• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

24. Þungmálmar.

Skrifað 2009-11-16 · Pistlar

Þungir málmar eru alls staðar í nútíma umhverfi.

 

Óþol, ofurviðkvæmni og ofnæmi eru viðbrögð líkamans við efnum sem annað fólk þolir að öllu jöfnu.  Venjulega, bregst ónæmiskerfið við og verndar líkamann gegn efnum, bakteríum, veirum eða eiturefnum.  Orsök ofnæmis er óþekkt, en næmni getur, að hluta til, verið vegna erfða eða vegna skerts ónæmiskerfis.  Einnig hjá litlum börnum sem ekki hafa mótað ónæmiskerfi sitt. Stundum þarf ekki nema litla skammta, til þess að framkalla ofnæmisviðbrögð líkamans.

Þungir málmar eru alls staðar í nútíma umhverfi. Með rannsóknum hafa þessi efni verið tengd við ýmsa óvenjulega hegðun og einkenni. Fjölmargar rannsóknir hafa til dæmis verið gerðar, þar sem niðurstöður sýna samhengi á milli lítils námsárangurs og þungmálma í líkamanum. Við greiningu á hári einstaklinga með námsörðuleika kemur fram mikið magn af kvikasilfri, áli, blý og kopar. Vannæring og há gildi af þungmálmum haldast oft í hendur af þeirri ástæðu að sum þessara næringarefna sem skortur er á, eru nauðsynleg til að binda eða minnka upptöku málmanna.  Börn sem verða fyrir skaða vegna þungmálma geta fengið truflanir m.a. á taugakerfið sem hefur áhrif á athyglisgáfu, tilfinningasvið og hegðunarmynstur.

Ekki er margt sem getur hjálpað til við að hreinsa út málma, en þó er vitað til þess að t.d. C-vítamín, mjólkurþistill, lipoic acid, selenium og glycine gætu hjálpað í sumum tilfellum.   Hómópatar og fleiri meðferðaraðilar hafa ýmsar lausnir sem hægt er að grípa til ef um óþol gagnvart þungmálmum er að ræða. Ef hins vegar ef um ofnæmi er að ræða, er alltaf best að forðast snertingu við ofnæmisvaldinn eftir því sem hægt er. 


Einkenni og aðrar upplýsingar varðandi ýmsa málma.

Nikkel: 
Nikkel ofnæmi er eitt af algengari málm-ofnæmum og lýsir sér með þrota, kláða og útbrotum, þurrum blettum, og svita.  Sérstaka aðgát skal hafa ef myndast vökvapollar og leita þá strax til læknis.  Nikkel ætti ekki að nota í snertingu við matvæli.
Nikkel ofnæmi er oftast tengt við snertingu við eyrnalokka og skartgripi eða aðra hluti úr þessum málmi. En nikkel er að finna t.d. í mörgum daglegum þáttum – allt frá mynt til festinga á hálsmenum, verkfærum og sumum gleraugnaumgjörðum.  Einkenni birtast yfirleitt aðeins þar sem húð þín kemur í snertingu við nikkel, en þau geta þó einnig birst annars staðar á líkamanum.  Þau byrja yfirleitt innan 12 til 48 klst eftir snertingu efnisins og getur varað í tvær til fjórar vikur. 
Nikkel ofnæmi getur haft áhrif á fólk á öllum aldri. Nikkel-ofnæmi þróast oft ef viðkvæmni er til staðar og eftir snertingu við málminn, eða eftir endurtekna notkun. Meðferðir (til dæmis hjá hómópata) geta dregið úr einkennum, en hins vegar, þegar þú færð nikkel ofnæmi, verður þú alltaf að vera viðbúin að vera viðkvæm fyrir málminum og ættir að forðast hann.

