18 Húð - síðari hluti
Útbrot, exem og önnur húðvandamál, geta bæði verið tengd því sem við berum utan á okkur og einnig ýmsum öðrum vandamálum eins og ofnæmistengt, meltingartengt, veirur eða jafnvel genatengd viðkvæmni.
Vandamál húðarinnar og hómópatía
Útbrot, exem og önnur húðvandamál, geta bæði verið tengd því sem við berum utan á okkur og einnig ýmsum öðrum vandamálum eins og ofnæmistengt, meltingartengt, veirur eða jafnvel genatengd viðkvæmni.
Í mörgum tilvikum getur hómópati aðstoðað við að vinna á þessum vandamálum og þá er það á svo örfínan hátt að líkaminn byggist upp á eðlilegan hátt án allra aukaverkana. Hómópatalyf þynna ekki húðina heldur styrkja hana. Þau styrkja fremur líffærin í stað þess að valda þeim álagi.
Stundum kemur batinn fljótt, en í mörgum tilvikum tekur þetta á þolinmæðina og stendur og fellur með góðri samvinnu milli sjúklings og hómópata. Því lengur sem húðvandamál hafa verið viðvarandi, því lengur tekur að komast fyrir þau.
Hálfur árangurinn er umhirða húðarinnar.
Húðin er öflugt líffæri sem er háð hita, raka, umhverfisáhrifum, innri líkamlegri heilsu og ýmsum öðrum áhrifum. Mismunandi einstaklingar hafa ólíka húð og bregðast mismunandi við samskonar efnum. En einnig er ástæðan sú að umhirða húðarinnar og notkun húðvaranna er mismunandi.
Eftirfarandi munum við minnast á nokkra þætti varðandi umhirðu til að öðlast sem best áhrif frá húðvörum.
1. Hreinsa þarf húðina vel áður en borið er á hana, sérstaklega ef þú hefur borið eitthvað á hana eftir síðasta húðþvott.
2. Ekki nota mjög heitt vatn því óhóflega heitt vatn flýtir fyrir öldrun. Hiti vatnsins ætti að vera vel volgt, en ekki heitt.
3. Hreinsaðu húðina varlega og forðastu sterkar sápur og öll ertandi aukaefni.
4. Ekki nudda húðina heldur klappa létt á hana.
5. Best virknin fæst eftir vel volga sturtu eða bað meðan húðin er heit og fersk. Húðin er ekki bara hrein heldur rök og dregur næringuna betur inn.
6. Þegar þú berð síðan húðvörurnar á húðina, skaltu forðast að bera í löngum strokum þannig að það teygist óþarflega á húðinni.
7. Á veturna skal sérstaklega gæta að því að nota mildar sápur, sem ekki þurrka húðina og nota handáburð eftir handþvott.
Dekrum húðina
Húðin er stærsta líffæri líkamans og er öflug vörn gegn umheiminum, hún stjórnar hita- og vökvajafnvægi líkamans og hindrar að skaðlegar örverur eigi greiðan aðgang að honum. Sagt hefur verið að þú skulir aldrei bera á líkama þinn nokkuð sem að þú getur ekki sett ofan í þig, þá ætti kókosolían að vera valin, bæði til inntöku og sem húðáburður.
Góð blóðrás eykur fegurð og hreysti húðarinnar í andlitinu og bæta má um betur með því að æfa andlitsvöðvana reglulega.
Hvað getum við gert til að halda húðinni mjúkri og ferskri. Ekkert er jafn áhrifamikið fyrir fallega húð og gott mataræði og mikið magn af vatni.
Vatnsdrykkja er mjög mikilvæg til að halda rakanum í húðinni, ef hún þornar um of, myndar þurrkurinn hrukkur í húðinni. En mismunandi er hvað hver einstaklingur þarf að drekka til að fullnægja vatnsþörfinni.
Góðar fitusýrur, sem fást með því að borða mikið af feitum fiski, hjálpa húðinni verulega til að halda mýkt sinni og fallegri áferð.
