10. Sveppasýking fyrri hluti
Ónæmiskerfið getur verið úr jafnvægi
Ónæmiskerfið getur verið úr jafnvægi, þannig að ofnæmi eða óþol geta valdið því að ónæmisvakar líkamans geti síður varist sveppasýkingum.
Tinea (húðsjúkdómar af völdum sveppa eða hringorma) er mjög smitandi, sem einkennist af kláða, roða, litabreytingum eða hrúðri á húð á viðkvæmum svæðum. Sveppasýking læknast ekki án íhlutunar. Hómópatía hefur ýmis ráð við slíkum vandamálum í samvinnu við einstaklinginn.
Ýmsar tegundir sveppasýkinga hafa hrjáð mennina og munum við aðeins minnast á nokkrar tegundir hér á eftir:
Næsti pistill mun fjalla um Hvítsveppasýkingu í húð – Þruskusveppur (Candida)
Fótasveppur - Sveppur á fótum (Tinea pedis)
Hvað er fótasveppur? Fótasveppur eru vegna sýkinga af völdum örvera sem nefnast sveppir. Sveppir sem algengast er að valdi fótsveppasýkingum eru þeir sem kallast dermatophytar en einnig sjást sýkingar af völdum candidasveppsins. Sveppirnir lifa á dauðum húðfrumum, hári og nöglum. Læknisheitið yfir fótsveppi er tinea pedis, dermatophytosis, eða athlete's foot.
Orsökin? Fótsveppir eru mjög algengur sjúkdómur. Undir venjulegum kringumstæðum eru ýmsar örverur á húðinni, bæði bakteríur og sveppir og eru þær nauðsynlegar líkamanum. Sveppirnir lifa á dauðum húðfrumum, hári og nöglum og eru yfirleitt skaðlausir. Við viss skilyrði getur þeim fjölgað of mikið og myndast þá sýking, sem ýmist geta verið af völdum einnar sveppategundar eða tengdar öðrum húðsjúkdómum. Raki og hlýja eru kjöraðstæður sveppa. Einstaklingum sem ganga langtímum í lokuðum skóm og þeim sem þrífa og þurrka illa fæturna þannig að húðin helst rök eiga því oftar við þessi vandamál að stríða. Einnig gera smásár á húð og nöglum sveppunum auðveldara að dafna. Fótsveppir eru smitandi og smitast bæði við beina og óbeina snertingu t.d. með handklæðum, skóm, sokkum og af gólfum, einnig berst smit með vatni s.s. í heitum pottum og sundlaugum. Fótsveppir eru ýmist tímabundið vandamál eða geta komið aftur og aftur og orðið þannig langtímavandamál.
Einkenni?
• Sýkingin byrjar á milli tánna og getur svo færst undir ilina, en fer sjaldnast upp á ristina.
• Kláði og jafnvel sviði verður á sýktu húðsvæði.
• Útbrot. Roði og bólga.
• Blöðrumyndanir, sem vessi getur lekið úr og skorpa myndast yfir.
• Húðin verður þurr og sprungur myndast.
• Neglur verða þykkar, hrufóttar og gulleitar að lit. 
Íþróttaskór halda raka og hlýju að fótum og mynda kjöraðstæður fyrir fótasveppi
Ráð til varnar fótasveppum.
Nauðsynlegt er að gæta hreinlætis en gæta þess jafnframt að óhóflegur þvottur getur einnig raskað eðlilegum hlutföllum örvera á húðinni, og aukið líkur á sveppasýkingu. Sumir einstaklingar eru móttækilegri en aðrir og fái sveppasýkingar mun oftar þar sem hvorki er hægt að kenna um sóðaskap eða heilsuleysi.
• Fótrakir einstaklingar skulu skiptia reglulega um sokka þannig að fætur séu ávallt svo þurrir sem mögulegt er. Notið bómullar- eða ullarsokka en forðist sokka úr gerfiefnum, þeir halda raka að fætinum. Skiptið um sokka a.m.k. tvisvar á dag og oftar ef þarf.
• Gangið í sandölum eða leðurskóm og forðist skó úr gerfiefnum. Gott er að skipta um skó eftir hvern dag þannig að þeir nái að þorna vel á milli.
