19. Hálsbólga og hálskirtlar
Í vetur hefur verið sérstaklega mikið um umgangspestir.
Ein af þeim er þrálát hálsbólga.
Það er ekki óalgengt að börn og fullorðnir fái hálsbólgu eða eymsli í hálsi yfir vetrartímann. Oftast sér ónæmiskerfið sjálft um að laga þessi einkenni og þau hverfa á innan við viku.
Oftast er hálsbólgan af völdum veirusýkinga og við því er engin venjuleg læknismeðferð. En hvort sem ástæðan er veirusýking eða bakteríusýking, með einkennum eins og bólgnum kirtlum, hita og sljóleika, er oft gripið til sýklalyfja eða pensillin, með öllum þeim fylgikvillum sem þeim fylgja, en það geta verið: sveppasýking, niðurgangur, uppköst o.s.frv.
Hómópatía hefur reynst vel vegna hálsbólgu hvort sem er vegna bakteríusýkingar jafnt sem veirusýkingar. Oft hefur mátt koma í veg fyrir hálskirtlatöku með því að nota hómópatíu. Fólk er oft fljótt til og fær sýklalyf, og oft vegna hræðslu eða jafnvel í von um að þetta gangi fyrr yfir, þar sem veikindadagar frá vinnu eru af skornum.
Ef börn hafa verið mikið á sýklalyfjum má búast við því að það taki lengri tíma fyrir þau að sýna viðbrögð við remedíum en yfirleitt eru þau fljót að ná bata. En á sama tíma hjálpar hómópatían börnunum að byggja upp þeirra eigið þol gegn veikindum.
Ýmsar remedíur, eru taldar upp hér á eftir sem virka við hálsbólgu. Í sumum tilvikum taka hómópatar fleiri en eina remedíu og blanda saman ef það hentar einstaklingnum betur en að fá aðeins eina tegund. En þá þarf þekkingu, varðandi hvaða remedíur mega nýta saman án þess að draga úr virkni annarrar remedía.
Eins og við flensu, kvefi hálsbólgu og fl. er, ásamt þessum remedíum, áhrifaríkasta meðferðin hvíld og nóg af vökva. Til að auka vökvann, reynið heitt vatn með sítrónusafa og smávegis af hunangi en það er gott til að fá viðbót af C vítamíni. Létt mataræði er betra t.d. súpur, ferskir ávextir, grænmeti og nóg af fersku lofti. Síendurteknar sýkingar bæði hjá fullorðnum og börnum þarfnast sérhæfðrar meðferðar hjá Hómópata.
Hér fyrir neðan er tafla með nokkrum af helstu remedíunum sem gagnast vel þegar um hálsbólgu er að ræða. Vonum að þið hafið gagn af.
Hálsbólga
Aconite:
Aðaleinkennin birtast skyndilega, oft eftir að hafa orðið kalt. Hár hiti, óróleiki. Þurr háls, rauður, brennandi sviði.
Önnur einkenni: Þorsti og vill kalda drykki. Þurr hósti. Vatnskennt nefrennsli, gæti fengið blóðnasir og ef það gerist er blóðið ljósrautt.
Líður betur við að fá ferskt loft og svefn.
Líður verr Í heitu herbergi þar sem er þungt loft. Á kvöldin og nóttunni. Að liggja á verri hliðinni. Verður pirraður af tónlist, þurrum köldum vindi.
Allium Cepa:
Aðaðeinkenni er mikill glær og vatnskenndur útskilnaður. Hæsi fylgir kvefi
Önnur einkenni: Heit og þyrst
Líður betur Í fersku lofti.
Líður verr innandyra, í heitu herbergi og á kvöldin.
Apis:
Aðaleinkennin eru bólgnir kirtlar með stingandi sársauka. Ef ekki eru til staðar hálskirtlar, er hálsin bleikur með stingandi sársauka og oft er tilfinning eins og hálsin sé bólgin.
Önnur einkenni: Ekki þyrstur
Líður betur við að drekka kalt vatn
Líður verr við að drekka heita drykki
Arg Nit.
Aðaleinkennin eru barkabólga eftir að syngja, tala eða öskra mikið
Önnur einkenni: Kvíðinn, eirðarlaus og alltaf á ferðinni
Líður betur við að fá ferskt loft. Þéttan þrýsting. Hreyfingu
Líður verr við hita. Líður verr vinstra megin. Við tilfinningarót.
Belladonna.
Aðaleinkennin koma skyndilega. Hár hiti, rjótt andlit, kaldir útlimir. Sláandi verkir, Hitinn geislar af sjúklingnum.
Önnur einkenni: mjög þyrstur eða alls ekkert þyrstur. Þarf oft að kyngja. Vont að kyngja. Skjótandi verkir út í hægra eyra þegar kyngt er. Sár háls hægra megin. Kitlingur í hálsinum. Ljósið meiðir augun. Augun glansandi og ljósopin þanin. Óráð með miklum hita. Þurr barkahósti. Þráir sítrónur eða sítrónusafa.
Líður betur við að sitja uppréttur eða standa og að vera í heitu herbergi.
