• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Magasýrur

Skrifað 2010-02-07 · Sjúkdómar

Ójafnvægi á magasýrum getur stuðlað að fæðuóþoli og sjúkdómum. 

Nauðsynlegt er fyrir líkamann að magasýrur séu í jafnvægi, hvorki of miklar eða of litlar, annars nýtist næring úr mat og fæðubótarefnum ekki sem skyldi.   Magasýrufrumur í magaslímunni, innsta lagi meltingarvegarins, seyta saltsýru (HC1) út í magaholið.  Magavökvinn getur því verið með sýrustig (pH) sem er 1 eða lægra en þetta er 10 sinnum súrara en hreinn sítrónusafi.

Magasýrur eru nauðsynlegar hvað varðar meltingu fæðunnar til þess að hún nýtist.  Til dæmis eru prótín og ensím í fæðunni brotin niður í amínósýrur í meltingarveginum af meltingarensímum og magasýru.  Það er nauðsynlegt til þess að amínósýrurnar geti frásogast inn í blóðrásina frá meltingarveginum.  Þetta á ekki síst við um B-12 vítamín sem aldrað fólk skortir mjög oft, m.a. vegna þess að oft á tíðum nýta þeir sem komnir eru á efri ár þetta vítamín afar illa úr fæðunni vegna skorts á magasýru og meltingarensímum.

Oft verður einstaklingur fyrir miklum óþægindum af magasýrum þegar það er í tengslum við bakflæði.  Þá leita magasýrurnar upp í vélindað sem þolir illa svo sterk, ertandi efni og valda brjóstsviða eða nábít,  sem er bruna eða sviðatilfinning frá maga og upp í háls, jafnvel með súru óbragði í munni. 

Einnig geta einnig verið loft í þörmunum, oft þörf fyrir að ropa og treg melting.  Ef sýrur vantar til að halda flórunni í jafnvægi getur myndast þrálát sveppasýking eða bakteríusýking.  Kalk nýtist illa og orsakar útkölkun beinanna.  Þar sem melting fæðu er háð magasýrunum getur myndast næringarskortur og steinefnaskortur (sérstaklega skortur á kalki, járni, zinki og magnesíum).

Fæða  meltist illa og ómelt prótein getur valdið miklu álagi á nýrun, og illa melt fæða getur skilað sér með hægðum.  Getur haft áhrif á hár og neglur.  Næturblinda og þörf fyrir að píra augun.

Talið er að upp úr 35 ára byrji framleiðsla magans á HCL að minnka en streita er talin geta verið stór þáttur.  Óæskilegt er að drekka heita drykki á tóman maga, þar sem það ýtir undir þetta ferli.  Sýrubindandi lyf bæta ekki ástandið.  Magasýrur brjóta niður prótein og veitir vörn gegn sýklum.  B og B6 vítamín ásamt Lycin aminosýru  og magnesíum eru nauðsynleg hjálparefni.

Hómópatía.

 Hómópatísk meðferð hefur oft gefið góða raun.  Ýmsar remedíur (hómópatalyf) geta komið jafnvægi á sýrumyndun og unnið á brjóstsviða. 

Nokkur góð ráð;

Blanda 2-3 matskeiðum af lífrænu eplaediki í volgt vatn.  Blanda í það 1 teskeið af lífrænu hunangi og drukkið tvisvar á dag.  Þetta bragðast eins og gott te.  Ef ástandið er slæmt má auka skammtinn í 4 matskeiðar þrisvar sinnum á dag, en minnka svo aftur þegar ástandið batnar.

Við slæmum brjóstsviði og vélindabólgu er gott ráð að taka safa úr einni ferskri sítrónu í glas og fylla upp með volgu vatni.  Drukkið á hverjum morgni fyrir morgunmat.   15 mínútum fyrir hádegis- og kvöldmat skal drukkið 4 matskeiðar eplaedik í glasi fylltu upp með volgu vatni.  Einkenni fara á um 2 vikum, en halda skal áfram í nokkra mánuði til að ná bata.

Gott að taka acidophylus og einnig eru mörg góð meltingarensím fáanleg.

Í stað sýrubindandi lyfja úr apótekinu er hægt að kaupa nokkur góð náttúruefni án lyfseðils.  Náttúrubætiefni eru án þeirra aukaverkana sem sýrubindandi lyf hafa.   Molkosan ostamysan frá Sviss kemur jafnvægi á magasýrurnar.   Naturcid, sem inniheldur blöndu af kaolin  og dolomita -kalki, kemur jafnvægi á magasýrumar.  Gastronol inniheldur nokkrar lækningajurtir sem koma magasýrunni í lag og styrkja slímhúð magans.  Frutin inniheldur ávaxtatrefjar og dolomitakalk sem saman koma jafnvægi í efri hluta magans og koma þar með í veg fyrir nábít sem
skaðað getur slímhúð vélindans.  Aloa vera saft og Silicol gel styrkja magaslímhúðina.  Gulrótarsafi getur reynst vel.

Það er ráðlegt að forðast áhyggjur og streitu.  Einnig að forðast kaffi, te, áfengi, sterkt krydd, feitan mat, og lauk. Hjá nokkrum getur gluten valdið of miklum magasýrum.  Forðast skal bólgueyðandi lyf.

Rannsóknir hafa sýnt að sýrubindandi lyf geta innihaldið efni eins og t.d. alumíníumsölt og nýjar rannsóknir hafa sýnt fram á að þau hafi óæskileg áhrif á starfsemi heilans.  Losec dregur úr myndun magasýra og dregur úr áreiti, en til langs tíma dregur það úr þeirri vörn sem magasýrur veita gegn sýkingum.  Önnur langtímameðferðar lyf hafa verið notuð  eins og t.d. Prepulsid, Prestal og Saprít.  Þessi lyf hraða magatæmingu og auka spennu í vöðvanum sem lokar efra magaopi (þ.e. milli vélinda og maga).  En maginn hefur sannarlega hlutverki að gegna við meltingu fæðunnar.  Þá spyrjum við, hvaða áhrif hefur það til langs tíma ef ferlið er stytt og fæðan fer niður í þarmana án þess að fá eðlilegt meltingarferli ?

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).