• Þvoið ykkur reglulega og þurrkið ykkur vel á eftir. Notið svo lítið af sápu sem mögulegt er. Ef viðkomandi er í frjálslega vaxinn, er mikilvægt að þurrka vel allar húðfellingar.
• Forðist að nota annarra manna handklæði.
• Þvoið ykkur vel um hendurnar ef þið hafið snert sýkt svæði, einnig ef þið hafið borið á ykkur sveppakrem stuttu áður.
Naglasveppur (Tinea unguium)
Hvað er naglasveppur? Naglasveppur orsakast af húðsveppasýkingu. Til eru þrjár tegundir húðsveppa sem eggjast annað hvort á jörðina (geofile), dýr (zoofile) eða fólk (antropofile). Þeir sveppir sem orsaka fóta-og naglasveppasýkingu leggjast eingöngu á fólk. Algengustu tegundirnar eru kyrnissveppir (trichophyton mentagrophytes og trichophyton rubrum).
Orsökin? Naglasveppir geta herjað á neglurnar eða komið í kjölfar illa meðhöndlaðra fótsveppa. Fótsveppir geta dreift sér um allan líkamann og vaxið inn í nöglina.
Einkenni?
• Hvít skán á nöglinni.
• Þykknuð, mislit nögl.
Hvað er til ráða? Ganga ekki mikið í lokuðum skóm (t.d. íþrótta og gúmískóm). Þvo sér daglega um fæturna og leyf þeim að þorna vel áður en farið er í sokka og skó. Nota einungis bómullar- eða ullarsokka og forðist að nota skó úr gerfiefnum og nota helst leðurskó eða sandala.
Mjög erfitt getur verið að eiga við naglasveppi, sem geta verið þrálátir og komið aftur þrátt fyrir meðhöndlun.
Höfuðsveppur (Tinea capitis – Tinea tonsurans)
Hvað er höfuðsveppur? Höfuðsveppur er hringormur í höfuðleðri. Algengustu orsakir sem valda höfuðsvepp er afleiðing af Microsporum audouinii (þráðgródý) Microsporum canis og Trichophyton verrucosum (várur).
Orsökin? Í flestum tilfellum smitast einstaklingur við snertingu við dýr, t.d. hunda, ketti, kýr, hamstra og naggrísi. Flest spendýr hafa húðsveppi, sem ekki bera með sér nein einkenni og angra þau ekki á nokkurn hátt, en geta borist til mannsins. Börn eru sérlega í hættu og smitast af heimilisdýrunum. Það er erfitt að forðast þetta þar sem húsdýr eru mjög algeng á heimilum. Ef húð heimilisdýra sýnir einhver einkenni um óheilbrigði þá um að gera að fara með þau og láta líta á þau.
Einkenni? Tvö algengustu einkennin.
• Eitt eða fleiri svæði á höfði sýna hárlos eða virka eins og broddar. Húðin er hrjúf eða hreistruð, en ekki mikill ertingur. Samhliða þessum einkennum getur hringormur verið víða annars staðar á líkamanum.
• Mismunandi 6-9 cm skemmd húðsvæði sem geta orðið að stórum útbrotum. Í alvarlegum tilfellum getur hornefni með þrota og jafnvel greftri myndast á höfuðleðri. Það getur verið afar óþægilegt.
Ráðlegging? Best er að leita aðstoðar sem fyrst, bæði fyrir menn og dýr.
Búksveppur (Tinea corporis – Tinea versicolor – Pityriasis versicolor)
Hvað er búksveppur? Undirliggjandi sveppur er Pityrosporum orbiculare. Hringormar á líkamanum af tegundunum Epidermophyton floccosum (hærð húðþekja), Microsporum canis (þráðgródýr), Trichophyton tonsurans (hárlausar várur) and Trichophyton verrucosum (vörtóttar várur). Búksveppur getur valdið sýkingu á höfuðleðri, allri húð, fingrum, tánöglum og fótum.
Einkenni? Hvítir blettir á húð sem ekki taka lit í sól
Orsökin? Búksveppur getur smitast frá jarðvegi (geophile), dýrum (zoophile) og mönnum (anthropophile).