A-vítamín er einnig nauðsynlegt fyrir heilbrigða húð. Það fæst úr dökkum appelsínum, gulrótum, sætum kartöflum og grænu grænmeti, eins og brokkólí, spínati og káli.
E-vítamín er ekki síður nauðsynlegt fyrir fallega húð. Það fæst úr hnetum og fræjum t.d. heslihnetum, möndlum og graskersfræjum, sem að einnig innihalda sink, sem er líka nauðsynlegt til að viðhalda góðri húð.
Silica og Selen eru einnig nauðsynleg efni fyrir húðina, Silica fæst úr grænum baunum, jarðarberjum, gúrku, mangó, aspas, sellerý og rabbabara og Selen fæst úr fiski, t.d. laxi og túnfiski, hvítlauk og Braselíuhnetum, líka úr eggjum og brúnum hrísgrjónum.
Að auki við ofantalið, er góður svefn algjörlega nauðsynlegur, hvíld og slökun geta gert gæfumuninn á útliti húðarinnar. Vel úthvíldur einstaklingur, í góðu jafnvægi andlega og næringarlega, geislar og ber af hvar sem hann mætir.
Uppbyggjandi fyrir húðina
Við gætum verið svo vön notkun efna sem inniheldur eiturefni að við höfum aldrei íhugað að hafa valkost. Sérstaklega þegar við erum sannfærð um að þessar dýru fínu húðvörur, frá þekktum og virtum merkjum, hljóta að vera mjög góðar fyrir húðina.
Fleiri og fleiri hafa þó leitað sér aðstoðar hjá húðsjúkdómalæknum vegna útbrota, húðkláða, þurrks og ertings í húð. Húðin skorpnar og verður jafnvel mynda hrukkur, þrátt fyrir ný, fleiri og betri krem.
Útbúa þarf vissan staðal um kröfur varðandi framleiðslu á öllum snyrti- og húðvörum. Við þurfum að geta treyst innihaldslýsingu á umbúðum, og væri því gott ef þær væru umhverfisvottaðar. Skiptir þetta miklu máli varðandi uppbyggingu húðarinnar og framtíðar heilsu í heild sinni.
Eftirtalin efni eru talin geta stuðlað að góðum árangri í húðvörum, sérstaklega ef um LÍFRÆNAR vörur er að ræða
1. Lífrænt Shea Butter
Ólíkt rakakremum sem hafa jarðolíu í grunninn, þá raunverulega endurbyggir shea butter eiginleika og sveigjanleika húðarinnar Shea butter er algerlega náttúrulegt A vítamín krem, frá Vestur Afríku. Það vex í villtri náttúru án nokkurs skordýraeiturs. Öldum saman hefur shea butter verið þekkt sem sérlega góður rakagjafi, sem framkallar raka á sama hátt og fitukirtlar húðarinnar gera. Það framkallar gegnumflæði og gefur húðinni mýkt og teygjanleika.
Gott fyrir þurra, pirraða, sprungna eða sólarskemmda húð. Inniheldur m.a. A, E og F vítamín. Ólíkt jarðolíu (petroleum-based) rakakremum, þá byggir shea butter upp eiginleika húðina og gerir henni kleift að vinna á eðlilegan hátt, sem dregur úr streitu og örvar ónæmiskerfið.
2. Cocoa Butter
Cocoa butter er náttúrulegur rakagjafi unnin úr kakóbaunum, þeim sömu og súkkulaði er unnið úr. Á margan hátt er cocoa butter fullkominn rakagjafi, sem hjálpar til að auka raka í húðinni, dregur úr grófleika og hreistrun húðarinnar og ver okkur fyrir útfjólubláum geislum sólarinnar. Þýskir vísindamenn hafa haldið því fram að viss efni í kakóhnetunni sé efnasamband sem hefur sýnt fram á að styrki æðakerfið og auki blóðflæði.
Það leysist upp við líkamshita og nær því vel inn í húðina. Það sem meira er að cocoa butter ver húðina samhliða því að húðin getur auðveldlega andað. Talið er að það stuðli að slökun og vellíðan og því oft notað við ilmkjarnaolíumeðferðir. Síðustu rannsóknir telja að ef þú nuddar húðina með cocoa butter, dragi það úr streitu og örvi ónæmiskerfið.
