• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

17. Húð

Skrifað 2009-01-17 · Pistlar

Húðvörur og innihaldsefni.

Af hverju vandlátur á vörur ?


Hefurðu nokkurn tíma velt því fyrir þér hvers vegna svona margar húðvörur, sem jafnvel eru keyptar í heilsubúðum, innihalda efni í innihaldslýsingunni sem þú getur hvorki lesið eða borið fram.

Augljóslega viljum við forðast að nota nein möguleg eiturefni á húðina, en lífrænar húðvörur eru yfirleitt ekki í hillum snyrtivöruverslana. 

Húðvandamálum hefur fjölgað gífurlega síðustu árin ýmist vegna rangs mataræðis eða vegna þeirra aukaefna sem bætt er út í snyrtivörur.  Þessu veldur kláði og þurrkur í húð, sem getur stigmagnast yfir í slæm útbrot eða sáramyndanir.
 
Innihald sem bætir heilsuna, í staðin fyrir að stofna henni í hættu.

Lífrænar vörur þurfa að hlíta vissum reglum og þurfa að merkja vörur sínar eftir vissum stöðlum.  T.d.  svo sem eftirfarandi dæmi sýnir.
• 100% lífrænt (100% organic).  Ef það er þannig merkt þarf það að vera samkvæmt þeim kröfum, að innihaldið sé eingöngu viðurkennt lífræn efni. 
• 95% lífrænt (95% organic).  Þurfa að minnsta kosti 95%  af innihaldi vörunnar að vera lífrænt ræktuð efni, en þau 5% sem eftir eru mega vera önnur efni sem samþykkt hafa verið samkvæmt alþjóðlegum staðli.  
• Framleitt úr 70% lífrænum efnum. Verður að innihalda að minnsta kosti 70% lífrænt ræktaðar vörur og að minnsta kosti 3 af þeim  tegundum tekið fram á merkingu umbúðanna.  Þau 30% sem eftir eru þurfa að vera samkvæmt viðurkenndum alþjóða staðli, en getur ekki verið vottuð sem lífræn vara.
 

Húð og heilsa.


Vellíðan er okkur mikilvæg og þar sem húðin er okkar stærsta líffæri, er áríðandi að hugsa vel um hana.  Víða erlendis er hægt að lesa greinar um hve omega 3 fitusýrur eru mikilvægar til að viðhalda heilsu og góðu útliti og það er leitun að betra hráefni til að vinna úr en hér við Ísland þar sem sjórinn er ekki eins mengaður hér og víða annars staðar.  Omega-3 lýsið er sérunnið og inniheldur meira fa fjölómettuðum omega 3 fitusýrum en þorskalýsi. 

Þurr húð, ber oft merki um skort á omega-3 fitusýrum, og á köldum vetrardögum er jafnvel þörf á að auka við neysluna.  Húðin vex innanfrá og því vert að hafa í huga að þegar við hugsum um húðina, er ekki nóg að bera á sig krem útvortis, heldur skiptir næringin miklu máli.

Útvortis umhirða húðarinnar.

Þar sem húðin er okkar stærsta líffæri, þurfum við að hlúa betur að henni en við yfirleitt gerum dags daglega.  Mikilvægi húðarinnar er einnig mun meira en við gerum okkur grein fyrir.   Nokkur dæmi um mikilvægi húðarinnar eru:

• Hún verndar okkar innri líffæri fyrir meiðslum og sýkingum.
• Hún hreinsar út eiturefni úr líkamanum með svitanum sem hún hleypir í gegn um sig.
• Hún framleiðir áríðandi keðju af ónæmisvörnum gegn vírusum og bakteríum. 
• Hún ver okkur gegn hitabreytingum í umhverfinu.
• Hún framleiðir og geymir D-vítamín sem er nauðsynlegt ónæmiskerfinu.
• Hún er öflugt skinfæri, sem hjálpar okkur að gera okkur grein fyrir ástandi umhverfis okkur, eins og hart/mjúkt, heitt/kalt, þurrt/blautt o.s.frv. Húðin sendir boð til heilans þannig að þú getir brugðist við aðstæðunum.
• Hún getur verndað þig upp að vissu marki gegn sólbruna.
• Hún ver þig gegn ofþornun.
• Ef eitthvað af ofangreindu fer úr jafnvægi, þá hjálpar húðin til að flýta fyrir jafnvægi á ný.
• Húðin sýnir stundum ofnæmiseinkenni, útbrot eða kláða.  Er hún þá að reyna að hreinsa burtu það sem ónæmiskerfi líkamans telur óæskilegt.
• Hún er fær um að draga í gegnum sig næringu gegnum sig. 
• Gefur ástand húðarinnar oft sterka mynd af hve heilbrigður þú ert innvortis. 

Þar sem húðin er fær um að draga inn næringu þá er hún einnig fær um að draga inn eiturefni sem eru í umhverfinu eða úr því sem við berum á hana. 

Hvað ef útlit getur verið banvænt ?

 Ef við sæum flösku merkta sem eiturefni þá trúum við því og notum ekki innihald flöskunnar.  En margar húðvörur innihalda óþekkt efni sem sum hver eru afar óæskileg, sem geta jafnvel valdið óþægilegum ónæmisviðbrögðum.

