• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

11. Sveppasýking - síðari hluti

Skrifað 2008-05-07 · Pistlar

Ýmsar tegundir sveppasýkinga hafa hrjáð mennina

Ónæmiskerfið getur verið úr jafnvægi, þannig að ofnæmi eða óþol geta valdið því að ónæmisvakar líkamans geti síður varist sveppasýkingum.
 
Ýmsar tegundir sveppasýkinga hafa hrjáð mennina og minntumst við á nokkrar tegundir í síðasta pistli.  Nú tökum við fyrir algengustu tegundina sem er Candida, en meðhöndlun þessa kvilla gengur yfirleitt vel með góðri samvinnu hómópata og viðkomandi einstaklings. 

Hvítsveppasýking í húð - Þruskusveppur (Candida albicans)

Margskonar örverur, þar á meðal sveppir þrífast á og í líkamanum.  Margar örveranna eru nauðsynlegar í ákveðnu magni og ákveðnum hlutföllum í réttum hlutföllum og samsetningum.   Þeirra verður ekki vart fyrr en samsetning þeirra breytist, þannig að ein tegund byrjar að fjölga sér hömlulaust.

Þá myndast sýking í húðinni eins og t.d. hvítsveppasýking sem orsakast af þruskusveppi (candida albicans). Candida albicans er einfrumu-sveppur sem er alltaf til staðar í líkama okkar og getur orðið hvar sem er á húð og slímhúð.  Sveppurinn lifir best í raka og hita.  Smithætta getur stafar af hvítsveppasýkingu og sérstaklega sveppasýkingu á slímhúð, t.d. á kynfærum.  Sýking smitast við snertingu eins og við samfarir og óbeina snertingu, t.d. við að nota sama handklæði eða sömu föt.

Þruska í munni er vegna þess að Candida albicans sveppurinn hefur orðið stjórnlaus.  Flest heilbrigt fólk hefur eitthvað örlítið magn af þessum sveppum í munninum, meltingafærunum og einnig á húðinni.  Hann er venjulega ekki sjáanlegur og undir eðlilegum kringumstæðum verður maður ekki var við hann þar sem hann er hluti af eðlilegri þarmaflóru.  En þegar jafnvægið er truflað, eins og t.d. við lyfjagjafir, þá fjölgar hann sér fram úr öllum eðlilegum mörkum og  veldur ýmsum óþægindum, og þá aðallega í húðfellingum, undir brjóstum, í nára og kynfærum, í og umhverfis munn, hring um endaþarm og getur einnig komið fram á húðinni. 

Hvítsveppasýking hjá einstaklingum með ónæmisbælingu getur dreifst um allan líkamann og myndað viðvarandi slímhúðar sveppasýkingu en það ástand getur orðið lífshættulegt ef sýkingin berst í blóðið.

Þruska í munni veldur hvítkremaðri slikju, venjulega á tungu eða innan á kinnum.  Einnig getur hún breitt úr sér upp í góminn, á gómana og aftur í hálsinn og hálskirtlana.  Þaðan getur hún breiðst niður vélinda og niður í meltingarveginn.  Munnurinn getur verið viðkvæmur og smávægis blæðingar í gómi við að bursta tennur. 

Sveppasýking í meltingarfærum af völdum Candida sveppsins verður oftast í munni, vélinda og á húðsvæði við endaþarmsopið. Slík sýking er ekki óalgeng hjá ónæmisbældum einstaklingum, s.s. sjúklingum með alnæmi og sjúklingum á ónæmisbælandi lyfjameðferð, t.d. karabbameinssjúklingum og sjúklingum á sterameðferð, t.a.m. sterainnúðameðferð hjá astmasjúklingum. Slíkar sýkingar geta þó komið hjá heilbrigðum einstaklingum. Sveppasýking í munnholi og vélinda getur valdið kyngingarerfiðleikum og særindi við kyngingu og brjóstverkjum. Sveppasýking við endaþarm getur valdið kláða og særindum. Sveppasýking í maga, smáþörmum og ristli er afar sjaldgæf. Sumir halda því fram að sveppasýking í meltingarfærum valdi ýmsum kvillum, s.s. mígreni, fæðuóþoli, útbrotum, ofnæmi o.fl.. en hefur það aldrei verið sannað og verður að teljast órökstudd kenning. Ýmis sveppalyf eru notuð við ofangreindar sýkingar í töfluformi, mixtúru eða kremáburður.

Ert þú með gersveppaóþol (Candida Albicans)?   Svaraðu eftirfarandi spurningum og athugaðu líkurnar
1. Ertu stöðugt þreytt(ur)?
2. Færðu oft vindverki, uppblásinn maga eða óþægindi frá kvið?
3. Ertu með sterkar sykurlanganir, borðar mikið brauð eða ertu fíkinn í bjór eða aðra áfenga drykki?
4. Þjáistu af hægðartregðu, niðurgangi eða af hvorutveggja á víxl?
5. Sveiflastu mikið í skapi eða þjáistu af þunglyndi?
6. Ertu oft pirruð(aður), reiðistu auðveldlega eða ertu oft kvíðin(n)?
7. Áttu erfitt með að hugsa skýrt, ert utan við þig eða áttu erfitt með að einbeita þér?
8. Svimar þig stundum?
9. Ertu með verki í liðamótum, t.d. í hné, olnboga, úlnlið eða öxl?
10. Áttu það til að fitna án þess að breytingar séu á mataræði þínu?
11. Ertu með sviða, kláða eða óþægindi frá leggöngum eða blöðruhálskirtli?
12. Ertu með minnkaða löngun í kynlíf?
13. Hefurðu tekið sýklalyf?
14. Notarðu eða hefurðu notað getnaðarvarnarpilluna?

