Gallblaðra
Gallblaðra er perulaga líffæri um það bil 10-12 cm langt.
Gallblaðra er perulaga líffæri um það bil 10-12 cm langt. Hún er áföst við lifrina og staðsett undir henni.
Hún hefur það hlutverk að geyma það gall sem lifrin hefur myndað, þangað til líkaminn þarf á því að halda. Framleitt er um það bil 800-1000 ml. af galli daglega en gallið
aðstoðar við meltingu fæðunnar og þá sérstaklega til að brjóta niður fitu. Kirtilfrumur í skeifugörnin myndar hormón sem kemur skilaboðum til gallblöðrunnar hvenær losa skal gall út í skeifugörnina og hefur þannig áhrif á fitusundrun.
Í gallinu eru meðal annars gallsölt og steraefni sem gegna lykilhlutverki við meltingu á fitu. Gallsaltasameindin er samsett úr stórum óhlöðnum sterakjarna og nokkrum hliðarkeðjum sem tengjast kjarnanum og hafa neikvæða hleðslu. Þessir eiginleikar gefur gallinu eins konar “sápueiginleika”, þannig að gallsöltin verka á fituna í meltingarveginum á sama hátt og uppþvottalögur leysir upp fitu við uppþvott.
Lifrin framleiðir u.þ.b. 800-1000 ml af galli á dag. Það er búið til úr úrgagnsefnum en hefur samt mikilvægu hlutverki að gegna í meltingunni. Gallið dregur úr sýruáhrifum magans og stuðlar að meltingu fitu. Í veggjum gallblöðrunnar er sogþekjuvefur sem dregur vatn út úr gallinu og þjappar því verulega saman. Gallblaðran tengist skeifugörn um gallrás.
Gallsöltin koma inn í meltingarveginn í skeifugörninni rétt neðan við maga og blandast þar fæðunni. Þau leysa upp fitu sem fer út í sogæðar og þaðan út í blóðið. Þegar gallsöltin hafa lokið þessu hlutverki sínu frásogast þau neðst úr görninni og fara aftur til lifrarinnar. Gallsöltin eru því endurnýtt og áðurnefnd hringrás margendurtekin.
Galllitarefni gefa hægðum lit. Þegar gallblaðra hefur verið fjarlægð þá er ekkert sem stjórnar lengur hvenær eða í hvað miklu magni gall er losað út í skeifugörnina. Þannig gæti magnið ýmist verið of mikið eða of lítið. Ef borðuð er mjög fiturík máltíð en engar varabirgðir af galli, geta hægðir orðið ljósar og fituríkar. Afleiðingar gallblöðrutöku geta verið þær að maðurinn þolir illa fituríkan mat og er því yfirleitt ráðlegt að neyta feitmetis í hófi. Einstaka sjúklingar þola illa að gall seytli inn í görnina þegar þess er ekki þörf og fá jafnvel þrálátan niðurgang. Við því er hægt að gefa sérstaka meðferð til að binda gallsýrurnar (Questran-duft) og verkar hún oftast vel.
Ástæður gallblöðrutöku eru yfirleitt gallsteinar eða bólga í gallblöðru og er gallblaðran þá að mestu hætt að sinna hlutverki sínu. Talið er að einstaklingar með þessa sjúkdóma séu betur settir án gallblöðru. Gallsteinar eru algengur sjúkdómur. Einstaklingar geta haft gallsteina án þess að hafa nokkur einkenni í langan tíma eða án þess að verða þess nokkurn tíma varir. Gallsteinar byrja að myndast sem smá saltögn í gallblöðru. Hún hleður svo smám saman utan á sig kólesteróli. Ekki er ljóst hvað veldur myndun gallsteina en tengsl eru viðurkennd að þeir sem greinast með gallsteina og háa blóðfitu er hættara við að fá gallsteina. Þegar gallsteinar lenda í gallgangi geta þeir valdið sárum kviðverkjum og meltingartruflunum. Verkurinn er ofarlega, hægra megin í kviðarholi og leiðir oft upp í hægri öxl. Verkir oft ekki ósvipaðir magasársverkjum, en nútíma læknisfræði á auðvelt með að greina þar á milli. Steinar geta reyndar gengið niður án þess að festast í gallgangi og því fylgir þá ekki þessi sáru einkenni.
Hómópatía hefur gefið góða raun í mörgum tilfellum vegna gallsteina, þannig að ekki hefur verið nauðsynlegt að taka gallblöðruna.