26. Mikilvægi vatnsins

Eins og flestir vita þá er mikilvægt að drekka vatn daglega til hreinsunar og til að viðhalda vökvajafnvægi líkamans. Það fer síðan eftir þyngd viðkomandi hversu mikið hann þarf að drekka. Það er ágæt þumalputta regla að miða við c.a. 4-8 glös af vatni á dag eða um c.a. 1-2 lítra.
Samkvæmt japanska vísindamanninum Masaru Emoto er vatn ekki bara vatn. Hann hefur verið að rannsaka vatn frá öðru sjónarhorni, eða mismunandi sveiflutíðni vatnsins. Hann komst að því, eins og við Íslendingar höfum vitað lengi, þá eru engin tvö snjókorn eins.
Hr. Emoto gerði tilraun með að frysta vatn frá mismunandi uppsprettum og einnig kranavatn. Hann fékk svo Hr. Ishibash til að taka myndir af þessum vatnskristöllunum eða öðru nafni frostrósum. Eftir að hafa myndað fjöldann allan af vatnskristöllum komust þeir að því að vatn getur borið með sér skilaboð (sjá Messages from Water).
Aðferðin sem þeir nota er að taka vatn, fara með það í tilraunastofu, byrja á því að slá í botninn á glasinu til að vekja upp orku vatnsins (activate the water), setja síðan dropa af vatni á tilraunadiska, frysta við -25°c í 3 klst, koma með það inn í herbergi þar sem er -5°c, setja diskinn undir smásjá og taka myndir þegar vatnið byrjar að bráðna og mynda kristalla.
Það er mikill munur á hvar vatnið er tekið. Hvort það er kranavatn frá Tokyo eða frá uppsprettu úti í náttúrunni. Kranavatnið frá Tokyo myndar ekki kristalla, en vatn frá náttúru-uppsprettum myndar fallega sexhyrnda kristalla.
Hr. Emoto segir að allt í heiminum sé orka og að orkan flytjist með vatni.
Sexhyrndir kristallar eru orka móður náttúru.
Tónlist er orka eða sveiflur (vibration) og vatn tekur breytingum eftir því hvaða tónlist það verður fyrir áhrifum af. Hann segir að tónlist sé heilun áður en hún verður list.
Orða innihalda einnig sveifluorku. Það er mikill munur á kristöllum eftir því hvort það kemst í sambandi við jákvæð eða neikvæð orð. Það er falinn máttur á bak við orðin.
Ein tilraun sem Hr.Emoto gerði var að setja vatn í krukkur og skrifa mismunandi orð utan á krukkurnar. Kristallarnir sem komu voru mjög mismunandi og það fór alveg eftir því hvort það voru falleg eða ljót orð sem voru skrifuð á viðkomandi krukku. Fallegir kristallar frá fallegum orðum og stundum engir kristallar frá ljótum orðum.
Önnur þekkt tilraun sem margir hafa framkvæmt, er að sjóða hrísgrjón og setja í tvær eins krukkur. Við aðra krukkuna er sagt þakka þér fyrir og við hina fíflið þitt, og þetta endurtekið á hverjum degi í einn mánuð. Í lok mánaðarins voru hrísgrjónin í fíflakrukkunni svört og illa lyktandi, en í þakkar-krukkunni ljós og með góðri lykt.
Hann segir einnig að vatn geti endurspeglað mannlegar hugsanir og það sé hægt að senda hugsanir í vatn. Það voru gerðar tilraunir með að fá mismunandi aðila til að blessa vatn og taka svo myndir af kristöllunum. Það fór ekki eftir trúarbrögðum hvort kristallarnir voru fallegir, heldur eftir hversu einlægir þessir aðilar voru. Hvort þeir voru að biðja og blessa vatnið frá hjartanu eða að fara með áður lærða romsu.
Niðurstaða:
Ef við erum í neikvæðri orku, þá er gott ráð að setja vatn í krukku skrifa falleg orð á miða og líma á krukkuna. Síðan er krukkan sett á ofn og vatnið látið gufa upp. Þannig vinnur vatnið gegn þeirri neikvæðni sem er í gangi.
Þegar börn eru skírð, þá er gott að setja skírnarvatnið í krukku og láta það gufa upp inni í herbergi barnsins. Það eru nokkrir prestar hér á landi, sem hafa verið að mæla með þessu við foreldrana.
Þá er það einnig ljóst að þar sem mannslíkaminn er að svo miklu leyti vatn, þá skiptir það miklu máli hvernig við hugsum og tölum við okkur sjálf og einnig hvernig við hugsum og tölum til annarra.
Verum jákvæð og umvafin jákvæðri sveiflutíðni. Það kemur til með að hafa áhrif til heilunar á okkur og umhverfi okkar.
Bestu kveðjur
Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir
Hómópatar LCPH.