3. Hörfræarolía
gefur líka vel af Omega-3 fitusýrum eins og fiskurinn og hjálpar því til við að viðhalda fallegri húð.
4. Kókósolía
Virgin kókóshnetu-olía dregur úr öldrunareinkennum og er frábær fyrir húðina bæði til inntöku og einnig sem áburður. Hún eykur upptöku og nýtingu af Omega 3 og 6 fitusýrum og gefur húðinni aukinn gljáa.![]()
Virgin kókóshnetuolía er tilvalin til að draga úr öldrunareinkennum húðarinnar. Húnhefur þá eiginleika að geta endurbætt öldrunarskemmdir húðarinnar. Hún hjálpar við að fjarlægja dauðar húðfrumur og haldið húðinni mjúkri.
Hún ver hana gegn utanaðkomandi skemmdum og sólarljósi. Hún getur jafnvel farið inn í dýpstu lög húðarinnar og styrkt undirliggjandi vefi.
5. Jojoba Olía
Jojoba olía er eitt af gagnlegustu efnum náttúrunnar. Tæknilega er Jojoba ekki olía, en er hreint og einstaklega gott vökvakennt vax úr kaldpressuðum fræjum Simmondsia chinensis og S. Californica eyðimerkur runna. Johoba olían hefur verið viðurkennd sem snyrtivöruolía aldarinnar sem náttúrulegur hrukkubani. Margir telja hana sérlega góða gegn hrukkum.
Jojoba olía flýtir fyrir grósku húðarinnar og dregur úr öramyndum. Hún framleiðir mjög svipað fitu og sú húðfita sem húðin sjálf framleiðir. Starf húðfitunnar er að viðhalda raka og halda húðinni mjúkri og teygjanlegri. Því miður, eftir 20 ára aldur, dregur áberandi úr framleiðslu húðfitunnar.
Jojoba er náttúruleg, silkimjúk, lyktarlaus, og er ekki ofnæmisvaldandi, blandast algerlega þinni eigin húðfitu og gengur djúpt inn í húðina. Jojoba olía myndar þunnt fitulaust lag sem heldur raka í húðinn, sem viðist hverfa um leið og það kemur á húðina.
Jojoba gengur svo djúpt inn í húðina, og hjálpar til við að verja hana meðan hún á eðlilegan hátt vinnur að enduruppbyggingu og viðhaldi. Jojoba inniheldur næringarefni sem ganga alveg inn í líkamann, eins og t.d. E vítamín og B-complex, steinefnin silicon, chromium, copar og zinc. Einnig er hún joðrík. Hún þránar ekki og er því mjög endingargóð.
6. Rice Bran Extract (Oryza Sativa)
Hrísgrjón eru aðal fæða hjá helmingi jarðarbúa. 65% næringarinnar er í hýðinu utan um kjarna brúnu hrísgrjónanna, en hýðið er fjarlægt þegar þeim er breytt í hvít hrísgrjón.
Þegar hýðið er unnið án efnafræðilegra eða með tilbúinni verksmiðjuframleiðslu, inniheldur það gnægð vítamína og næringarefna, jafnvel meira magn en í flestum fæðutegundum. Einnig inniheldur það yfir 100 þekkt andoxunarefni. Hrísgrjónahýði er einnig ríkt af jurtanæringu, þar með jurtafitu, CoQ10 og IP6. Ef það er notað í húðvörur, bindur það olíu og vatn. Í Japan er það mjög vinsælt í húð- og hárvörur, sérstaklega fyrir þurra eða þroskaða húð, og er góð rakavörn sem mýkir húðina. Rannsóknir gerðar af Eastman Chemical Company gefa sterkar vísbendingar um að brún hrísgrjón geti dregið úr öldrunareinkennum.
7. Pálma olía
Næringar og heilsufarslegt gildi pálmaolíunnar hafa verið virt í meira en 5,000 ár, og metin sem uppspretta sem enn þann dag í dag er verið að gera sér grein fyrir. 
