• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

12. Ofbeldi

Skrifað 2008-05-09 · Pistlar

Ýmiskonar ofbeldi virðist hafa viðgengist í tímanna rás

Ýmiskonar ofbeldi virðist hafa viðgengist í tímanna rás, án þess að einstaklingar hafa getað borið hönd fyrir höfuð sitt á nokkurn hátt.  Börn eru afar viðkvæm og eiga oft ekki auðvelt með að gera sér grein fyrir aðstæðum og fyllast ýmist reiði eða sektarkennd og eru tilbúin að taka ábyrgðina yfir á sig.  Þegar árin líða er tilfinningalíf þeirra brostið og þroskast ekki eðlilega.  Ofbeldi getur verið í ýmsum myndum, bæði andlegt og líkamlegt.  Afleiðingar hvers konar ofbeldis geta verið það alvarlegar að einstaklingur  situr uppi sem niðurbrotinn einstaklingur, ófær um að geta unnið eðlilega úr sínu lífi án hjálpar. 

Síðastliðin ár hefur orðið vakning til að uppvísa ástandið og gera einstaklingum ljóst að þú átt ekki að þurfa að líða öðrum að beita þig sífelldu ofbeldi, hvorki líkamlegu né andlegu.  Ofbeldi getur verið margskonar, eins og t.d. einelti í skólum eða vinnustöðum, barsmíðar eða sífelldar skammir og neikvæðar útásetningar, kynferðisleg áreitni eða misnotkun,  og svo má lengi telja.

Ótti, örvænting, reiði, skömm og uppgjöf, eru ríkar tilfinningar þeirra einstaklinga sem verða fyrir ofbeldi.   Tilfinningarnar taka stjórnina á lífi einstaklinganna og getur verið harður húsbóndi. Ótrúlegt en satt, enginn utanaðkomandi veit eða sér neitt.  Enginn getur eða vill tjá sig.  Börnin koma jafnvel fram eins og þau séu bara vel upp alin, kurteins og laus við að vera frökk.  Önnur fá hegðunarvandamál því þau ráða ekki við tilfinningarnar og þau fá jafnvel einhverja greiningu og eru sett á lyf vegna ofvirkni og athyglisbrests.  Allt fram til fullorðinsára getur þetta nagað og kvalið einstaklingana, ef þeir ná ekki að tjá sig og fá  einhverskonar hjálp.  Þetta breytir atferlismynstri og getur því jafnvel haft áhrif á nokkrar kynslóðir.

Skammir eru notaðar til að breyta hegðun barna þegar hefur ekki hegðað sér á ákveðinn hátt.  Barnið veit jafnvel ekki hvað það hefur gert rangt meðan það lærir hvað ætlast er til af manni í lífinu.  Skammir eru því verkfæri sem fullorðnir þurfa að gera sér grein fyrir að getur verið vandmeðfarið verkfæri.  Hægt er að skamma á uppbyggilegan hátt, en einnig þannig að hægt er að brjóta niður tilfinningar einstaklings þannig að hann á sér vart uppreisnar von. Skömmin verður yfirgnæfandi yfir allar gerðir, útlit og sjálfstraust lítið sem ekkert.

Kynferðisleg misnotkun hefur verið mikið til umræðu í þjóðfélaginu að undanförnu.  Sorglegir atburðir flæða upp á yfirborðið og afleiðingar þeirra atburða eru nöturlegar.  Því miður er “sneypa”  helsta tilfinning sem grípur barn eftir kynferðislega misnotkun.  Það veldur því að barnið lokar allt inni og segir engum frá.  Sum reyna að tjá sig en hafa mætt vantrú, og verið fljót að loka sig endanlega með sína vanlíðan.
 
Börn sem alast upp í fjölskyldu þar sem misnotkun vímuefna, lyfja eða þar sem börn hafa verið beitt líkamlegu eða andlegu ofbeldi eru uppfull af tilfinningum, en skammast sín svo fyrir fólkið sitt að þau vilja helst ekki að neinn fái að vita hvað gengur á.  Skömmin verður barnsins og allt sem það gerir getur orðið til þess að það skammast sín og sjálfsmatið brenglast.  Birst hefur bókin “Uppkomin börn alkahólista” eftir Árna Þór Hilmarsson sem gefur þessu afar góða mynd.  Fæst þessi bók bæði í Eymundsson og í Betra líf. Önnur góð bók er “Hvað er málið” eftir Berglindi Sigmarsdóttur og Sigríði Birnu Valsdóttur.

Margir verða svo skertir sjálfstrausti að þeir láta stjórnast af skoðunum annarra og jafnvel er þörfin yfirþyrmandi að vita hvað öðrum finnst og gengur það fyrir eigin löngunum.

 

Hjálp

Ýmsar leiðir eru í boði til aðstoðar þeim einstaklingum sem hafa lifað af ofbeldi.  Mismunandi leiðir henta hverjum einstaklingi og þarf hann að skoða vel hvað er í boði og hvað hentar honum

Stundum vinna hlutir vel saman og er hómópatía eitt af þeim verkfærum, sem hafa hjálpað einstaklingum ótrúlega vel til hjálpar og að auðvelda þeim að nýta annað sem í boði er á auðveldari og jákvæðari hátt.  En þetta er einnig matsatriði eins og allt annað, hvort það hentar eða ekki. 


Nokkrar remedíur eins og t.d:
 
Anacardium, Carc, Colocynthis, Ignatia, Lycopodium, Natrum-muriaticum, Palladium, Phosphoricum-acidum og Staphysagria hafa reynst vel þegar afleiðingar ofbeldis og niðurlægingar, hafa valdið veikindum andlegum eða líkamlegum.  
Colocynthis, Ignatia og Staphysagria hafa hjálpað mörgum þegar einstaklingur er fullur af reiði eða gremju.
Carc og Staphysagria hafa hjálpað mörgum þegar afleiðingar eru vegna skamma og refsinga.
Aconitum, Arnica, Carc, Ignatia, Natrum-muriaticum, Op og Staphysagria hjálpa mörgum sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi og er Staph einstaklega góð þegar skömmin og sjálfsásökunin er annars vegar.
Arnica, Carc og Staphysagria hafa reynst vel mörgum sem hafa orðið fyrir ýmsu líkamlegu ofbeldi.
Anacardium, Aurum, Carc, Lycopodium og Staphysagria  eru einnig afar góðar þegar sjálfstraustið er í lágmarki

Einnig eru fleiri remedíur sem hafa gefið góða raun.  Þessar remedíur eru yfirleitt gefnar í það háum styrkleika að ekki er hægt að fá þær keyptar í apótekum eða heilsubúðum og er því nauðsynlegt að leita til Hómópata.


-------

Eins og minnst var á hér að ofan,  vinnur Hómópatían oft vel með öðrum meðferðarformum.

Við viljum hvetja alla þá sem hafa orðið fyrir ofbeldi í hvaða mynd sem er, og eru að glíma við afleiðingar þess, að leita sér aðstoðar hjá sérfræðingum sem þeir treysta.  


Bestu kveðjur
Sigrún Árnadóttir
Sigríður Bjarnadóttir
Hómópatar LCPH.

 


http://www.blattafram.is
http://www.amnesty.is
http://groups.msn.com/einelti ,
http://www.regnbogaborn.is/
http://www.kvennaathvarf.is/
http://www.stigamot.is/
http://www.abotinn.is/barnaheill/index1.htm
http://www.barnahus.is

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).