Silfur: 
Silfur er einn af frægustu ornamental málmum.   Hreint silfur er skær-málmkenndur-hvítur litur, en nær alltaf verður  gulleitt eða svart í snertingu við loft.  Hefur ekki verið metið sérstaklega. Silfur hvarfast við súlfíð og myndar svart silfur súlfíð sem gefur vont bragð. Þetta hvarf getur t.d. átt sér stað ef menn borða egg með silfurskeið

Mercury (kvikasilfur):   
Kvikasilfur er eitt af sex frumefnum sem eru fljótandi við eða nálægt stofuhita. Mercury er eini málmurinn sem er fljótandi á stöðluðum skilyrðum fyrir hita og þrýsting.  Þetta efni er að finna víða og því miður er mikil aukning á því í matvælum úr sjó.  Það er í ýmsum vörum eins og t.d. amalgam tannfyllingum og hefur verið mikið til umræðu. 

Einkenni sem kvikasilfur getur valdið:   OCD - Dæmigerð hegðun = þráhyggju-áráttukennd.  Getur bæði verið hugsanamynstur eða athafnir.  Athyglisbrestur og ofvirkni (ADHD). Skert sjón. 
Þunglyndi, skapsveiflur, ofskynjanir, óráð, pirringur, árásargjörn hegðun,  sjálfseyðingarhvöt, 
Svefnröskun. Langvarandi þreyta (CFS), þróttleysi, lasleiki.  Átraskanir.  Málþroskatruflun (tal og skilningur).  Truflun á andlegum þroska.  Heyrnar tap.  Óskýr sjón, ljósfælni.  Vöðvakippir.  Erfitt um gang, kyngja eða tala.  Skert vöðvastjórnun, hreyfingar.  Krampar.  Safnast í miðtaugakerfi.  Truflanir á ósjálfráða taugakerfinu.  Úttaugakvilli.  Doði í útlimum.  Ógleði, uppköst, niðurgangur, lystarleysi.  Kviðverkir, magaverkir, sviði í hálsi og munni. Maga- og þarmabólgur.  Nýrnasjúkdómar, nýrnabilun.   Lungnabólga, barkabólga, berkjubólga.  Truflun á tíða-hringrás; túrverkir.  Fæðingargallar; ótímabær fæðing;  fósturláti.  Ófrjósemi.  Útbrot, flasa, exem, kláði / erting í húð.  Alzheimer.

Kopar:
Kopar er rauðleitur málmur með mikla raf- og varmaleiðni (af hreinum málmum við stofuhita hefur einungis silfur hærri rafleiðni).  Mögulega er Kopar einn elsti málmur í notkun í dag.   Engar ráðleggingar né takmarkanir hafa verið settar fyrir notkun kopars sem húðaður er með tini, ryðfríu stáli eða öðrum hentugum húðunarefnum.  Mengun frá kopar sem hefur verið metinn, en ekki er talið að hann valdi skaða í náttúrunni.

Einkenni sem kopar getur valdið:   Sjálfseyðingarhvöt. Langvarandi þreyta (CFS), þróttleysi, lasleiki.  Þunglyndi, skap sveiflur. Vöðvakippir.  Krampar. Erfitt um gang, kyngja eða tala.  Skert vöðvastjórnun, hreyfingar.  Truflanir á ósjálfráða taugakerfinu.  Ógleði, uppköst, niðurgangur, lystarleysi.  Kviðverkir, magaverkir, sviði í hálsi og munni.  Lifrarskemmdir.  Skorpulifur, lifrarbólga. Blóðleysi; fækkun rauðu blóðkorna.  Háþrýstingur, aukin hjartsláttartíðni.  Truflun á tíða-hringrás; túrverkir.  Útbrot, flasa, exem, kláði / erting í húð.  Vöðvaverkir, höfuðverkur, magakrampi.

Blý: 
Blý er eins og kadmíum og kvikasilfur talið eitt af hættulegustu eiturefnum í þjóðfélaginu í dag þar sem það er frumefni og eyðist aldrei úr náttúrunni. Notkun þess hefur hins vegar á seinustu árum minnkað mjög mikið sérstaklega eftir að hætt var að setja blý í bensín

