• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

ónæmiskerfi

Skrifað 2010-02-03 · Sjúkdómar

.Almennar varnir eru fólgnar í því að bregðast við og hindra að sýklar berist inn í líkamann. 

 Um 80% af ónæmiskerfinu fer fram í meltingarveginum.  Almennar varnir eru fólgnar í því að bregðast við og hindra að sýklar berist inn í líkamann.  Almennar varnir eru m.a. húðin með öllum sínum hættulausu örverum.  Sviti og húðfita sem innihalda efni sem eyða sumum bakteríutegundum.  Hár í nefholi og slím í öndunarvegi sía sýkla í öndunarveginum.  Sýra og hvatar í magasafa drepa flestar örverur sem berast í meltingarveg.    Nái sýklar inn í vefi taka átfrumur, (t.d. risaátfrumur og kupfferfrumur) við þeim.  Ekki má gleyma bólgu, sem kemur af stað viðbragðahrinu.  Að lokum má nefna sótthita.


Sértækar varnir eru ónæmiskerfið sem í verkahring  sogæðakerfisins.  Frumur ónæmiskerfisins þekkja sín eigin efnasambönd. Aðskotaefni koma frumunum til að koma af stað ónæmisviðbrögðum sem eyða innrásarliðinu og varðveita innri stöðugleika.
Hvernig getur bólga átt þátt í að líkaminn endurheimti innri stöðugleika?
Bólga eyðir sýkingum.    Ef sýklar komast inn í vef myndast bólga.  Blóðæðar á svæðinu tútna og flæðið eykst . Húðin verður rjóð og heit, aukning á háræðaleka, og bjúgur myndast.  Einkenni bjúgs eru roði,  fyrirferð,  hiti og verkur.  Við aukið blóðflæði flykkjast átfrumur á staðinn svo ekki sé gleymt súrefni og næring.

Sumar bakteríur, sveppir og einfrumungar valda því að ákveðnar frumur framleiða interferón sem er prótein.   Interferón hvetur aðrar frumur til að mynda mótveiruprótein, sem kemur í veg fyrir fjölgun veira innan frumna.


Mótefnavaki er óvelkomnar, utanaðkomandi stórsameindir sem stórsameindir líkamans ráðast gegn.    Mótefni er  skipt í 5 flokka IgA,  IgD,  IgE,  IgG og IgM, en 75% tilheyra IgG og er eina mótefnið sem flyst yfir fylgju móður til barns.  Mótefni bindst mótefnavökum á yfirborði ókunnugs sýkils  svo hann missi hæfni til að sýkja fleyri frumur.     

           
T- eitilfrumur  eru afkomendur stofnfrumna í blóðmerg beinanna en fyrir fæðingu færa þessar frumur sig í hóstarkirtil þar sem þær ná frekari þroska áður en leið þeirra liggur  í eitilvef þar sem þær fjölga sér svo alla ævina.  Þeirra hlutverk er að ráðast að aðskotafrumum og veirum sem gera sig heimakomnar. 
B – eitilfrumur  eru einnig  afkomendur stofnfrumna í blóðmerg beinanna en fyrir fæðingu færa þessar frumur sig beint í eitilvef og fjölga sér þar alla ævina.  Þær sjá um mótefnamyndun í hringrásunum.
Frumumiðlað ónæmi  felst í því að ákveðnar  T- eitilfrumur  verða virkar í viðurvist mótefnavaka og ráðast beint að sýklunum og hvetja risaátfrumur til dáða.    Risaátfruma kannar mótefnavakann og kynnir hann fyrir eitilfrumunum.  Eitilfrumurnar stækka og fjölga sér með deiliskiptingu.  T-frumurnar sérhæfast til ákveðinna hlutverka og ryðjast að innrásarsvæðinu.  Mótefnamiðlað ónæmi  felst í að ákveðnar B-eitilfrumur verða virkar í návist mótefnavaka.  B-frumurnar fjölga sér og m-verða að plasmafrumum sem losa mótefni - antibody  og senda af stað eftir sogæðakerfinu til sýkta svæðisins.

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).