• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Glútenóþol

Skrifað 2010-02-07 · Ofnæmi

Glúten er prótín eða eggjahvítuefni sem finnst í ýmsum korntegundum.

Glúten er prótín eða eggjahvítuefni sem finnst í ýmsum korntegundum.

Glútenóþol (Celiac disease, Celiac sprue) er meltingar- eða þarmasjúkdómur. Sjúkdómurinn getur verið arfgengur og getur lagst á bæði börn og fullorðna á hvaða aldri sem er.  Glútenóþol þarf ekki að vera til staðar þó viðkomandi sé með óþol fyrir hveiti því sem er mun algengara.  Ef aðeins er um að ræða óþol fyrir hveitinu þá gætieinstaklingurinn samt þolað aðrar mjölvörur. 

Algengt er að glútenóþol komi í ljós hjá börnum sem eru að byrja að fá fasta fæðu en einnig getur sjúkdómurinn vaknað hjá fullorðnum einstaklingum við mikið andlegt álag eða líkamlegt áfall, við uppskurð, þungun eða lyfjanotkun.
 
Afleiðingar þess geta verið alvarlegar og er því ástæða til að vera vakandi fyrir einkennum og láta rannsaka hvort um glútenóþol geti verið að ræða á meðan einkenni eru til staðar.  Það er greint eftir nokkrum leiðum eins og til dæmis með sýnatöku af slímhúð í smáþörmum við magaspeglun, eða blóðprufum þar sem skimað er eftir mótefni við glúteni.

Þegar manneskja með glútenóþol borðar glúten, skemmist slímhúðin í þarmaveggjum smáþarmanna. Þarmatoturnar skemmast og visna, en það veldur því að yfirborð þarmanna rýrnar, verður viðkvæmara og því minnkar geta til að frásoga næringarefnin úr fæðunni. 

Ef við ekki getum nýtt næringarefni fæðunnar, geta komið upp alvarleg vandamál sem leiða til vannæringar þrátt fyrir gott mataræði. Þar sem glútenóþol truflar eðlilega meltingu getur annað fæðuóþol eða fæðuofnæmi fylgt í kjölfarið.  Algengt er að fólk með glútenóþol geti t.d. ekki brotið niður mjólkursykur.

Margir telja að glútenóþol sé vangreindur sjúkdómur sem ekki er ólíklegt, en ekki má blanda saman glútenóþoli og hveitióþoli, sem virðist vera nokkuð algengt.  Því er ekki hægt að staðhæfa glútenóþol nema með sýnatöku. 

Einkenni sjúkdómsins geta verið mjög mismunandi.  Fyrstu einkenni eru iðulega niðurgangur, þyngdartap og næringarskortur.  Önnur einkenni sem eru afleiðing venjulegs hveitióþols, geta verið ógleði, magatruflanir og verkir, hægðatregða, þreyta, þunglyndi, pirringur, slappleiki og blóðleysi, lið- og beinverkir.

Meðhöndla þarf glútenóþol því annars getur það leitt til annarra sjúkdóma. Þar má nefna beinsjúkdóma eins og beinhrörnun og glerungseyðing á tönnum, munnangur, truflun í taugakerfi, flog sem orsakast af vanupptöku á fólinsýru, sjúkdómar í nýrum, brisi og skjaldkirtli, ófrjósemi og möguleiki á að glútenóþol geti leitt til ristilkrabbameins.

Glúten er að finna í hveiti, heilhveiti, hveitiklíð, durum hveiti, spelti, rúgi, byggi, semolina, cous cous, búlgur og kamut mjöli.  Hafrar sem hafa verið meðhöndlaðir sérstaklega eru þó í lagi fyrir flesta,  en ráðlagt er að leita eftir ráðleggingum hjá lækni eða öðrum meðferðaraðila þar um.

Aðrar vörur sem innihalda glúten eru allar vörur sem innihalda eitthvað af ofangreindu, t.d. pasta, morgunkorn, kartöfluflögur og franskar kartöflur, margs konar sælgæti, unnar matvörur, pakkasósur og súpur, súputeningar, alls kyns tilbúnar sósur, kryddblöndur, steiktur laukur og sojasósa (en hægt er að fá glútenlausa sojasósu sem heitir Tamari). Einnig ef sterkja er notuð þá er möguleiki á að hún sé unnin út glútenafurð en þó er algengast að notast sé við maís- eða kartöflusterkju sem er í lagi.  Möguleiki er á að einhver fæðubótarefni geti innihaldið glúten.

Það sem gildir er að lesa vel allar innihaldslýsingar og spyrjast fyrir hjá verslun eða framleiðanda.  Glútenlaust mjöl er meðal annars hirsi, hrísgrjónamjöl, bókhveiti, kartöflumjöl, maís, sojamjöl og baunamjöl.  Glútenlausar kornvörur innihalda lítið af trefjum og þarf að neyta vel af grænmeti og ávöxtum.  Einnig gæti  járnskortur komið upp og því nauðsynlegt að neyta járnríkrar fæðu.   Einnig þarf að gæta að þess vel að  taka aukalega vítamínum  sem frásogast illa ef viðkomandi er með glútenóþol.  Gott er að taka aukalega bætiefni eina og fitusýrur, amínósýrur, magnesíum og kalk. Leitið einnig ráðlegginga hjá meðferðaraðila varðandi bætiefni, (t.d. er ekki gott að taka of mikið af fituleysanlegum vítamínum).
Með því að halda sig algjörlega frá vörum sem innihalda glúten og styrkja þarmaflóruna samhliða, má ná upp eðlilegri starfsemi slímhúðar þarmanna, en þetta getur þó tekið tíma. Tyggið matinn mjög vel þar sem það hjálpar við upptöku næringarefna.

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).