Einkenni sem blý getur valdið:   getur haft áhrif á miðtaugakerfið, og haft í för með sér neikvæð áhrif á og þróun greindar og skilningsvita og persónuleika fólks og eru fóstur og smá börn sérstaklega viðkvæm. Önnur einkenni eru hár blóðþrýstingur og aukin hætta á hjarta- og æðasjúkdómum hjá fullorðnum.  Þunglyndi, skap sveiflur, pirringur, árásargjörn hegðun,  svefnröskun. Langvarandi þreyta (CFS), þróttleysi, lasleiki.  Átraskanir.  Athyglisbrestur og ofvirkni (ADHD), skortur auga snerting, skert sjón, þráhyggja.  Truflun á andlegum þroska.  Lélegt skammtíma minni.  Heyrnar tap.  Krampar.  Getur valdið óeðlilegu EEGs  heilarafrit.  Truflanir á ósjálfráða taugakerfinu.  Kviðverkir, magaverkir, sviði í hálsi og munni.  Nýrnasjúkdómar, nýrnabilun.  Blóðleysi; fækkun rauðu blóðkorna.  Háþrýstingur, aukin hjartsláttartíðni.  Hjarta- og æðasjúkdómar.  Óeðlilegur bandvefsvöxtur í lungum. Fæðingargallar; ótímabær fæðing;  fósturláti.  Ófrjósemi.  Vöðvaverkir, höfuðverkur, magakrampi.

Járn:
Járn er algengasti málmurinn og er talið tíunda algengasta frumefnið í alheiminum.  Járn er málmur sem að unninn er úr járngrýti og finnst yfirleitt aldrei í sinni náttúrulegu mynd.  Mengun hefur verið mæld og er ekki talin vera vandamál.

Þallín:
Þallín er mjúkur, grár málmur sem svipar til tins, en er mjög eitraður. 

Einkenni sem þallín getur valdið:   Svefnröskun.  Langvarandi þreyta (CFS), þróttleysi, lasleiki. Kvíði.  Krampar.  Taugaþroti.  Breytingar á mænuvef.  Truflanir á ósjálfráða taugakerfinu.  Doði í útlimum.  Ógleði, uppköst, niðurgangur, lystarleysi.  Kviðverkir, magaverkir, sviði í hálsi og munni.  Maga- og þarmabólgur.  Lifrarskemmdir.  Háþrýstingur, aukin hjartsláttartíðni.  Lækkun hvítra blóðkorna.  Galli á kynfærum.  Vöðvaverkir, höfuðverkur, magakrampi.  Hárlos.  Krabbameinsvaldandi.

Ál:
Ál er silfurlitaður og sveigjanlegur tregur málmur, sem leysist almennt ekki í vatni. Ál er svo hvarfagjarnt að það kemur ekki fyrir hreint í náttúrunni en finnst í meira en 270 mismunandi efnasamböndum. Ál er jafnan unnið úr súráli með álbræðslu.  Forðast ber að nota álílát eða álpappír fyrir súr matvæli, svo sem sítrónur og ávaxtagrauta, eða niðurlögð matvæli þar sem sýra getur leyst upp

Einkenni sem ál getur valdið:   Langvarandi þreyta (CFS), þróttleysi, lasleiki. Málþroskatruflun (tal og skilningur).  Athyglisbrestur og ofvirkni (ADHD).  Lélegt skammtíma minni.  Vitglöp.   Hægir á hreyfingum.  Krampar.  Taugaþroti.  Safnast í miðtaugakerfi.  Lungnabólga, barkabólga, berkjubólga.  Asmi og öndunarfæratruflanir.  Galli á kynfærum.  Útbrot, flasa, exem, kláði / erting í húð.

