13. Ferðalög og Remedíur.
Ýmislegt getur komið upp á í ferðalögum
Nú er kominn sá árstími sem flestir fara í ferðalög, hvort sem er heldur sumarfrí eða önnur styttri frí. Við höfum rekið okkur á að það er margt sem fólk hefur áhyggjur af áður en það fer í fríið, þrátt fyrir tilhlökkun.
Ýmislegt getur komið upp á í ferðunum og því gott að vita hvaða remedíur gætu hjálpað við mismunandi uppákomur, því víða erlendis, sérstaklega í Evrópu og Indlandi, eru seldar remedíur í apótekum eða heilsubúðum, sem auðvelt er að nálgast. Ef remedíurnar eru í styrkleika 30c þarf að taka þær nokkuð oft.
Hér á eftir eru nokkrar “ferða” remedíur sem er gott að vita af.
Skordýrabit og stungur: APIS
Bjúglíkar bólgur. Roði. Verkir brennandi og stingandi. Óróleiki. Án þorsta.
Betra: Kalda bakstra. Verra: Fær hita kl. 16-18.
Flughræðsla : ARGENTUM NITRICUM – Arg-Nit.
Einnig gagnlegt við kvíða af fyrirsjáanlegum atvikum (s.s. sviðsskrekk) og uppþembu í meltingarvegi (ropa / vindgangi).
Slys, meiðsli eða líkamleg þrekraun: ARNICA – Arn.
Ætti að vera fyrsta valið eftir flest slys, meiðsli eða líkamlega þrekraun. Gefið fljót mun þetta draga úr bólgum og mari.
Betra: Liggjandi með höfuðið lágt.
Verra: Hristing eða liggjandi á meiddum hluta.
Matareitrun: ARSENICUM – Ars.
Einkennist af mikilli líkamlegri örmögnun með andlegum óróleika. Sjúklingur vill ekki vera skilinn eftir einn. Verkir og vessar eru brennandi, samt er sjúklingnum hrollkalt og öll einkenni, nema höfuðverkur, eru betri við hita. Þyrstur og vill súpa oft, yfirleitt heita drykki.
Betra: Hlýju; liggjandi. Verra: Miðnætti – kl. 3.
Sólstingur: BELLADONNA – BELL.
Er góð við mjög háum hita. Þrútið svæði eða allur líkaminn er brennandi, rauður og heitur. Augun eru sviplaus og ljósopið útvíkkað. Upphaf umkvartana eru snöggt. Hraður púls. Sjúklingur getur verið reiður, verið með óráði og jafnvel séð ofsjónir. Þyrstur og sítrónusafi oft á óskalista.
Betra: Liggjandi. Verra: Snertingu eða hristandi hreyfingu; kl. 15.
Hægðatregða á ferðalögum: CALCAREA CARBONICA – Calc-Carb
Oft góð þegar fólki gengur illa að hafa hægðir annarsstaðar en heima hjá sér.
Einnig mjög góð við seinni, erfiðri tanntöku.
Betra: Harðlífi; þurru veðri.
Verra: Hátt uppi; verða kaldur eða blautur; tanntöku; af mjólk.
Sólbruni og blöðrubólga: CANTHARIS – Cant.
Úrbót nr. 1: við áköfum verkjum vegna bruna – líka sólbruna. Oft árangursrík við meðhöndlun á blöðrubólgu, þegar það eru brennandi verkir fyrir, með og eftir þvaglát. Ákafur geðrænn og líkamlegur pirringur. Upphaf er snöggt og ofsafengið. Verkir eru skerandi og brennandi. Sjúklingar hafa brennandi, ákafan þorsta, en líður verr eftir drykkju (sérstaklega kaldra drykkja).
Betra: Kaldir bakstrar.
Verra: Snerting
Sumarkvef: DULCAMARA – Dulc.
