• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Lifur

Skrifað 2010-02-16 · Heilsa

Ein lifrarfruma getur gegnt fjölda mismunandi hlutverkum í efnabúskapnum

 

Lifrin er staðsett rétt neðan við þind hægra megin í kviðarholi.


Lifrin hefur fjölmörg hlutverk.  Lifrin getur gegnt allt að 500 mismunandi hlutverkum í efnabúskapnum.  Ekki er hægt að telja það allt upp og stiklum við því aðeins á helstu atriðunum.  Lifrin er stærsti kirtill líkamans og vegur um 1,4-1,5  kíló í meðalmanni. Lifrin getur gegnt hundruðum starfa og tengjast efnaskipti mörgum þeirra.

1  hún losar gall sem tekur þátt í fitumeltingu.
2. hún tekur til sín næringarefni úr blóði.
3. hún breytir einsykrum í fjölsykruforða, klýfur fjölsykrur í einsykrur og veitir í blóð þegar þörf krefur.
4. Hún geymir járn og ákveðin vítamín
5. hún breytir umframamínósýrum í fitusýrur og þvagefni
6. hún tekur þátt í efnaskiptum próteina, fitu og kolvetna.
7. hún framleiðir mikið af plasmapróteinum
8. hún afeitrar ýmis lyf og eiturefni sem komast inn í líkamann
9. hún agnarétur bakteríur og lélegar rauðar blóðfrumur.

Lifrin er helsta efnaverksmiðja líkamans og frumulíffærin í lifrarfrumum endurspegla þessa starfsemi. Kjarninn er stór og hnöttóttur með laust pökkuðu litni og áberandi kjarnakorn. Frumurnar hafa ríkulegt, gróft og slétt frymisnet og vel þroskað Golgi-kerfi.  Gróft frymisnetið og Golgi-kerfið gegna lykilhlutverki við framleiðslu prótína. Slétta frymisnetið er meðal annars mikilvægt í efnaskiptum fituefna og sykrunga, afeitrun ýmissa efna sem berast inn í líkamann, við myndun galls og útskilnað gallrauða. Einnig eru fjöldi meltikorna (lysosoma) í lifrinni, en þau stuðla að niðurbroti frumuhluta og ýmissa stórsameinda. Oxunarkorn (peroxisome) stuðla að niðurbroti langra fitusýra og við oxun þar sem súrefni er notað beint. Þessi flóknu efnaskipti eru orkufrek sem endurspeglast í miklum fjölda hvatbera (orkukorna).

Lifrin meðhöndlar allt að 1.4 lítrum af blóði á mínútu og vinnur sem sorpeyðingarstöð sem eyðir mismunandi óæskilegum efnum út líkamanum.  Vegna þess hve mikinn þátt hún á í hreinsun blóðs, geymslu næringarefna og úrvinnslu er hún afar blóðrík. Tvöföld blóðrás liggur inn í hana, annars vegar lifrarslagæð sem flytur til hennar blóð frá hjartanu, og hins vegar lifrarportæð sem flytur blóð frá görnunum. Þessar æðar sameinast í sérstæðum háræðum sem nefnast stokkháræðar og veita blóði inn í lifrina

 

Við sykurefnaskipti breytist fæðan í efni sem eru nauðsynleg lífi og þroska:

Þegar við borðum, eykst sykurstyrkur blóðsins.  Þegar sykurinnihlald blóðsins minnkar milli mála skilar lifrin sykrinum aftur í blóðið.  Lifrin er mikilvæg til að viðhalda eðlilegu blóðsykurmagni eða glúkósamgani í blóðinu ásamt vissu hormónajafnvægi.

Frásog glúkósa úr þörmunum berst til lifrarinnar.  Hún breytir glúkóls í forðasykruna (fjölsykruna) glýkógen þegar blóðsykur er hár og brýtur glýkógen niður í glúkósa þegar blóðsykur er lár.  Hún getur einnig breytt tilteknum amínósýrum í mjólkursýrur og henni síðan í glúkósa ef blóðsykurinn lækkar. Hún getur breytt frúktósa og galaktósa í glúkósa.

Ef glykogengeymslur lifrarinnar eru mettar, er glúkósa breytt í glýseról og fitusýrur sem geymast í formi fitu í fitufrumum.  Ef glúkósi er ekki til staðar er fitunni breytt aftur í glýseról og fitusýrum er síðan breytt í glúkósa í lifur sem sendir það síðan til frumnanna.  Ef lifrin verður uppiskroppa breytir hún amínósýrum og fitusýrum í einsykrur.

Fituefnaskipti:

Lifrin sér einnig um að mynda fitu og að brenna hana. Hún geymir sum þríglýseríð og brýtur niður fitusýrur.  Hún breytir kólesteróli í gallsölt og myndar gall við niðurbrot á blóðrauðahluta óstarfhæfra rauðfrumna og kólesteróli.  Gallið er forsenda eðlilegrar fitumeltingar því fita er ekki vatnsleysanleg en gallsölt og steraefni í galli verka á fitu og vatnsblöndu eins og sápa.  Fitan splundrast í litla dropa sem blandast síðan vatninu.  Gallið aðstoðar líkamann til að losa sig við úrgangsefni.

