Meltingarvegur
Vandamál í meltingarfærum geta verið af ýmsum toga
Vandamál meltingarfæra
og einkenni þeirra
Orsakir vandamála í meltingarfærum geta verið af ýmsum toga. Oft er kvíði, stress, áhyggjur og tilfinningalegt ójafnvægi aðal orsök vandans og því er mjög nauðsynlegt að taka alla þætti til greina, bæði tilfinningalega og líkamlega. Kanna þarf einnig mataræði og lífsstíl viðkomandi.

Meltingarvegurinn er frá munni og niður í endaþarmi. Hann skiptist í efri og neðri hluta og eru einkenni mismunandi miðað við hvar vandinn er til staðar.
Ójafnvægi í efri hluta meltingarvegarins veldur einkennum eins og til dæmis: verkja, uppþembu, ropa, brjóstsviða, aukinnar munnvatnsmyndunar, bragðsskynsbreytinga, kyngingarerfiðleika, aukinnar og /eða minnkandi matarlystar, ógleði og uppkasta.
Ójafnvægi í neðri hluta meltingarvegarins geta leitt til verkja, uppþembu, vindgangs, harðlífis, niðurgangs, þyngdaraukningar eða þyngdartaps og blóði með og í hægðum.
Bakflæði.
Einkenni geta verið óþægindi í efri hluta kviðarhols, brjóstverkur sem er verri við að beygja sig, verri við að lyfta einhverju og/eða að reyna á sig. Verra að liggja á nóttunni. Matur rennur oft til baka upp í munninn.
Þessu fylgir iðulega brjóstsviði eða nábítur, svefnvandamál og hætta á að fæða sem runnið hefur upp í munn að nóttu til leiti ofan í öndunarveg, gæti haft áhrif á raddbönd þannig að röddin brestur.
Um mjög alvarlegt bakflæði er að ræða ef viðkomandi á við kyngingarerfiðleikar að stríða, blóðuppgang, blóðleysi, þreytu og fölva, hjartsláttartruflanir og kvíði.
Líffæri sem áhrif hafa eru magi, efri hluti meltingarvegar, ásamt magamunna og hringvöðvi efra magaops á milli maga og vélinda. Orsök er oft slappur hringvöðvi í magaopi, og/eða þindarslit.
Magabólgur.
Einkenni eru verkir í efri hluta kviðarhols, uppköst, slímuppgangur, uppþemba, ropar og vont bragð í munni.
Ef verkir og bólgur er langvarandi, og getur myndast magasár. Þá er verkurinn staðbundinn beint fyrir miðju eða aðeins til hægri. Sjúklingur getur bent á verkjasvæðið. Uppköst gætu slegið á verkinn, sem er verri við að borða og eftir mat. Lystarleysi getur stafað af hræðslu við óþægindin við að borða og getur valdið þyngdartapi.
Alvarleg einkenni eru blóðuppgangur, blóðskortur og skortur á B12. Það getur síðan leitt til Anorexiu.
Líffæri er magi og efra kviðarholssvæði.
Skeifugarnasár.
Einkenni eru staðbundnir, langvarandi verkir í efra kviðarholssvæði. Slegið getur á verki við uppköst og við að borða og þess vegna getur það leitt til þyngdaraukningar. Verkir eru verri ef viðkomandi er svangur og á nóttunni. Matarlyst er góð og munnvatnsmyndun eykst.
Alvarleg einkenni, gætu verið þrenging í neðra magaopi (portmunna), vegna örvefs sem myndast við sárið og veldur uppköstum á ómeltri fæðu. Einnig uppköst á blóði og svartar hægðir sem bendir til að blóð er í hægðunum. Uppþemba og blóðleysi. Ef sár opnast út í kviðarholið getur það valdið lífhimnubólgu. Sár gæti vaxið inn í briskirtilinn og valdið skelfilegum verk sem leiðir út í bakið, maginn harðnar og hreyfingar geta hamlast, blóðþrýstingur lækkar og púls verður hraður, líkami gæti farið í sjokkástand.
Líffæri eru skeifugörn, magi og magaop (portmunni). Einnig gæti haft áhrif á ásgörn og dausgörn.
Botnlangabólga.
