• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

1. Hvað er hómópatía

Skrifað 2007-07-27 · Pistlar

Hómópatía er bæði notuð varðandi bráðatilfelli (meiðsli, flensur, sýkingar o.fl.) og krónísk tilfelli (ofnæmi, exem, verki o.fl.).  Þetta er afar milt meðferðarform bæði fyrir börn og fullorðna. það sem er mikilvægt, er að þetta hefur ekki áhrif á meðferðir eða lyf hefðbundinna læknismeðferða.

Það tekur 4 ár, í nær samfelldu námi, að læra hómópatíu og veitir ekki af, til þess að fá grunnskilning á hvernig þetta virkar.  En þegar námi lýkur þá byrjar fyrst fyrir alvöru praktískur lærdómur.  Eftir að hafa starfað sjálfstætt um tíma, höfum við öðlast mun meiri skilning og þekkingu á hvernig við getum aðstoðað þá sem leita til okkar.

Fyrir hverja remedíu er lýsing á einkennum sem tengjast í aðalatriðum líkamlegum og andlegum einkennum sem geta hrjáð manninn.  Einkenni eru vísbending um það ójafnvægi sem dylst bakvið hver veikindi eða óþægindi hvort sem um er að ræða andlegt eða líkamlegt.

Hómopatía lítur á mannveruna sem samþættan einstakling, þar sem líkami – andlegur þáttur – og tilfinningar skipta allt máli.  Hver einstaklingur er ekki ósvipaður púsluspili þar sem hvert stykki skiptir máli.  Þess vegna þarf að spyrja afar margvíslegra spurninga til að finna réttu stykkin í púsluspilið og af þeim orsökum geta 10 einstaklingar komið með samskonar einkenni, en enginn fengi sömu meðhöndlunina.

Sumir halda að með því að leita til okkar ættu öll einkenni að hverfa á örfáum klukkustundum.  Í sumum tilvikum geta einkenni horfið á örfáum mínútum, en í öðrum tilfellum getur þurft þolinmæði áður en einhverjar breytingar verða.  Ef um langvarandi sjúkdóma er að ræða, þá þarf mun lengri tíma til að ná árangri, og þá þarf virkilega samvinnu sjúklings og hómópata.  En þá byggist einnig upp varnarkerfi líkamans samhliða bata og engar aukaverkanir sljóvga eða trufla einstaklinginn á sama tíma.  Ekki gera remedíur heldur gagn með því að standa uppi á hillu og vera ekki teknar inn.

Hómópatískar remedíur virka afar ólíkt hefðbundnum lyfjum.  Hefðbundin lyf ráðast á sjúkdóminn, en samhliða eru ýmis aukaefni sem geta haft óþægilegar afleiðingar. Remedíur vinna þannig að þær hvetja líkamann til að vinna sjálfan á móti einkennum og eru algerlega skaðlausar.  T.d. geta sýklalyf samhliða því að vinna á bakteríum haft afar slæmar afleiðingar á meltingarveginn þannig að sveppasýkingar eru að verða stórt vandamál bæði meðal barna sem fullorðinna.  Remedíur brjóta ekki niður samhliða uppbyggingu.

Víðtækar rannsóknir hafa verið gerðar á hómópatískum meðferðum og víða um heim eru rekin hómópatísk sjúkrahús.  Því miður getum við ekki fremur en læknar né aðrir meðhöndlarar náð árangri í öllum tilvikum, en við erum afar einlæg í okkar starfi og vitum að það er ótrúlega margt sem við getum gert til að aðstoða fólk til að ná bata bæði andlega sem líkamlega.

Næstu pistlar koma inn á ýmsar útskýringar sem koma nánar inn á meðhöndlun á ýmsum einkennum.  Ef þið hafið sérstakar spurningar sem ykkur liggur á hjarta, þá getið þið sent þær til okkar og við þá athugað hvort við gætum svarað þeim í pistlunum okkar eða jafnvel svarað þeim beint.

Bestu kveðjur
Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir - Hómópatar LCPH

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).