• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

15. Skammdegið og jólin

Skrifað 2008-11-25 · Pistlar

Áhyggjur og depurð.

Nú er að líða að dimmasta tíma ársins.  Hann virðist koma illa niður á mörgum landanum sem á þá erfitt með að takast á við að vakna og fara til vinnu í myrkri og koma heim eftir að dimmt er orðið.  Jólin sem ættu að vera til gleði, hefur breytt um hlutverk hjá mörgum.  Undirbúningurinn hefur breyst í streitu og ógnvekjandi peningaáhyggjur.  Þetta árið er álagið víða enn verra þar sem þjóðfélags aðstaða hefur orðið mörgum erfiður baggi. 

Ekki getum við hómópatar tekið erfiðleikana af fólki, en það er ýmislegt sem hægt er að gera til að auðvelda ástandið þannig að tími jólanna verði auðveldari.  Það væri óskandi að allir ættu ánægjurík jól, en því miður eiga svo margir um sárt að binda. 

Svefnleysi er oft fylgifiskur við þessar aðstæður og eykur þá vandann til muna.  Þessar aðstæður draga iðulega úr styrk ónæmiskerfisins og getur valdið líkamlegum krankleikum.

Vonandi geta eftirfarandi upplýsingar auðveldað líðanina hjá einhverjum.

-------
Hómópatískar remedíur  hafa oft aðstoðað fólk í ofangreindum aðstæðum. Vandinn er bara oft sá að í verslunum er eingöngu hægt að nálgast þær í styrkleika 30c.  Margir hómópatar telja að þegar um andlegt og tilfinningalegt ástand er að ræða þá er æskilegra að hafa styrkleikann mun meiri, jafnvel allt að 10.000c við vissar aðstæður.  Þá er æskilegt að leita beint til hómópata til að fá svo háan styrkleika (pótensíu).  Teljum við hér upp nokkrar remedíur sem ýmist geta virkað vel einar sér eða nokkrar blandaðar saman.

Ignatia hjálpar oft við depurð, streitu og andlegu ójafnvægi ef sorg eða hryggð spila þar hlutverk.
Nat Mur er þekkt þar sem um langvarandi áhyggjur, reiði, skortur á gleði og tilfinningalegt ójafnvægi þegar erfitt er að tjá tilfinningar sínar.
Argentinum nit  þegar kvíði fyrirfram, stress og hræðsla spila stórt hlutverk
Gelsemium áhyggjur gagnvart því sem er ókomið.  Depurð og þunglyndi vegna aðstæðna og á erfiðleika varðandi að umgangast fólk.
Moschus stressandi taugastreita.
Hummulus góð vegna óróleika, og hjálpar til að slaka á spennu og hreinsa hugann.  Hjálpar gegn áhyggjum og tilfinningalegu ójafnvægi.
Kali Carb ofurviðkvæmni og langvarandi áhyggjur fólks á öllum aldri.
Aurum met depurð og skert sjálfsmat.
Arsenicum album áhyggjur og örvænting sem er verri í einrúmi.
Aconite andlegt ójafnvægi vegna ótta.
Hyoscyamus ofsaleg viðbrögð sem erfitt er að halda í skefjum.
Chamomilla viðkvæmni og pirringur varðandi aðstæðum.
Passiflora eirðarleysi, afleiðing af áhyggjum eða ofurálagi.
Valeriana hjálpar vegna taugaspennu af stressi.  Gott vegna svefnleysis af áhyggjum eða sorg.

-------

Ýmsir nýta sér íslenskar jurtir til að styrkja taugakerfið.    Við erum svo lánsöm að geta keypt ýmsar þurrkaðar og vottaðar íslenskar jurtir frá fyrirtækinu “Ísplöntum” í Hveragerði.  Þetta er svo drukkið sem te og eru notkunarleiðbeiningar á pökkunum.  Í bókinni “Íslenskar lækningajurtir” eru taldar upp nokkrar eftirtaldar tegundir gegn þunglyndi og streitu:

Kamilla, hafrar, hjartafró,  jónsmessurunni, járnurt, mýrarsóley, og hjólkróna.

-------

Aðrir hafa kynnst blómadropum sem hafa reynst mörgum vel og nefnum við nokkra þeirra af tegundinni  Bach blómadropar:

Sweet Chestnut: Mikil hryggð eða dapurleiki.
Gorse: Vonleysi samhliða depurð.  Svartsýni og vonleysi Oft tengt efnishyggju.
Mustard :  Depurð hellist skyndilega yfir mann eins og dökkt ský, og ástæður jafnvel óþekktar.
Pine: Sjálfsásakanir eða samviskubit.
Star of Bethlehem: Afleiðing af áfalli.  Áföll bæði andleg og líkamleg  


  
-------
 
Nokkrar ábendingar: 

  1. Styrktu samband við fjölskyldu og vini.  Brostu þegar þú hittir þau og reyndu að sýna stuðning og samhyggð.
  2. Vertu bjartsýnn, erfiðleikarnir líða hjá og nýir tímar koma með nýja sýn. 
  3. Brostu einlæglega og reyndu að hlæja við hvert tækifæri.  Bros léttir lundina, gerir okkur meira aðlaðandi og öllum líkar betur við fólk sem brosir. 
  4. Treystu á að betri tími mun koma, bara smá þolinmæði.
  5. Vertu örlátur og deildu með öðrum, það gefur góða tilfinningu.
  6. Hugsaðu um tímann eins og vin, ekki alltaf vera með augun á klukkunni.
  7. Hafðu hugann alltaf við eitthvað áhugavert.  Það styrkir hugann og gefur tímanum gildi.
  8. Stundaðu einhverskonar líkamsrækt, t.d. göngur eða sund, það dregur úr depurð og áhyggjum.
  9. Hafðu ánægju af því sem þú þarft að gera og reyndu að slaka á undir þrýstingi.
  10. Settu þér markmið í lífinu og stefndu að þeim af þrautseigju..
  11. Byggðu upp sjálfstraustið með því að þjálfa þig í jákvæðni gagnvart sjálfum þér.
  12. Berðu virðingu fyrir sjálfum þér og stuðlaðu að því að meta alla þína góðu kosti.
  13. Notaðu hvert tækifæri til að gefa bæði öðrum og sjálfum þér hrós.  Það gleður og byggir upp jákvæðni til að gera vel.

 

Bestu kveðjur
Sigrún Árnadóttir og Sigríður Bjarnadóttir
Hómópatar LCPH.

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).