Einkennin geta verið margvísleg en yfirleitt er ferillinn nokkuð hefðbundinn Kviðverkir byrja yfirleitt í eða ofan við nafla. Á nokkrum klukkustundum flytur verkurinn sig niður og til hægri í kviðarholinu. Hann magnast upp og er sérstaklega slæmur við hreyfingu. Margir fá ógleði og kasta jafnvel upp. Sumir fá niðurgang. Líkamshiti er yfirleitt um 38° gráður, en þriðji hver einstaklingur er hitalaus.
Gallsteinar.
Oft lítil eða engin einkenni. Gæti verið uppþemba, óþægindi eða verkir eftir fituríkan mat. Mjög sárir verkir hægra megin, ofarlega í kviðarholi. Verkirnir magnast smám saman og verður síðan að stöðugum verk. Verkinn getur leitt upp í hægri öxl eða aftur í hægra herðablað. Á meðan verkjakastið stendur yfir getur viðkomandi svitnað, verið óglatt og jafnvel kastað upp. Hvert kast getur staðið allt frá nokkrum mínútum upp í 2-3 klukkustundir
Alvarleg einkenni eru ef að gallsteinarnir fara að hreyfast og festast í gall- eða brisgangi, þá er hætta á bólgum og sýkingum. Ef sýking hefur myndast í gallblöðru sem veldur bólgu, þá verður verkurinn stöðugur og hiti getur komið ásamt hröðum púlsi. Getur valdið gulu þar sem að gallið nær ekki að komast í skeifugörnina.
Líffæri eru gallblaðra og lifur.
Gallblöðrubólga.
Er sjaldgæf en alvarlegt vandamál. Megineinkenni er verkur um ofanverðan kvið og undir hægri rifjaboga. Verkurinn er stöðugur og versnar með tímanum. Stundum leiðir hann aftur í bak og upp í axlir. Þessu geta fylgt ógleði og uppköst. Sjúklingurinn er oftast mikið veikur, með hita og andar grunnt. Við þreifingu eru eymsli undir hægri rifjaboga sem versna við innöndun.
Brisbólga.
Ákaflega sár verkur í efri hluta kviðarhols og leiðir aftur í bak og í brjósthol. Oft fylgir ógleði með uppköstum. Kviður er viðkvæmur og harður. Hraður púls, lágur blóðþrýstingur, fölvi og sviti.
Alvarleg einkenni eru þyngdartap sem getur leitt til Anorexiu. Lostástand og hugsanlegt meðvitundarleysi. Brisið getur orðið óstarfhæft og hættir þá að framleiða meltingarhvata sem leiðir til meltingartruflana og hættir að framleiða insúlín sem getur leitt til Sykursýki.
Líffæri er bris.
Ristilbólgur.
Verkir eru í kviðarholi sem geta leitt aftur í bak og eru yfirleitt betri við hægðalos. Oft er niðurgangur, linar hægðir og eða harðlífi. Hægðir geta verið slímugar og stöðug þörf til að létta á sér. Þreyta er oft fylgjandi þessu ástandi.
Alvarleg einkenni eru blóð í hægðum. Ástandið getur leitt til Anorexiu, þyngdartaps, blóðleysis og hita. Langvarandi bólgur geta leitt til Crohn´s, liðagigtar, lifrasjúkdóma, lithimnubólgu, blóðtappa og lekra þarma sem aftur geta valdið lífhimnubólgu og krabbameini.
Líffæri er ristill.
Garnapokar.
Eru oft einkennalausir. Stundum koma krampakenndir verkir og stundum eymsli í kviðarholi. Verkir eru betri við að leysa vind og við losun hægða. Stundum er viðvarandi harðlífi og/eða niðurgangur. Gæti verið blóð í hægðum.
Alvarleg einkenni eru ef úrgangur hefur safnast í pokann og veldur sýkingu og bólgum. Þá geta verkir orðið afar sárir, með hita og einstaklingur orðið veikur.
Líffæri eru ristill.
Ristilkrampar. 
Krampakenndir verkir í kviðarholi. Verkir gætu verið betri við hægðalosun og verri við að borða. Uppþemba og vindgangur. Breytilegir verkir. Slím í hægðum, niðurgangur eða hægðatregða.
Orsakir geta verið margar en með því að fara yfir öll einkenni einstaklingsins, er oftast hægt að bæta ástandið.
--------
Þetta eru aðeins nokkur af þeim vandamálum sem geta valdið erfiðleikum, en einnig geta aðrir sjúkdómar og vandamál herjað á meltingarveginn.
Hómópatía hefur oft reynst mjög vel við að takast á við vandamál í meltingarvegi.