Líður verr við hristing, hreyfingu, hávaða og dragsúg. Við að liggja útaf. Eftir kl. 12 á hádegi og kl. 15
Bryonia.
Aðaleinkennin eru þurr háls og munnur. Hæsi. Mjög pirraður og vill vera einn.
Önnur einkenni: Þorsti. Einkenni frekar hægra megin. Erfitt að tala vegna þurrks í hálsinum. Vont að kyngja.
Líður betur við að vera kyrr og í þögn. Við að setja ákveðinn kaldan þrýsting á höfuð og brjóst. Líður betur í köldu umhverfi.
Líður verr við hreyfingu. Skær ljós. Að borða, hávaða og snertingu. Kl. 9 fyrir hádegi og 15 eftir hádegi
Chamomilla
Aðaleinkennin eru sár háls eftir kulda eða raka.. Bólgnir kirtlar. Kitlingur í hálsinum. Hæsi. Harður hósti
Önnur einkenni: Börn önug og pirruð og vilja láta halda á sér.
Hepar Sulph
Aðaleinkennin eru mikið hæsi með geltandi hósta. Kemur eftir að vera úti í hita eða kulda. Tilfinning eins og eitthvað sé fast í hálsinum, flís eða fiskibein. Eins og tappi í hálsinum. Kverkabólga
Önnur einkenni: Einnig hálsbólga sem leiðir út í eyru þegar kyngt er. Hæsi og raddmissir.
Líður betur við að drekka heitt. Hvíld
Líður verr á nóttunni og morgnana. Hreyfingu
Lachesis
Aðaleinkennin eru purpuralitur, bláleitur háls. Mjög bólgnir hálskirtlar – kæfandi. Þarf stöðugt að kyngja. Þurrkur í hálsi. Byrjar vinstra megin. Krónískur sár háls með miklum ræskingum.
Önnur einkenni: Sérstök viðkvæmni fyrir snertingu. Hvítir eða gráir blettir á hálskirtlunum, sérstaklega þegar einkenni byrja vinstra megin.
Líður betur í fersku lofti, við kalda drykki.
Líður verr á kvöldin og alltaf eftir svefn. Hita. Kyngja vökva
Mercurius
Aðaleinkennin eru sár fleiðraður, verkjaður, brennandi háls. Sár háls eftir að verða kalt. Sláttur í hálsinum og hálskirtlum sem leiðir upp í eyru, sérstaklega þegar kyngt er. Vont bragð í hálsinum. Mikið munnvatnsrennsli.
Önnur einkenni: Sáramyndun og gröftur í hálsinum. Þegar sár eru verkjalítil og koma smám saman. Merc.Iod.Flavum = hægri hliðar, Merc Iod.Rubrum = vinstri hliðar.
Líður betur við hvíld og hóflegt hitastig
Líður verr á nóttunni. Að svitna. Við áreynslu
Nux Vom.
Aðaleinkennin eru eins og fleiður sé í hálsinum. Eins og bólgan sé eins og tappi eða kökkur í hálsinum, sérstaklega þegar kyngt er.
Önnur einkenni: Verkir frekar þrýstandi en skjótandi. Úfurinn er stundum bólginn og rauður.
Líður betur á kvöldin. Hvíld. Í heitu herbergi
Líður verr við að kyngja munnvatni. Andlegt álag. Lifa hátt.
Phytolacca
Aðaleinkennin eru bólgnir kirtlar
Líður verr við heita drykki
Pulsatilla
Aðaleinkennin eru Sárt að kyngja eins og hálsinn sé of þröngur vegna bólgunnar. Roði og eins og það sé fleiður í hálsinum. Þurr háls án þorsta. Sár háls og verkur kemur og fer.
Önnur einkenni: Píluverkir í hálsinum við að kyngja, en verri þegar ekki er verið að kyngja. Finnur spennu í hálsinum. Hálsinn eins og blárauður að innan. Gul/grænn útskilnaður.
Líður betur við Huggun, samúð. Hreinu lofti. Létta hreyfingu.
Líður verr Á kvöldin, Hvíld. Hita. Í þungu lofti
Rhus Tox:
Aðaleinkennin eru stíflað nef og kláði í hálsinum. Stífleiki og óróleiki. Þráir kalda mjólk. Getur ekki verið kyrr, verður að hreyfa sig.
Önnur einkenni: Þykkt gul/grænt nefrennsli með rauðum hálsi sem klæjar í, þurr hósti, kitlingur, hæsi. Hósti kemur í veg fyrir svefn.
Líður betur við hita, heit böð. Við hreyfingu. Við að breyta um stellingu
Hóstinn er verri í köldu herbergi. Líður verr í kulda, bleytu, rigningar veðri. Á meðan hann sefur..
Sulphur
Aðaleinkennin eru endurtekinn sár háls. Bólgnir kirtlar. Yfirborðs roði.
Önnur einkenni: Eins og bolti sem kemur upp í kokið og lokar því.
Útskilnaður grænleitur
Líður betur Í fersku lofti, hreyfing. Liggja á hægri hlið
Líður verr við að hitna, tala. Liggja á vinstri hlið. Hvíld, standa.
Bestu kveðjur
Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir
Hómópatar LCPH