A vítamín
A-vítamín (Retinoíðar - Beta-carotin) er fituleysanlegt vítamín og skilst því ekki út úr líkamanum með þvagi. Þar sem A-vítamín er fituleysanlegt safnast það fyrir í líkamanum og getur valdið eitrun sé tekið of mikið af
því. Of stórir skammtar yfir lengri tíma geta valdið aukaverkunum. Öllu öruggari leið til að fá A-vítamín er að nota Beta karotín (svonefnt próvítamín A) sem líkaminn breytir í A-vítamín eftir þörfum og nýtir sem slíkt. Beta karotíni veldur ekki sömu eitrunarhætta og A-vítamíni.
A-vítamín er andoxandi vítamín eins og C- og E-vítamín, selen og glútatíoni. Þessi vítamín eru talin hafa áhrif gegn öldrun af því að þau vernda frumurnar gegn eyðileggjandi áhrifum sindurefna. Þegar epli er skorið verður það brúnt í sárið eins og þegar járn ryðgar. Það er vegna oxunar af völdum súrefnis. Við efnaskipti í líkamanum myndast úrgangsefni (svo nefnd sindurefni) sem geta valdið hliðstæðum skemmdum á frumum líkamans. Hver fruma líkamans er varin með himnu sem inniheldur meðal annars hátt fituhlutfall. Sindurefnin valda því að þessi fita oxar og veikir það frumuna. Rannsóknir benda til að slíkar frumuskemmdir geti skaðað heilsuna. Líkaminn getur varist þessum skemmdum með svonefndum andoxunarefnum. Ákveðin bætiefni, vítamín og steinefni ráðast til atlögu gegn skaðvöldunum (sindurefnunum) og aðstoða líkamann að losa sig við þá. Samhliða styrkja þessi andoxunarefni frumurnar og um leið varnir líkamans.
A - vítamín hefur mörg mikilvæg hlutverk. Það má nefna að það hefur áhrif á fósturþroska og vöxt. Stjórnar gerð og sérhæfingu fruma í húð og slímhúð. Tekur þátt í stjórnun einstakra erfðavísa. Það er mikilvægt fyrir sjónina, einnig fyrir alla slímhúð jafnt í öndunarfærum, kynfærum og meltingarvegi. A - vítamín hefur einnig áhrif á vöxt, matarlist og bragðskyn. Það er nauðsynlegt fyrir ónæmiskerfið, hraðar græðslu sára, styrkir frumuveggi og hindrar þannig að bakteríur og veirur komast inn í líkamann. Getur jafnvel dregið úr hættu á myndun ákveðinna tegunda krabbameins í slímhúð öndunarfæra og meltingarvegs.
A – vítamín skortur tengist helst langvarandi sjúkdómum þar sem upptaka fitu frá meltingarvegi hefur skerst. Ef okkur skortir A - vítamín getur það orsakað náttblindu, augnþurrk, húðþurrk, húðskemmdir, viðkvæmni gagnvart sólarljósi, öndunarfærasýkingar og aðrar sýkingar.
Sýrubindandi lyf, laxerolía og paraffínolía geta dregið úr frásogi A-vítamíns í þörmum. Xenical, Questran og önnur lyf sem auka útskilnað fitu úr líkamanum, geta um leið valdið skorti á fituleysanlegum vítamínum í líkamanum.
Fæðutegundir sem eru auðugar af A-vítamíni eru: lýsi, fiskilifur en einnig lamba- og svínalifur. Einnig egg, litsterkt grænmeti eins og paprikur, gulrætur, næpur, spínat, fíflablöð, mynta og steinselja, tómatar, grænkál, spergilkál, apríkósur. Einnig mjólk og mjólkurafurðir.
Einkenni eitrunar Eitrun er sjaldgæf hjá fullorðnu fólki en einstaklingar geta haft mis mikla getu til að hreinsa líkamann. Einkenni eru helst: þurrkur, og flagnandi húð, hárlos, kláði, sprungnar varir og þroti í húð og slímhúð. Verkur í beinum, höfuðverkur, þyngdartap og fleira. Yfirmagn of stórra skammta safnast í lifur og getur valdið gulu.
A-vítamín hefur öll þau efni sem hafa sömu líffræðilegu virkni og retínól. Of mikil neysla á A-vítamíni á formi retínóls, retínólsýru eða annarra retínóíða er óæskileg. einkum er hún varhugaverð á meðgöngu þar sem stórir skammtar geta valdið fósturskaða. Auk þess geta of stórir skammtar af retínóli haft neikvæð áhrif á blóðfitu, leitt til lifrarskaða og haft áhrif á bein þannig að af hljótist beinþynning.
A, D og E fást einnig í „þurri“ eða vatnsleysinni gerð. Fituleysnu vítamínin nýtast aðeins ef þeirra er neytt með fitu. Ég legg til að þeir sem eru á lágfitumataræði taki vatnsleysnu gerðina af A, D og E bætiefnum, þ.e. töflur í staðin fyrir belgi.
(upplýsingar um fituleysnu vítamínin eru fengin úr Bætiefna biblíunni)
Ráðlagðir dagsskammtar eru:
• Börn 6-23 mánaða: 300 RJ
• Börn 2-5 ára: 350 RJ
• Börn 6-9 ára; 400 RJ
• Börn 10-13 ára 600 RJ
• Konur 14 ára og eldri: 800 RJ
• Karlar 14 ára og eldri: 900 RJ
• þungaðar konur: 800 RJ
• kona með barn á brjósti: 1100 RJ