Kvef sem kemur við veðrabreytingar og sérstaklega við að fara úr hita í kulda, sbr. í heitum löndum þegar er farið inn úr hitanum í loftkæld herbergi og viðkomandi kvefast. Kvefið versnar við að vera í raka og í köldu, röku veðri.
Verra við veðrabreytingar og dragsúg. Betra við hita, þurrt loft og hreyfingu.
Hella fyrir eyrum í flugi: KALI MUR (tissuesalt)
Getur einnig hjálpað til við að losa um stíflaða eyrnaganga. Vökvi í eyrum.
Góð til að losna við sinadrátt.
Betra: Hreyfing, kaldir drykkir, nudd.
Verra: feitur þungur matur, sætabrauð, hreyfing.
Áblástur – frunsur: NATRIUM MURIATICUM – Nat-Mur.
Ef frunsa er á vörunum, með engum öðrum sterkum einkennum. Algengt í sól.
Áríðandi úrbót við þögulli sorg (láta ekki á neinu bera).
Miðjan á neðri vörinni getur verið með djúpri sprungu. Útferði eins og eggjahvíta. Þrá salt.
Betra: Liggjandi; í hvíld; við að svitna.
Verra: Í hita, sérstaklega sólarhita.
Þynnka, meltingartruflanir: NUX VOMICA – Nux-v.
Meltingartruflanir eftir of-dekur eða eftir mikið kryddaðan mat. Þeir sem þjást af meltingartruflunum og þó þeim líði miklu betur eftir að æla, á finnst þeim erfitt að gubba. Til að ná sem bestum árangri, skal taka remedíuna nokkrum klukkustundum áður en farið er í rúmið. Gott að taka áður og eftir að áfengi er drukkið. Takist mjög þétt við meltingartruflunum.
Betra: Hvíld; hlýja og heitir drykkir. Verra: Að morgni.
Tognun og ofreynsla: RHUS TOXICODENDRON – Rhus-tox.
Stífleiki, samfara óróleika. Verkir yfirleitt kringum liðamót, sem verkja, eru aum og marin. Verkurinn versnar við fyrstu hreyfingu, með tætandi eða stingandi tilfinningu, en þetta lagast til muna eftir viðvarandi hreyfingu, að því tilskildu að hún sé ekki of erfið.
Virkar á stóra vöðva (bak, læri o.fl.) og stærri liðamót (mjaðmir, axlir o.fl.).
Betra: Hita, áframhaldandi hreyfingu. Verra: Raka, kalt veður, fyrstu hreyfingu.
Meiðsli á sinum og yfirborði beina: RUTA
Virkni Ruta eru dýpri, en hefur ekki eins skýra mynd og Rhus-tox. Því fylgir ekki eins mikill óróleiki. Finnst beinið skaddað. Gagnlegt við meiðslum á úlnlið; hnjám; ökklum eða beinum með þunnu holdalagi (t.d. sköflungi). Virkar á smærri vöðva og liðamót.
Betra: Við hreyfingu. Verra: Fyrstu hreyfingu. Liggjandi á slæma hlutanum, hvíld..
Gönguferðir:
Við ofreynslu í gönguferðum eða öðru líkamlegu álagi er gott að hafa blöndu af Arnicu, Rhus Tox og Rutu, eða taka þær til skiptis og allt verður mikið auðveldara fyrir líkamann.
Ferðaveiki:
Cocculus: sjóveiki með svima í höfðinu, líður betur við að liggja út af, tómatilfinning
Petroleum: ógleði, líður betur við að borða, verr í fersku lofti, höfuðverkur fylgir.
Tabacum: mikil ógleði, líður betur í fersku lofti og betur eftir að hafa ælt.
Nux - vom: ógleði eins og ætli að líða yfir mann, suð fyrir eyrum.
Góða ferð inn í sumarið
Sigrún Árnadóttir og Sigríður Bjarnadóttir
Hómópatar LCPH.