9. Baðolía - skrúbbkrem - hunangsmaski
![]()
Baðolía
Baðolía:
Ekki er alltaf nauðsynlegt að nota dýrar baðolíur því það er hægt að nota venjulega extra virgin ólífuolíu eða aðra olíu og bæta út í nokkrum dropum af uppáhaldsilmvatninu þínu og það er komin þessi fína baðolía.
Úr Natural Beauty by Genevieve Barnott Jones.
Kamillu og Salvíu Skrúbb krem
Gefur strax geislandi áhrif og hjálpar húðinni að láta frá sér eiturefni sem gætu orsakað erfiðleika seinna.
3 matskeiðar muldir (rolled oats) hafrar
1 matskeið muldar möndlur
1 matskeið kamilluduft (mjög fínt möluð kamilla)
1 matskeið fínmöluð Salvía
1 matskeið eppla edik
6 dropar kamillu ilmkjarnaolía
6 dropar salvíu ilmkjarnaolía.
Innihaldið er sett í litla skál og blandað saman með fingrunum.
Blandan er með þurrum kornum í.
Blöndunni er síðan nuddað á blauta og þurra húð, mjúklega með hringlanga hreyfingu út á við. Hreinsið af og klappið þurrt.
Þetta gefur um 6-7 meðhöndlanir og geymist í 3 mánuði á þurrum köldum stað.
Hunangs og Hafra Andlits Maski:
Þessi blanda er mild en losar um svitaholur og bætir áferð húðarinnar.
Þessa blöndu þarf að nota strax – geymist ekki.
½ bolli venjulegt haframjöl, soðið og kælt.
¼ bolli hunang.
Blandið saman í klístrað deig.
Berið þykkt á húðina, forðist augnsvæðið, látið vera á andlitinu í 20mín og hreinsið af.