• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

B-1 vítamín / tíamín

Skrifað 2010-02-17 · Bætiefni og vítamín

               B1 – vítamín er vatnsleysanlegt vítamín.

B1 – vítamín er vatnsleysanlegt vítamín.  Það safnast ekki fyrir í líkamanum, heldur skilst út úr líkamanum með þvagi og Því síður hætta á eiturverkunum vegna ofnotkunar.  Vinnur með öðrum B-vítamínum og tekur þátt í efnahvörfum við orkubúskap líkamans 

Meginhlutverk B1 – vítamíns er nauðsynlegt fyrir heilbrigða starfsemi vöðva- og taugakerfisins og efnaskipti kolvetna, sem sagt tengist nýtingu kolvetna og orkumundun.  Tíamín tekur þátt í nokkrum lykilefnahvörfum sem fram fara í taugavef, hjarta, við myndun rauðra blóðkorna og efnahvörfum sem tengjast viðhaldi sléttra og rákóttra vöðva.  Frumur taugakerfisins nærast einkum á kolvetnum, og eru þær háðar tíamíni til þess að geta notað kolvetnið sem orkugjafa.  Taugafrumurnar verða þess vegna fyrst og fremst fyrir barðinu á tíamínskorti.

B1 - vítamín (Tíamín,  Aneurin,  Anti-neuritic-vitamin) er nauðsynlegt fyrir taugakerfið,  þunglyndi, hræðslu, pirringur.  Það hefur áhrif á hjarta og  hjartastarfsemi, vöðva, meltingu, veldur síþreytu og vöðvasleni.  Það er einnig gefið við taugabólgum vegna áfengisneyslu.  Gagnast vel ef um sérstaka tegund blóðleysis.  Vítamín B-1 er lyktarsterkt og er það m.a. tekið inn til að halda frá sér mývargi.

B1 – vítamín skortur getur valdið einkennum sem lýsa sér eins og dofi komi fram í fingrum og tám.  Ruglingur með óskýrri hugsun og jafnvægisleysi, lystarleysi og hægðatregða, einbeitingarskorti, þreytu og jafnvel lækkun blóðþrýstings.  Hraður hjartsláttur og hjartsláttartruflanir.  Truflanir í taugakerfinu (bæði úttauga- og miðtaugakerfi), meltingarkerfi og hjarta- og æðakerfi.  Einkenni frá úttaugakerfinu geta verið allt frá skyntruflunum til lömunar, en frá miðtaugakerfinu geta verið slen og minnisleysi.  Einhver þekktustu einkenni tíamínskorts er svonefndur beri-beri sjúkdómur sem lýsir sér með máttleysi og skertri starfsemi hjarta og tauga.  Rannsóknir hafa sýnt að í sumum tilfellum hefur hjartaáfall stafað af svæðisbundnum tíamínskorti í hjartanu.
Óhófleg áfengisneysla getur valdið tíamínskorti sem getur valdið Wernicke-Korsakoff sjúkdómi.  Hann lýsir sér til dæmis með sjóntruflunum, truflun augnhreyfinga, truflun á andlegu jafnvægi og skertu skammtímaminni.
Sýrubindandi lyf, ýmis sýklalyf og getnaðarvarnartöflur geta framkallað tíamínskort.  Alkóhól hindrar frásog og eyðir tíamínbirgðum í líkamanum.  Önnur efni, eins og östrogen og koffein vinna gegn tíamíni og geta í framhaldi af því valdið skorti og einkennum sem honum fylgja.

Fæðutegundir  sem eru auðugar af B-1 eru ölger, hveitikím, klíð, heilt hveiti, heilir hafrar, hýðishrísgrjón, flest fræ og hnetur, sojabaunir, ger, hrísgrjón, heilhveiti, hnetum, svínakjöti, fiski, mjólk og mjólkurafurðir, laufmikið grænmeti, einnig kartöflur og rófur.  Einnig í ferskum og þurrkuðum ávöxtum. 

B-1 skemmist við suðu, einnig vinna koffein, áfengi og estrógen gegn því.  Þíamín er vatnsleysanlegt vítamín en það þýðir að þess þarf að neyta á hverjum degi þar sem líkaminn getur ekki geymt umframmagn þíamíns.

Aukaverkanir eru afar fátíðar þar sem B-1 er vatnsleysanlegt og umframmagn skilst auðveldlega úr líkamanum, jafnvel þó að mjög stórir skammtar séu notaðir í lengri tíma.

Ráðlagðir dagsskammtar eru:


• Börn 6-11 mánaða  0,4 mg
• Börn 12-23 mánaða   0,5 mg
• Börn 2-5 ára   0,6 mg
• Börn 6-9 ára   0,9 mg
• Stúlkur 10-13 ára  1,0 mg
• Stúlkur 14-17 ára  1,2 mg
• Konur 18-60 ára  1,1 mg
• Konur eldri en 61 árs  1,0 mg
• Drengir 10-13 ára  1,2 mg
• Drengir og karlar 14-30 ára 1,5 mg
• Karlar 31-60 ára  1,4 mg
• Karlar 61-74 ára  1,3 mg
• Karlar eldri en 75 ára  1,2 mg
• Konur á meðgöngu  1,5 mg
• Kona með barn á brjósti 1,6 mg

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).