Arsenic: 
Arsen er eitrað málmgrýti.  Stálgrátt, stökkt og stökkt.
Einkenni sem arsenicum getur valdið:   Þunglyndi, skap sveiflur. Langvarandi þreyta (CFS), þróttleysi, lasleiki.  Átraskanir.  Truflun á andlegum þroska.  Óeðlileg tilfinning í munni og útlimum. Heyrnar tap.  Truflað snertiskyn.  Óskýr sjón, ljósfælni.  Hægir á hreyfingum. Krampar.  Taugaþroti.  Getur valdið óeðlilegu EEGs  heilarafrit.  Úttaugakvilli.  Breytingar á taugum útlima. Doði í útlimum.  Ógleði, uppköst, niðurgangur, lystarleysi.  Kviðverkir, magaverkir, sviði í hálsi og munni.  Maga- og þarmabólgur.  Krabbamein í meltingarvegi.  Lifrarskemmdir.  Nýrnasjúkdómar, nýrnabilun.  Æðaskemmdir.  Blóðleysi; fækkun rauðu blóðkorna.  Háþrýstingur, aukin hjartsláttartíðni.  Hjarta- og æðasjúkdómar.  Óeðlilegur bandvefsvöxtur í lungum.  Lungnabólga, barkabólga, berkjubólga.  Asmi.   Krabbamein í öndunarfærum.  Lækkun hvítra blóðkorna.  Fæðingargallar; ótímabær fæðing;  fósturláti.  Ófrjósemi.  Útbrot, flasa, exem, kláði / erting í húð.  Vöðvaverkir, höfuðverkur, magakrampi.

Kadmíum: 
Kadmíum er eins og kvikasilfur talið eitt af hættulegustu eiturefnum í þjóðfélaginu í dag þar sem það er frumefni og eyðist aldrei úr náttúrunni.  Fólk fær aðallega í sig kadmíum í gegnum matinn sem það borðar. Kornvara, rótarávextir og grænmeti standa fyrir um 75 prósent af kadmíum sem fólk fær í sig. Kadmíum finnst einnig í innanmat, skeldýrum og vissum sveppum.
Einkenni sem kadmíum getur valdið:   Langvarandi þreyta (CFS), þróttleysi, lasleiki.  Kadmíum safnast aðallega fyrir í nýrunum og skaða þau en er einnig talið krabbameins-valdandi. Magn kadmíums í nýrum eykst með aldri og helmingunartími þess er á bilinu 10-30 ár. Það magn sem veldur skaða á nýrum virðist einnig valda beinþynningu. Konur eru taldar hafa meira magn af kadmíum í líkamanum en menn almennt. Er þetta talið stafa af að járn í blóði kvenna á barnseignaraldri er minna en hjá karlmönnum og þessi járnskortur leiðir til aukinnar upptöku kadmíums úr fæðunni.

Sink: 
Sink er fjórði algengasti málmurinn í notkun í dag, á eftir járni, áli og kopar í magni tonna framleiddum ár hvert.  Sink er nokkuð hvarfgjarn málmur sem binst við súrefni og aðra málmleysingja og verkar á daufar sýrur með því að losa um vetni. Sink leysist mjög vel upp í súru umhverfi og ætti því ekki að nota umbúðir/ílát úr sinki fyrir súr matvæli. Í sumum löndum hefur sink, sinkblöndur eða sinkhúðun verið bannað í efni og hluti sem ætlað er að snerta matvæli. 

Sink sem steinefni, til manneldis er frábrugðið og eitt af mikilvægari efnum við myndun og virkjun margra ensíma sem stuðla að heilbrigðu jafnvægi í líkamanum.

Tin: 
Þessi silfurkenndi, þjáli tregi málmur, sem að hvorki oxast í lofti né tærist auðveldlega, er notaður í margskyns málmblöndur og einnig til að þekja önnur efni til varnar tæringu. Tin er fyrst og fremst fengið úr steintegundinni cassiterite þar sem það finnst sem oxíð.

Matvæli í umbúðum eða ílátum úr tini ætti ekki að geyma við lágt sýrustig og/eða hátt hitastig, þetta á þó ekki við um matvæli sem pökkuð eru í tinhúðaðar niðursuðudósir. Mælt er gegn því að matvæli séu geymd í tinhúðaðri niðursuðudós eftir opnun.

Málmblöndur aðrar en ryðfrítt : 
Málmblöndur eru venjulega samansettar af tveimur eða fleiri málmum. Málmarnir eru blandaðir það vel saman að lítil hætta er á að þeir leysist upp. Málmblöndur hafa þó ekki verið metnar sérstaklega með tilliti til eiturefnafræði. Sagt er að málmar í málmblöndum flæða síður yfir í matvæli en málmar sem notaðir eru einir og sér.  


Bestu kveðjur
Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir
Hómópatar LCPH.

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).