• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

B-2 vítamín / ríbóflavín

Skrifað 2010-02-18 · Bætiefni og vítamín

er vatnsleysanleg og safnast því ekki fyrir í líkamanum 

B2  vítamín  (Riboflavin, Laktóflavin, G-vítamín)  er hluti ákveðinna hjálparhvata sem gegna lykilhlutverki við orkubúskap fruma, oxun og rafeindaflutning.  Það eru vatnsleysanlegt og safnast því ekki fyrir, heldur skilst út úr líkamanum með þvagi. Ríbóflavín er sterkgult á litinn.  Það frásogast auðveldlega úr fæðu, en einungis 15% frásogast ef þess er neytt í töfluformi á fastandi maga.  Takmarkað magn þess geymist í líkamanum einkum í lifur, hjarta og nýrum.

B2 er nauðsynlegt fyrir frumuöndun, efnahvörfum til að losa orku úr fitu, kolvetni og prótín.  Mikilvægt hjálparefni við framleiðslu t.d. rauðra blóðkorna.  Einnig fyrir starfsemi húðar, slímhimna og augna. Það ver augun fyrir útfjólubláum geislum og tekur þátt í að stjórna ljósmagni til augans.   Mjúkir vefir, sárar varir, aum tunga og tungubroddur, munnþroti, exem, svimi og blóðhlaupin augu.  Ríbóflavín er talið bæta starfsemi taugaboðfruma í miðtaugakerfinu. 

Einkenni um skort eru m. a. sjóntruflanir, blóðhlaupin augu, ofþreyta, blóðleysi og taugaverkir. Einnig getur skortur valdið því að sprungur myndast á vörum og í munnvikjum, særindi í hálsi og tungan verður aum.   Hárið verður feitt og líflaust, neglur vilja springa, flasa, hætta er á exemi í andliti og á  og við kynfæri. Rósacea bólur.  Skortseinkenni birtist meðal annars sem bólga eða þroti í slímhúð í munni, meltingarvegi, augum, húðbreytingar í munnvikum og ljósfælni.   Ef skortur er á ribóflavín er oftast um að ræða skort á fleiri B-vítamínum og jafnvel járni.  
Sýklalyf á borð við Súlfalyf geta valdið ríbóflavínskorti ef þau eru notuð í langan tíma.  Konur sem taka inn getnaðarvarnarlyf þurfa aukið magn af ríbóflavíni.

Auðugustu uppsprettur vítamíns B2 eru ölger, hveitikím, mjólkurvörur, ostar, fisk, lifur, nýru,  heilt korn, möndlur, sólblómafræ, ávextir og grænt grænmeti. Mest er af ríbóflavíni í mjólk og mjólkurafurðum, kjöti, lifur og öðrum innmat.  Töluvert er einnig í eggjum, hveitikími, hveitiklíði, heilhveiti og möndlum. Auk þess er ríbóflavín í ýmsum tegundum af vítamínbættu morgunkorni.  Ríbóflavín þolir hita og tapast því lítið við suðu.  

Ríbóflavín er vatnsleysanlegt vítamín en það þýðir að þess þarf að neyta á hverjum degi þar sem líkaminn getur ekki geymt nema mjög takmarkað af umframmagni.

Aukaverkanir eru ekki þekktar.  er vatnsleysanlegt og umframmagn skilst auðveldlega úr líkamanum, jafnvel þó að mjög stórir skammtar séu notaðir í lengri tíma.

Fjögurra mánaða rannsókn á mígrenisjúklingum bendir til að stórir skammtar af B-2 hafi fyrirbyggjandi áhrif á mígreni, köstum fækkaði og þeim dögum fjölgaði sem sjúklingarnir voru algerlega lausir við mígreniverk.

Ráðlagðir dagsskammtar eru:

• Börn 6-11 mánaða  0,5 mg
• Börn 12-23 mánaða   0,6 mg
• Börn 2-5 ára   0,7 mg
• Börn 6-9 ára   1,1 mg
• Stúlkur 10-13 ára  1,2 mg
• Stúlkur + konur 14-60 ára 1,3 mg
• Konur eldri en 61 árs  1,2 mg
• Drengir 10-13 ára  1,4 mg
• Drengir og karlar 14-60 ára 1,7 mg
• Karlar 61-74 ára  1,5 mg
• Karlar eldri en 75 ára  1,3 mg
• Konur á meðgöngu  1,6 mg
• Kona með barn á brjósti 1,7 mg

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).