Gallþveiti og myndun gallsalta:

Lifrin býr til gall sem eyðir skaðlegum efnum t.d. lyfjum og vínanda (alkóhól) og er nauðsynlegt til að stuðla að vinnslu á fitu í meltingarferlinu.  Við sundrun gamalla rauðkorna mundast gallrauða (bilirubin) sem er seytt af lifur í gall.  Meiri hluta af þessari gallrauðu í gallinu breyta gerlum í ristlinum í saurbrúnku sem síðan er skilst út með saur.  Gallsölt myndast í lifur en eru notuð í smáþörmum.  Gallsölt stuðla að mölun fitu úr fæðu við meltingu og upptöku fituefna

Framleiðir mikilvæg eggjahvítuefni fyrir líkamann.

Í lifrinni er framleiddur mikill hluti þeirra próteina sem eru í blóði (plasma). Lifrarfrumurnar mynda flest prótín í blóðvökva (plasmaprótín) en það er glóbúlín, próþrombín, albúmín og fíbrínógen.  Lifrarensím geta breytt ýmsum amínósýrum þannig að þær geti nýst í til myndunar ATP (orkumiðil frumna) eða breytt þeim í sykrur eða þríglýseríð.

Úr ammóníaki myndar  lifrin  kolefnissamband, svokallað þvagefni, CO(NH2)2. Það er óskaðlegt líkamanum og berst til nýrna sem skila því frá sér út með þvagi. Á svipaðan hátt verður þvagsýran til við niðurbrot kjarnsýra. Það er mun minna eitrað og hægt að senda út í blóðið.  Nýrun breyta því síðan í þvag sem skilar sér úr líkamanum.  Á svipaðan hátt verður þvagsýran til við niðurbrot kjarnasýra.

Lifrin nýmyndar mörg prótein eins og til dæmis albúmín.  Lifrin sundrar blóðpróteinum en þegar þau sundrast í blóðvökvanum.  Þegar það gerist eru amínósýrurnar ýmist notaðar  við uppbyggingu annarra próteina eða þau eru sundruð sem orkugjafar í efnaskipti öndunar.

Fjarlægir eitruð úrgangsefni úr blóðinu og hreinsar þau úr líkamanum.

Lifrin gegnir einnig lykilhlutverki í losun úrgangsefna með því að gera þau óvirk með einhverjum hætti.  Hún hreinsar efnasambönd úr blóðinu, hormón sem hætt eru að gegna hlutverki sínu, ýmis eiturefni og gerir þau óvirk.  Hún þveitir lyfjum eins og penisilíni og eryþromýsíni og súlfalyfju í gall.  Einnig getur hún breytt eða þveitt skjaldkirtilshormónum og sterahormónum eins og estrógeni og aldósteróni.

Innan á veggjum stokkháræðanna í lifrinni eru Kupfferfrumur sem gleypa gerla og ýmsar aðrar framandi örður úr blóðinu.  Slæmt er ef of mikið magn skaðlegra efna verður í lifrinni, því það getur valdið skaða og orsakað gulu.

Forðageymsla:

Lifrin er forðabúr fituleysanlegra vítamína eins og til dæmis A, D, E og K og fyrir vítamínið B12, glýkógen og steinefnin járn og kopar.

Frumuát:

Í lifrinni eru stjörnulaga átfrumur sem innbyrða og eyða útjöskuðum rauðkornum og hvítfrumum ásamt ýmsum gerlum.

Streita:

Það er staðfest staðreynd að streita getur haft  neikvæð áhrif á bæði huga og líkama.  Samhliða streitu geta svokallaðar drápsfrumur (NKT) stækkað í lifrinni og í sumum af þessum tilfellum stuðlað að of miklu álagi á lifrina.  Í þeim hluta heilans sem stjórnar streitu í lifur,  fannst skert blóðstreymi sem getur leitt til lifrarskemmda.   Streita getur haft áhrif á bólguferli sem á sér stað í lifur.  Eftir mikið streituvaldandi tímabil getur einstaklingur orðið var við langvarandi þreytu og orkuleysi, sem eru mjög áberandi einkenni eftir mikið streituálag á lifur.

Ofnæmi:

Lifrin gegnir hlutverki í þróun ofnæmis. Þetta er tengt áhrifum hennar á efnaskipti próteina. Ofnæmisviðbrögð ættu sér ekki stað ef ekki væri fyrir starfsemi lifrarinnar,  þar sem lifrin bregst við með vörnum gegn óæskilegum efnum.  Þar sem streita hefur áhrif á lifrina geta ónæmisviðbrögð myndast í miklu langvarandi álagi.  Ónæmisviðbrögðin verða í gegnum prótein efnaskiptaferlið.

Ýmislegt:

Húð, lifur og nýru taka öll þátt í að virkja D-vítamín.

Lifrin myndar hita í líkamanum vegna þess að hún brennir næringarefnum og öðrum efnum við efnaskipti.  Við bruna myndast varmi sem hitar líkamann.

Hjálpar líkamanum að verjast sýkingum.

Ýmis einkenni sem geta komið upp ef lifrin er í ójafnvægi:

Vaknar óhvíldur að morgni þrátt fyrir langan svefn. 
Orkuleysi og þreyta
Getur haft eins og mild einkenni af timburmönnum.
Tungan getur verið þakin gulri skán. 
Getur verið andfúll.
Þreyttur eftir að borða.
Haft vindgang og snert af höfuðverk.
Sjóntruflanir.
Ástæðulaus pirringur og reiði getur stafað af truflun á lifrarstarfsemi.
Truflun á samhæfingu augna og handa.

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).