Pálmaolía, ein af betri gjöfum jarðarinnar. Pálmaolía er rík af næringarefnum og sérstaklega A og E vítamínum, en E-vítamín er eitt af aðal uppleysanlegu fitu- og andoxunarefnum húðarinnar. Hún inniheldur einnig hin öflugu andoxunarefni, tocotrienols (sem tilheyra E-vítamín fjölskyldunni), sem hafa jafnvel enn ríkari áhrif á húðina og varnarkerfi hennar. Hún inniheldur einnig efni eins og phytosterol, squalene og CoQ10 sem hafa afar góð áhrif á heilsuna almennt.
Pálmaolía hjálpar til við að endurnýja og yngja húðina.
8. Aloe Vera safi
Aloe vera hefur verið þekkt um aldir. Aloe Vera safi er einn næringaríkasti og lífrænasti vökvi jarðarinnar. Aloe inniheldur meira en eitt hundrað og þrjátíu lífræn efni og þrjátíu og fjórar aminosýrur, sem samhæfa líkamsstarfsemi og auka heilbrigði. Hann inniheldur um 75 næringarefni og enn fremur inniheldur hann pH jafnvægið 4.55.
Aloe vera er eyðimerkurplanta sem hefur verið þekkt og virt um aldir fyrir frábæra eiginleika sem lækningajurt. Jafnvel er sagt að Cleopatra hafi notað hana til að verja húðina gegn sól og til að halda henni ungri.
Aloe vera er róandi og styrkja myndun bandvefja. Dregur úr sviða og hjálpar til að græða húð eftir minniháttar bruna og sár. Styrkir teyganleika húðarinnar. Húðin endurnýjar sig á 21 til 28 daga fresti og Aloe vera er frábær við endurnýunina með frábærum eiginleikum og styður nýja húð. Gott er að nota Aloe daglega.
Aloe vera myndar náttúrulegan stuðning fyrir ónæmiskerfið. Húðin er fyrsta vörn ónæmiskerfis líkamans og vinnur allan sólarhringinn til að verja þig. Því er nauðsynlegt að hlúa vel að henni. Í Aloe vera eru ýmis vítamín og bætiefni, eins og t.d. kalsíum, natríum, járn, kalíum, króm, magnesíum, mangan, kopar og zink. Einnig A, B1, B2, B6, B12, C and E, folinsýru og niacin. Þar sem húðin dregur næringu inn í gegn um húðina, þá getur þetta hjálpað líkamanum í heild og styrkt ónæmiskerfið. Aloe vera inniheldur 7 af þeim 8 Amonisýrum sem eru líkamanum nauðsynlegar til enduruppbyggingar og viðhalds.
Tilbúnar húðvörur í verslunum.
Erfitt hefur verið að fá húðvörur í verslunum, sem ekki innihalda einhver af þeim efnum sem minnst var á í 17. pistli. (Parabena (ýmiskonar), Mineral Oil, Paraffin, Petrolatum, Parabens, Phenol carbolic acid, Propylene glycol, Acrylamide, Sodium laurel eða Lauryl sulfate (SLS), einnig þekkt sem Sodium laureth sulfate (SLES), Toluene, Dioxane).
Við finnum misjafnlega mikið fyrir utanaðkomandi efnum. En þrátt fyrir það ættum við að hugleiða hvað við erum að kaupa. Við þurfum að lesa vel utan á umbúðirnar og vera meðvituð um hvað við erum að kaupa, á sama hátt og við erum að verða meira meðvituð um þvottaefni, hreingerningarefni og önnur ofnæmisvaldandi efni.
Ástæða til að vera vakandi fyrir þeim efnum sem við berum beint á húðina. Húðina okkar stærsta líffæri, sem dregur öll þessi efni í gegnum sig, þannig að þau komast inn í blóðrásina og til líffæranna eins og sagt er frá í 17. pistli.
Bestu kveðjur
Sigrún Árnadóttir og Sigríður Bjarnadóttir
Hómópatar LCPH.