Vítamín almennt.
Hugtakið vítamín er komið frá pólska líffræðingnum Kazimierz Funk. Vita þíðir líf og amin er stytting af amín, sem er lífrænn efnahópur. Íslenska heitið er í raun bein þýðing þar sem fjör er gamalt orð fyrir líf. Vítamín hefur verið þýtt sem fjörefni á íslensku en hefur ekki náð ítökum í daglegu máli.
Vítamín er safnheiti yfir ýmis lífræn efnasambönd sem eru manninum lífsnauðsynleg til að halda heilsu, en af einhverjum ástæðum getum maðurinn ekki myndað nóg af þessum efnum.
Besta leiðin til að fá öll þau vítamín og steinefni sem við þörfnumst er að borða fjölbreytta fæðu, þar á meðal grænmeti og ávexti. Fyrir utan það að ávextir og grænmeti eru full af vítamínum og steinefnum þá eru þau
einnig auðug af svokölluðum andoxunarefnum sem sýnt hefur verið fram á að hafi fyrirbyggjandi áhrif gegn ýmsum sjúkdómum.
Ef þarmaflóra er ekki í jafnvægi hefur það áhrif á frásog líkamans á bætiefnum úr fæðunni og því gæti verið nauðsynlegt að taka aukalega vítamín og bætiefni til að koma í veg fyrir hörguleinkenni. Ef vítamín eru tekin í töfluformi, ætti að taka þau inn með mat, þar sem við þurfum efni úr fæðunni til að nýta vítamínin sem best.
Tilbúin vítamín eru ýmist vatnsleysanleg vítamín (B og C) eða fituleysanleg vítamín (A, D, E og K). Vatnleysanlegu vítamínin safnast ekki fyrir í líkamanum heldur skolast út með þvagi og valda síður eiturverkunum en fituleysanlegu vítamínin. Fituleysanlegu vítamínin geta safnast fyrir í lifur og fituvefjum líkamans. Yfirmagn fituleysanlegu vítamínanna skilst ekki út úr líkamanum með þvagi og leiðir því til aukinnar hættu á eitrun.
Fituleysanleg vítamín eru aðallega í feitum matvælum, eins og dýrafitu, jurtaolíu, mjólkurvörum, lifur og feitum fiski. En vatnsleysanleg vítamín er að finna í ávöxtum, grænmeti og korni. Öfugt við fituleysanlegu vítamínin geta þau eyðilagst við hitun eða við það að komast í snertingu við súrefni andrúmsloftsins. Einnig geta þau tapast við suðu.
Oft er talið æskilegt að haga inntöku fituleysanlegu vítamínanna þannig að taka ráðlagðan skammt á virkum dögum en taka sér hvíld a.m.k. ein dag í viku til að gefa líkamanum tækifæri á að vinna úr mögulegu yfirmagni. Þetta gæti einnig átt við um lýsi.
Eftir að vítamínglas er opnað getur það geymist í allt að tólf mánuði.
Sjúklingar á lyfjum, einkum séu þeir haldnir alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.