasafi eru einnig góðir vökvar, eins og til dæmis sólberjasafa og trönuberjasafa (sem er gamalt og mjög gott húsráð). Einnig er mikilvægt fyrir konur að pissa eftir samfarir þar sem að hættan á bakteríusýkingu er mikil eftir samfarir. Mikilvægt er að klæða sig vel, því að kuldi hefur slæm áhrif á blöðrubólgu.
Hér að neðan er listi yfir nokkrar remedíur sem að hafa reynst vel við blöðrubólgu og ýmis mismunandi einkenni, sem gefa vísbendingar um hvaða remedía væri æskileg í viðkomandi tilfellum.
Ákafir verkir:
Einkenni koma snöggt:
- 1) Cantharis:
Einkenni koma snöggt og eru áköf. Miklir brennandi verkir, eins og þvagið sé sjóðandi
Mikill sviði undan þvagi á utanverum kynfærum.
Verri við að pissa; snertingu.
Betri við að pissa í vatni (t.d.. Í baði) - 2) Mercurius corrosivus:
Einkenni koma snöggt. Miklir brennandi verkir eins. Blóð kemur strax í upphafi bunu.
Slæm lykt af þvagi.
Verri á nóttunni, við að svitna og við hitabreytingar. - 3) Aconite:
Einkenni koma snöggt. Mikil særindi og brunatilfinning. Byrjar oft eftir að hafa orðið kalt. Kvíði, eirðarleysi og hiti fylgir og jafnvel hræðsla um að deyja.
Verri við kulda, tilfinningasveiflur og hræðslu.
Betri við ferskt loft og hita.
Mikil þörf fyrir að hafa þvaglát en án árangurs
- 1) Nux Vomica:
Mikil þörf fyrir að pissa. Þarf að fara oft, en lítið kemur. Mikill sársauki. Eins og geti ekki lokað þvagblöðrunni. Krampar. Pirringur og óþolinmæði
Verri við áreynslu (rembast), þrýsting, kulda.
Betri eftir að pissa, við hvíld og sitja í heitu baði. - 2) Pulsatilla:
Mikil þörf fyrir að pissa oft og jafnvel strax og eitthvað kemur í blöðruna. Þvag kemur í dropatali. Ekki eins mikill sársauki við þvaglát og hjá Nux.Vom.
Verri við að streitast á móti þörfinni fyrir að pissa., liggja á bakinu. Eftir þvaglát.
Betri við nudd, mjúkar hreyfingar og ferskt loft. - 3) Apis:
Mikil þörf fyrir að pissa. Brennandi, stingandi verkir sem versnar áður en er byrjað að pissa og um leið og byrjað er. Enginn þorsti. Þvag gruggugt og lítið þvag. Oft smá bjúg.
Verri við hita (heitt bað, drykki) snertingu.
Betri við kulda (kalt bað, drykki, loft), hreyfingu. - 4) Mercurius Corrosivus:
Sjá áður í kaflanum; ákafir verkir og einkenni koma fljótt.
Verkir verri við lok bununnar:
- 1) Sarsparilla:
Mjög algeng remedía við blöðrubólgu þar sem verkir eru meiri í lok bunu (95% tilfella).
Er mildari en Cantharis.
Þörf fyrir að pissa en verkirnir eru mjög sárir og verstir í lok bununnar. Erfitt að fá góða bunu og þarf helst að pissa standandi (konur)
Verri á nóttunni, við kulda og hreyfingu.
Betri við að standa. - 2) Natrum Carbonicum:
Lykt af þvaginu mjög sterk (eins og hesta piss) og dökk gult.
Brennandi verkir á meðan og eftir að pissar.
Verri við hita, og kalda drykki.
Betri við að borða, og betri við hreyfingu.
Bestu kveðjur
Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir
Hómópatar LCPH