• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

23. Aldrei að gefast upp

Skrifað 2009-10-15 · Pistlar

 

 

Áhrif vegna ástands í þjóðfélaginu

Miklar umræður hafa verið um þetta marg-umtalaða ástand sem skall á landsmenn í október í fyrra.
Þetta ástand hefur, eins og vænta má, ákaflega mismunandi áhrif á okkur, en aðstæður allt of margra eru orðnar mjög erfiðar.  Því miður virðist vera aukin dómharka og skilningsleysi manna á meðal, sem einskorðast ekki við þá sem eru taldir valda þessu ástandi, heldur einnig gagnvart almenningi.

 

Einstaklingar bregðast afskaplega mismunandi við þessum breyttu aðstæðum og skilningur annarra er ekki alltaf fyrir hendi.  Sumir bregðast við með breyttri framkomu, eru pirraðir, uppstökkir, sýna miklar skapsveiflur  eða gleyma að sýna tillitsemi.   Aðrir synda í gegnum vandann, sem hleðst bara upp dag frá degi.

 

Mörg sambönd eru að flosna upp þar sem einstaklingar standa ekki saman og sýna ekki skilning á vanlíðan hvors annars.  Sumir fyllast kvíða, örvæntingu, hræðslu, sorg eða reiði en aðrir fara í einhvers konar doðaástand eða veruleikaflótta.  Doðaástand og veruleikafyrring er svo sem í lagi ef það kemur ekki í veg fyrir að einstaklingurinn takist á við bráð nauðsynleg verkefni og geri það sem þarf að gera.

 

Sumir einstaklingar leita sér aðstoðar við andlegu ástand sínu og er það gott. Sem betur fer eru til ýmsar leiðir sem miða að því að létta áhyggjurnar og hjálpa fólki að öðlast það æðruleysi sem þarf til að takast á við ástandið, í stað þess að loka augunum fyrir því og láta sem allt reddist af sjálfu sér. 

 

Hér á eftir munum við telja upp ýmsar remedíur og blómadropa sem gætu hjálpað okkur.  Þar sem remedíur sem keyptar eru í heilsubúðum og apótekum eru eingöngu seld í pótensíu 30c, er æskilegt að taka þær oftar þar sem 30c dugar ekki öllum.  Einnig erum við hómópatar með ýmsar remedíur í mun hærri pótensíum.

 

Þeir sem hafa áhuga á að fræðast betur, um hvað og hvernig hómópatía getur hjálpað,  ekki hika við að hafa samband og spyrjast fyrir.


Blómadropar:

   
Clematis      = Erfitt með að takast á við ábyrgð á áþreifanlegum raunveruleika.  Dagdraumar.
Mimulus       = Erfitt að sættast við lífsskilyrði og vinna með þau.  Erfitt að sættast við
                         áþreifanlegan raunveruleikann.
Wild Rose   = Hafnar raunveruleikanum.

 

Remedíur:


Nat-m              =  Getur ekki hætt að hugsa um óþægileg atvik og atburði.  Sérlega eldri atvik. 
Medorrhinum =  Getur ekki breytt og dregið úr sínum lífsstíl en lætur bara partýið rúlla áfram.
Arsenicum      =  Hræðist ógæfu og fátækt.  Hræðist ef kröfur eru gerðar á hann.   Vill enga ábyrgð.
Bryonia            =  Hræðist fátækt.  Sífellt áhyggjur af peningum og veltir sér upp úr því án lausna.
Psorinum       =  Orkuleysi og vonleysi  vegna peningaleysis.  Gefst bara upp.
Nux vom.        =  Pirraður og skellir allri skuldinni á aðra, og lokar á eigin gjörðir.

Anhalonium   =  Hefur misst tímaskin.  Tortrygginn, vantraust og gremja.  Erfitt með að tjá sig.
Iridium            =  Einbeitingaskortur.   Eins og hugurinn sé alver tómur.   Ráðvilltur.
Cann-I            =  Tíminn líður mjög hægt.  Áhyggjufullur,  kvíðinn,  þunglyndur og óttast að verða
                             vitskertur. Skapbreytingar. 
Helleborus    =  Starir hugsunarlaust út í loftið og svarar hægt.  Stynur og andvarpar.   Viljaleysi og
                            uppgjöf.  Viðutan og  kýs einveru.  Missir áhuga á umhverfi og  ástvinum.
Opium            =  Áhugaleysi.  Sjálfsásakanir.  Óraunveruleika hugsanir og draumar.  Óskhyggja. 
Veratum alb  =  Þunglyndi eða manía.  Veltir sér upp úr yfirvofandi ógæfu.  Sinnulaus.  Sóar
                            peningum. Raunveruleikafirring. 
Nat-carb        =  Viðutan með einbeitingaskort.  Þunglyndur og pirraður.  Fórnfús.  Algerlega
                            upptekinn af döprum hugsunum.


Smáskammtablöndur frá Jörth: 
íslenskar smáskammtablöndur sem fást t.d. í Heilsuhúsinu og Maður Lifandi. (sjá www.jorth.is )

 

Hressandi  = Bætir orku, einbeitingu – focus.
Kætandi      = Bætir Geðheilsu, Gagnast vel við depurð, sorgarástandi eða áfalli. 
                         Er mjög góð við skapsveiflum.
Slakandi     =  Kemur inn á geðheilsu, streitu og svefn. 


Athugið að eitt af því sem er svo jákvætt við hómópatískar meðferðir er að við verðum ekki eins og í vímu, dregur ekki úr skerpu né veldur okkur öðrum aukaverkunum.

 

Ef áhyggjur, þunglyndi, kvíði eða önnur vanlíðan er orðin mikil er um að gera að leita sér hjálpar sem fyrst, hvort sem er til hómópata eða annarra meðferðaraðila.

 


Með von um bjarta framtíð
Bestu kveðjur
Sigrún Árnadóttir og Sigríður Bjarnadóttir
Hómópatar LCPH.
 

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).