• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

16. Maturinn og jólin

Skrifað 2008-12-10 · Pistlar

Oft er þetta þungur matur og tormeltur um jólin.

Um jól og áramót gera flestir sér dagamun í mat og drykk. Oft er þetta þungur matur og tormeltur og margir kunna sér ekki magamál þegar góðgætið er komið á borðið.
Hangikjötshefðin er rík og hamborgarahryggurinn er vinsæll hjá mörgum.
Þetta er hvoru tveggja reykt kjöt og saltið í reyktum mat getur valdið vökvasöfnun í líkamanum.  Þá geta sætindin sem fylgja hátíðinni valdið bæði höfuðverk og uppþembu.

Það má draga töluvert úr ýmsum “Hátíðisdaga-óþægindum” með Hómópatíu, en við minnum á að ef við borðum hægt, tyggjum vandlega og njótum matarins, þá fer hann mun betur með okkur en ella.

Athugið að “Hátíðisdaga óþægindi” eru náskyld alþekktri “eftir afmælis veiki” sem oft þjakar börn eftir að þau hafa verið í afmæli 
Hér á eftir koma ýmsar remedíur sem virka vel við þessi tækifæri.

Ef við höfum borðað of hratt þar til við liggjum hálf afvelta, þá getur Nux vomica  stytt þann tíma þar til það líður hjá og dregið verulega úr vanlíðaninni.

Einnig getur Nux vomica  hjálpað til ef maturinn veldur ónotum vegna þess að hann hefur verið of mikið kryddaður.

Nux vomica , Lycopodium, China eða Carbo Veg  getur hjálpað við uppþembu, með miklum vindgangi.

Ipecacuana og Carbo Veg  geta verið handhægar ef um ógleði er að ræða. 

Dregið getur úr brjóstsviði með eftirtöldum remedíum,  Phosphorus, Sodium bicarb., eða Nux vomica.

Hiksti samhliða ofáti, uppþembu sem byrjar c.a. 1-2 klst eftir máltíð getur farið með hjálp Nux vomica

Miklir magaverkir þar sem einstaklingur liggur í hnipri, geta rénað með Colocynth eða Chamomillu

Höfuðverkur eftir ofát eða súkkulaðiát, getur lagast við Bryoniu.

Apis er afar hjálplegt þegar við fáum bjúg eftir saltan mat.

Ýmsar aðrar aðferðir geta verið gagnlegar og þá segja sumir að bara borða minna og leiða hjá óhollustunni.  En Jól eru alltaf jól og við vonum að þetta geti kannski hjálpað einhverjum til að losna við óþægindin sem fylgja freistingunum.

Bestu kveðjur og  
GLEÐILEG JÓL 

Sigrún Árnadóttir og Sigríður Bjarnadóttir
Hómópatar LCPH.

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).