8. Ungbarnamagakrampar

Fjöldi ungbarna þjást af magakrampa á fyrstu mánuðum ævinnar. Verkir og grátur byrja þegar krampakenndur samdráttur myndast í þörmum ásamt uppþembu á sama tíma af völdum vindgangs. Þetta gerist vegna þess að meltingarfæri barnanna eru enn óþroskuð. Eftir máltíðir þegar barnið hefur drukkið myndast þessir vindverkir og barnið grætur sárt. Magakrampar eru algengir, en þrátt fyrir það er ekki vitað af hverju sum börn fá þá en ekki önnur.
Ungbarnamagakrampar hafa mikil áhrif á tilfinningar foreldranna og oft eru afleiðingarnar, margar svefnlausar nætur með tilheyrandi álagi og áhyggjum. Þetta getur verið sérstaklega erfitt með fyrsta barn þar sem foreldrar eru oft óöruggir, yfir sig þreyttir og fá jafnvel ekki nægilegar leiðbeiningar né aðstoð.
Mataræði móður með barn á brjósti getur haft mikil áhrif á meltingu og vindspenning hjá barninu. Eftirfarandi eru nokkrar fæðutegundir sem taldar eru geta haft áhrif á barn sem er á brjósti. Það er t.d. epli, plómur, sítrusávextir og safi af slíkum ávöxtum, eins og t.d. appelsínusafi. Grænmeti og þá sérstaklega laukur og kál, reyktur matur, sterk kryddaður matur, pítsur, gosdrykkir, kaffi, te, lakkrís og súkkulaði , fitu, sætabrauð eða ís. Gott er að taka ofantalið úr fæðuvali, og bæta aðeins við einu atriði í einu í um 2 daga og prófa hvernig áhrif það hefur á líðan barnsins.
Misjafnt er hvað hægt er að gera til að róa börn vegna magakrampa:
Gott að reyna að fá barnið til að drekka hægar og láta það ropa oftar á milli sopa.
Reyna nýjar stellingar við brjóstagjöf, en mikilvægt að móðurinni verður að líða vel á meðan.
Sum börn róast við að liggja á grúfu á framhandlegg, strokið yfir bakið og gengið um gólf.
Önnur róast við að gengið sé með þau um gólf og ruggað ýmist hratt eða hægt
Sum börn róast við að vera ruggað rólega í fanginu, í vöggunni eða í barnarólum eða -stólum.
Öðrum líður betur við að vera í magapokum eða -sekkjum, sem næst líkamshita og andardrætti foreldris.
Önnur losa vind við að liggja á bakinu, fætur beygðir og hnjám þrýsta varlega upp að kvið.
Sum róast við að vera vafinn þétt í teppi og liggja alveg kyrr.
Önnur vilja að maginn sé nuddaður rólega - þá skal nudda í litla hringi, sem getur hjálpað barninu að losa vind.
Sumum líður betur á mjúkri hreyfingu eins og á ferð í bíl.
Sum vilja hlusta á róandi tónlist eða suðandi hljóð. Reyna þá að syngja fyrir barnið sem oftast róar einnig þann sem syngur.
Nauðsynlegt er að foreldrar magakrampabarns að hvílast vel á þeim tímum sem að barnið sefur, til að safna orku til að halda andlegu og líkamlegu jafnvægi. Andlegt ástand foreldra og þeirra sem sjá um barnið getur haft mikil áhrif á líðan þess.
Sem betur fer eru magakrampar ungbarna yfirleitt tímabundið vandamál. Yfirleitt gengur þetta yfir á um það bil fjórum mánuðum. Magakrampar eru yfirleitt ekki hættulegir og draga á engan hátt úr þroskaferli barnsins.
Hómópatískar remedíur hafa oft hjálpað mikið vegna magakrampa. Til þess að velja þá remedíu sem hentar best skaltu taka vel eftir viðbrögum barnsins. Dregur það sig saman með fætur upp að maga? Fettir það sig aftur á bak? Líður því betur ef þú heldur á því og þá hvort það vill fremur hægar eða hraðar hreyfingar?