Hefurðu einhvern tíma tekið steralyf, s.s. cortisone?
Teldu hversu mörgum spurningum þú svaraðir játandi til að athuga líkur á gersveppaóþoli:


                                         Fjöldi ,,Já" svara             Líkur
                                         11 eða fleiri                     Mjög miklar
                                         7 til 10                             Miklar
                                         5 til 6                               Hóflegar
                                         4 eða færri                       Litlar
Einkennin
Þessi einkenni geta verið: Harðlífi, niðurgangur, ristilbólgur, verkir í kviðarholi, höfuðverkir, andremma, kláði við endaþarm, getuleysi eða áhugaleysi á kynlífi, minnisleysi eða einbeitingarskortur, skapsveiflur, bólgur í blöðruhálskirtli, sár í munni, brjóstsviði, vöðva- og liðverkir, særindi í hálsi, mikil slímmyndun í nefi og/eða koki, doði í andliti eða útlimum, slæm húð, bólur, exem, nætursviti, kláðablettir, sviði í tungu, hvítir blettir á tungu og í munni, ástæðulaus þreyta, sveppasýkingar í leggöngum og/eða útferð, blöðru- og þvagrásarsviði, liðagigt, þunglyndi, kvíði, köfnunartilfinning (oföndun), hjartsláttarköst - þyngsli og verkir fyrir brjósti, svefntruflanir, flasa, bjúgsöfnun, vöðvabólga og festumein í baki og vandamál við að halda sig í réttri líkamsþyngd.   krónískur hósti og mikil slímmyndun.  Sjúkdómseinkennin eiga það til að versna í raka eða reyk.

Batahorfur

Þruskusveppasýking getur verið þrálátt vandamál og tekið sig upp aftur og er mikilvægt að vera undir það búinn.  Það þarf ekki nema eina lyfjameðferð eða álag sem getur ýtt undir Candidaójafnvægi.

Hómópatar hafa náð góðum árangri í meðferð á Candida.  Samvinna hómópatans og einstaklingsins er nauðsynleg til að ná skjótum, afgerandi bata.  Eftir fyrstu meðferð er mun auðveldara að ráða niðurlögum Candida þar sem hægt er að bregðast strax við áður en vandinn verður of mikill.

Ráðlegging

Mjög algengt er að fólk með gersveppaóþol þjáist einnig af fæðuofnæmi ýmis konar.   Ger og þar með talinn gersveppurinn, nærist á sykri. Nauðsynlegt er því að Forðast þarf allan sykur, allt ger, allt hvítt mjöl. Varlega þarf að fara í neyslu mjólkurvara þar sem fólk sem er með gersveppaóþol er oft einnig með mjólkuróþol.
Brauð: Hægt er að versla súrdeigsbrauð í Brauðhúsinu í Grímsbæ. Brauðin fást einnig í heilsubúðum og í einhverjum stórmörkuðum, eins og Hagkaupum. Varastu gerlaus brauð í bakaríum því þau innihalda langoftast sykur. Álegg:  Kæfur innihalda gjarnan ger eða sykur. Hægt er að fá gerlausar kæfur í heilsuverslunum.  Það er ágætis þumalfingursregla að kaupa ekki vörur sem eru með fleiri en tveimur e-efnum. Hvað ostana varðar er ráðlegt að prófa sig áfram. Sumir þola brauðost en varast skal alla mygluosta, þ.á.m. osta með hvítri myglu, eins og brie og camembert. Í heilsubúðum fást ljúffeng hnetu- og möndlusmjör sem eru án sykurs.   Matreiðsla: Elda skal úr óunnu hráefni. Ferskur fiskur og óunnið kjöt. Svo er líka gaman að prófa sig áfram í grænmetisréttum. Varast kryddblöndur nema frá Pottagöldrum en passa samt að lesa innihaldslýsingu. Einnig er hægt að finna úrval góðra krydda í heilsuverslunum og heilsuhornum stórmarkaða.  Þar fæst gerlaus grænmetiskraftur í stað teninganna sem flestir nota.  Hættu alveg að kaupa hvítt pasta og skiptu yfir í spelt- eða heilhveitipasta. Einnig er hægt að kaupa pasta úr t.d. bókhveiti og hrísgrjónum.   Hættu að nota hvít grjón og skiptu alfarið yfir í híðishrísgrjón.
Nauðsynlegt er að gæta hreinlætis en gæta þess jafnframt að óhóflegur þvottur getur einnig raskað eðlilegum hlutföllum örvera á húðinni, og aukið líkur á sveppasýkingu.  Sumir einstaklingar eru móttækilegri en aðrir og fái sveppasýkingar mun oftar þar sem hvorki  er hægt að kenna um sóðaskap eða heilsuleysi.  Klæðist fatnaði sem leyfir húðinni að anda og halda ekki að henni raka. 

 

Ráðlagt er að hafa samband við Hómópata þegar þarf að ráða niðurlögum sveppasýkinga þar sem meðferðin er mjög sérhæfð og því er ekki upptalning á remedíum hér heldur aðeins rætt almennt um þetta vandamál.


Bestu kveðjur
Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir
Hómópatar LCPH

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).