Klofsveppur (Tinea cruris einnig þekkt sem Hock Itch)
Hvað er klofsveppur? Klofsveppur er hringormur sem veldur sýkingu í nára og stundum á pung: Hægt er að aðgreina í 3 tegundir sveppa miðað við hýsil. Klofsveppur er aðallega smit frá sveppum sem þrífast á mönnum (anthropophile) og helstu tegundir eru Epidermophyton floccosum and Tricophyton rubrum.
Orsökin? Næstum allir hafa að minnsta kosti eina tegund sveppa sem getur valdið sýkingu í nára. Sveppirnir nærast á dauðum húðfrumum og eru venjulega meinlausir. Þeir kjósa hlýja raka staði og eru oft vandamál fyrir fólk sem lifa virku kynlífi eð fólk sem hugar ekki nægilega að hreinlæti. Sýkingin smitast auðveldlega við snertingu og einnig ef fólk notar sama handklæði. Ástandið er algengara hjá körlum en konum.
Einkenni?
• Sýkingin lýsir sér iðulega á stórt, hrúðrað, rauð-brúnt svæði á nárasvæði. Hjá körlum getur þetta dreift sér út yfir punginn.
• Brúnir umhverfis sýkt svæði hefur iðulega ólíkan húðlit og tilfinningu en ósýkt svæði.
• Iðulega kláði og sviðatilfinning á sýktu svæði.
• Sýking er virkust á jöðrum sýktra svæða.
Ráðlegging? Gott hreinlæti er nauðsynlegt til að koma í veg fyrir klofsvepp. Skipta um nærföt daglega.
Ýmis heilræði
Eplaedik (óblandað) bæði gott til að bera á útvortis og einnig til inntöku, daglega 1-2 msk í vatn.
Hvítlaukur inniheldur sveppadrepandi efni og hafa rannsóknir sýnt að hann gefi góða raun gegn fótasveppum. Skerið hvítlauksgeira í tvennt og nuddið varlega yfir sýkta svæðið daglega. Einnig er hægt að strá hvítlauksdufti í sokkana áður en að farið er í þá. Gæti þó ert húðina ef notað óhóflega.
Mentol berið mentoláburð á fæturna. Fara skal varlega ef að blöðrur hafa myndast eða mikill roði, sviði er til staðar og svæði viðkvæmt.
Kjarnaolíur : Tea tree olía, Appelsínuolía, Fennelolía, Piparmyntuolía, Blóðbergsolía, Einisolía og Blágúmmítrésolía geta allar hjálpað til að komast fyrir fótasveppasýkingu.
Teetreeolía (Tea Tree Oil) borin útvortis getur dregið úr einkennum (sérstaklega kláðanum). En það vinnur ekki á undirliggjand svepp sem veldur sýkingunni.
Vitamin E borið á útvortis getur í sumum tilfellum læknað sveppasýkingu eða dregið verulega úr einkennum.
Vitamin C samhliða inntöku að leggja C vítamín duft á svæðið getur í sumum tilfellum drepið sveppinn.
Calendula mulin krónublöð eða smyrsl lagt á útvortis, gæti hjálpað til að lækna sveppasýkingu.
Aloe Vera borið á svæðið fjórum sinnum á dag gæti í sumum tilfellum drepið sveppinn sem veldur sýkingunni
Echinacea (sólblóm) getur verið góð vörn gegn sveppasýkingum og einnig læknað sýkingar. Sólblómafræ hafa talist góð til að byggja upp ónæmiskerfið. Sumir einstaklingar með frjóofnæmi hafa þó haft óþol fyrir sólblómafræum
Propolis (krem eða tinctura) gæti dregið úr sveppasýkingum
Manuka olía eða Neem olía bornar á svæðið gæti drepið sveppina.
Ráðlagt er að hafa samband við Hómópata þegar þarf að ráða niðurlögum sveppasýkinga þar sem meðferðin er mjög sérhæfð og því er ekki upptalning á remedíum hér heldur aðeins rætt almennt um þetta vandamál.
Bestu kveðjur
Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir
Hómópatar LCPH