Eldri börn geta einnig fengið magakrampa. Stundum eru það bara verkir, en í mörgum tilfellum fylgir því niðurgangur eða uppköst. Það getur stafað af ýmsum orsökum eins og t.d. óþoli fyrir einhverri tiltekinni fæðu. Einnig geta umhverfisáhrif eða tilfinningalegt álag haft mikil áhrif. Óöryggi í skóla, einelti, spenna á heimili, vanmáttarkennd og margt fleira getur komið þessu af stað. Hómópatía hefur oft reynst afar vel til að aðstoða þessa einstaklinga.
Belladonna: Krampar sem koma og fara. Barn skrækir og beygir sig fram eða aftur. Maginn er heitur viðkomu. Er eirðarlaust og oft með harðlífi.
Dioscorea: Krampar og pirringur. Barn reygir sig aftur. Ropar og hikstar. Líður verr við að liggja, vilja beygja sig saman, er verra á kvöldin og á nóttinni. Líður betur ef að teygir úr sér, reygir sig aftur og er á hreyfingu.
Chamomilla: Krampar og mikill pirringur, jafnvel reiði. Magi útblásinn og barninu líður ekki betur eftir að losa vind. Beygir sig saman (í L stöðu), sparkar, öskrar og ekkert gleður barnið. Magi er viðkvæmur fyrir snertingu. Barninu líður betur við hita, að láta rugga sér og vill láta halda á sér. Uppköst, kúgast og kaldsvitna. Oft grænn illa lyktandi niðurgangur. Einkenni byrja oft á milli 8-10 á kvöldin.
Colocynthis: Beygir sig saman (í L stöðu) og grætur ef reynt er að rétta það aftur. Er betra við þrýsting og að liggja á maganum. Engist af sársauka, er eirðarlaust og pirrað. Oft fylgir niðurgangur, sérstaklega eftir að hafa borðað ávexti. Er oft verra eftir að hafa drukkið eða borðað.
Mag. Phos.: Liggur í fósturstellingu með hnén dregin upp. Er betra við hita, heita bakstra, volgt vatn, við að beygja sig saman og að borða. Líður oft betur við mjúkt nudd á magann. Magi útþaninn, líður ekki betur við að ropa. Vill losa um fötin.
Pulsatilla: Magi útþaninn á kvöldin eftir að borða, sérstaklega ef mæður brjóstabarna hafa borðað ávexti, fitu, sætabrauð eða ís. Garnagaul í maganum. Niðurgangur og harðlífi til skiptis. Niðurgangur vatnskenndur, grænleitur og verri á nóttinni. Vill fá athygli, vera tekið upp og ruggað.
Aethusa: Barn meltir ekki mjólk og fær krampa, niðurgang, ógleði og uppköst. Kastar upp innan klukkutíma eftir að fær mjólk/mat. Æla inniheldur gula eða græna hlaupkekki. Svitnar, er máttfarið, eirðarlaust, kvíðið og vælið.
Allium Cepa: Magakrampar með kvefeinkennum.
Bryonia: Krampaverkir sem virðast verri við hreyfingu, þrýsting og í heitu herbergi. Líður betur ef liggur kyrr með hnén dregin upp. Pirrað.
Calc. Carb.: Barni er kalt, svitnar auðveldlega, sérstaklega á höfði og lyktar súrt. Líður verr við að verða kalt.
Nux Vomica: Barn pirrað, kúgast, en ælir ekki. Rembist við að losa hægðir en getur ekki. Líður verr eftir að borða. Er mjög kalt. Nux. Vom. er oft góð ef mæður brjóstabarna borða mikið kryddaðan mat, drekka vín eða eru að taka lyf.
Lycopodium: Vindgangur og losar vind ef borðar. Vill ekkert þröngt um magann. Líður verr á milli 16.00 og 20.00, vaknar upp um kl. 4.00 á nóttinni, er verra í heitu herbergi. Er oft verra ef móðir hefur borðað ostrur, mjólk, baunir, kál eða sætabrauð. Líður betur við ferskt loft.
ATH. Farðu strax til læknis ef:
• það eru svartar eða blóðugar hægðir.
• Það er mikil uppköst eða niðurgangur
• Barnð er fölt, slappt, sinnulaust eða með hita.
Bestu kveðjur
Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir
Hómópatar LCPH