Þar sem húðin er svona mikilvægt líffæri sem tengist allri heilsu, telja sumir að það sem þú vilt ekki setja upp í þig og borða, ættirðu ekki að bera á húðina.

Það er sannað að það sem þú berð á hana, kemst inn í blóðrásina og samlagast blóðinu sem flytur næringu til allra líffæra líkamans.  Það gæti jafnvel verið öruggara að borða það, þar sem meltingavegurinn framleiðir viss ensím til að brjóta niður eiturefni og reynir að hreinsa þau út, sem gerist ekki í blóðrásinni.

Samt sem áður eru þessi efni notuð í húðvörur af því að þær eru ódýrar, það er auðvelt að nálgast þær og þynnist auðveldlega út.


Innihalda þínar húðvörur eftirfarandi efni?


Ef þú hefur ekki verið meðvitaður um þínar húðvörur og lest t.d. innihaldslýsingu á rakakreminu þínu eða öðrum húðvörum sem þú notar, gætir þú jafnvel fundið eftirfarandi efni í innihaldslýsingu vörunnar. 

Eftirfarandi munum við telja upp nokkur af algengustu efnunum:

• Mineral Oil, Paraffin, og Petrolatum  -- Efni í Petroleum myndar húð sem er líkt plasti, sem stífla eðlilega virkni húðarinnar og í stað þess að hreinsa út eiturefni þá safnast þau upp og geta valdið húðvandamálum.   Hægir á eðlilegri framleiðslu húðfruma sem veldur öldrunareinkennum.  Grunur um að geti valdið krabbameini.  Truflar hormónastarfsemi.  Ef olía fer í sjóinn, er rokið upp til handa og fóta til að hreinsa hana til að valda sem minnstum umhverfisslysum.  Af hverju að bera það á sig ?
• Parabens  (ýmiskonar parabena) --  Mjög algengt að sé notað sem rotvarnarefni í snyrtivörur, rakavörur, sjampó og ýmiskonar húðvörur.  Áætlað að um 13.200 snyrti- og húðvörur innihaldi parabena.   Rannsóknir sýna fram á tengingu milli parabena og krabbameins.  Þeir innihalda hormónatruflandi eiginleika – trufla estrogen – og hafa áhrif á innkirtlakerfi líkamans.  Getur valdið kláða, hrukkumyndun og þurrk í húð.
• Phenol carbolic acid  -- Finnst í mörgum húðvörum.  Getur valdið samfalli blóðrásar, lömun, krampa, dái og jafnvel dauða vegna öndunarerfiðleika.
• Propylene glycol  -- Notað sem rakagjafi í snyrtivörum og til að flytja ilmolíur.  Veldur óyggjandi húðþrota, nýrna- eða lifrarfrábrigðum, og getur valdið húðfrumu vexti eða valdið húðpirringi.
• Acrylamide   -- Finnst í mörgum hand- og andlitskermum.  Á tilraunastofum tengt við brjóstakrabbamein.
• Sodium laurel eða Lauryl sulfate (SLS), einnig þekkt sem Sodium laureth sulfate (SLES)  Finnst í bílaþvottaefnum, véla-olíuhreinsiefnum, bílskúrsgólfa-hreinsiefnum og er í yfir 90% af húðsnyrtivörum.  SLS brýtur niður rakavörn húðarinnar, treður sér auðveldlega í gegnum húðina og auðveldar öðrum eiturefnum aðgang gegnum húðina.  Ef það er blandað saman við önnur kemísk efni verður SLS að  "nitrosamine", sem er öflugur krabbameinsvaldur.  Þetta veldur iðulega hárlosi.  SLES er stundum leynt með því að merkja það sem efni sem unnið eru úr kókóshnetum.
• Toluene – Eitur !  Hættulegt ! Skaðlegt eða banvænt ef því er kyngt.  Skaðlegt ef því er andað að sér eða innsogað gegnum húðina.   – Búið til úr jarðolíu eða kola tjöru.  Það finnst í flestum gervi-ilmum.  Krónísk einkenni sem tengjast blóðleysi, fækkun blóðfrumna, lifur eða nýrnaskemmdir, og getur valdið fósturskemmdum.  Butylated hydroxytoluene (BHT) inniheldur Toluene.  Kallast öðrum nöfnum benzoic eða benzyl.
• Dioxane   --  Finnst í efnasamböndum þekkt sem PEG, Polysorbates, Laureth, Ethoxylated alcohols.  Algengt í mörgum flokkum húð- og snyrtivara.  Efnasamband þeirra er oftast spillt með mjög rokgjörnu 1,4-díoxíði, sem auðveldlega innsogast gegnum húðina.
Litlaust, eldfimt efni með daufum þægilegum ilm, aðallega notað í rakavarnir, fituleysiefni, lím, málningu, eiturúða og snyrtivörur.  1965 var það fyrst tilkynnt sem krabbameinsvaldur og 1978 staðfest af Alþjóða krabbameinsstofnuninni.  Öndunarvegur og lifur eru viðkvæmust gegn áhrifum Dioxane.  Varist undarleg heiti í innihaldslýsingu, sem sagt er að unnið séu úr kókóshnetum.

Jæja, viltu ennþá bera þessi efni á húðina ?


Bestu kveðjur
Sigrún Árnadóttir og Sigríður Bjarnadóttir
Hómópatar LCPH.

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).