• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Vefjasölt - Tissue salts - Cell salts

Skrifað 2009-04-17 · Bætiefni og vítamín

  Pistill nr. 20 Vefjasölt Tissue salts - Cell salts má einnig finna undir Fróðleikur - Pistlar.

 Sífellt fleiri nota orðið vefjasölt sér til heilsubótar.
Þau eru auðveld í notkun og kosta ekki mikið.

Í nútíma þjóðfélagi hættir líkömum okkar til að skorta ákveðin nauðsynleg og náttúruleg ólífræn steinefni eða líkamssölt, sem þarf að endurnýja. Þetta var fyrst útskýrt af smáskammtalækninum dr. Schüssler, á áttunda áratug síðustu aldar.  Rannsóknir hafa sýnt fram á , að ákveðna sjúkdóma má rekja til skorts á ákveðnum söltum. Vefjasölt eða frumusölt eru lífsnauðsynleg.
Þessi vefjasölt er t.d. hægt að fá ýmist hjá hómópötum,  í heilsubúðum eða Skipholtsapóteki.  Eru þau bæði til eitt og sér eða nokkrum blandað saman og þá tekið sérstaklega við hverju það gagnast best (sjá “Ýmsar blöndur frá New Era” hér fyrir neðan).  Öll þessi sölt eru í styrkleika 6x. 
Eins og áður hefur verið minnst á getur þetta hjálpað mikið, en þetta eru ekki skyndilausnir og þarf að sýna þolinmæði þar til virknin fer að sýna sig á sama hátt og ef um vítamín er að ræða.

  
Hin tólf líkamssölt Schüsslers  (6x)


Efnafræðileg- og  Lífefnafræðileg heiti:  Calcarea fluorica  (Calc. Fluor)
Almennt heiti :         Kalkflúoríð
Hlutverk :
                Eykur teygjanleika stoðvefs. Varðveitir hæfileika líkamans að draga sig saman.  Finnst í öllum vessum og vefjum, yfirborði beina og glerungi tanna
 Nokkrar tilvísanir :  Tognun á vöðvum, sinum eða liðböndum., Tennisolnbogi.  Gyllinæð. Harðlífi ef ristill er latur. Æðahnútar. Kviðslit. Blöðru eða legsig. Þröng forhúð drengja.  Grindargliðnun. Varnar húðsliti á meðgöngu. Beinþynning.  Megrun. Offita.

Efnafræðileg- og Lífefnafræðileg heiti :  Clcearea phosphorica  (Calc. Phos)
 Almennt heiti:     Kalkfosfat
Hlutverk:
    Varðar næringu og byggir upp nýja vefi, blóð og bein. Aðstoðar við framleiðsl
Nokkrar tilvísanir:  Tærandi sjúkdómar; hæg blóðrás; afturbati; virkar hressandi.  Útbrot á húð. Seinþroski. Hægur vöxtur barna. Beinkröm. Hæg eða erfið tanntaka. Ræskingar. Særindi í hálsi. Lungnapípuasmi. Lungnabólga. Bólur í andliti.  Blóðleysi, sérstaklega hjá unglingsstúlkum. Brothætt bein eldra fólks.  Bólur í andliti. Vaxtarverkir

Efnafræðileg- og Lífefnafræðileg heiti :   Calcarea sulphurica  (Calc. Sulph.)
Almennt heiti :   Kalksúlfat 
Hlutverk :
 Hreinsar blóðið og virkar í sambandi við viðvarandi ígerðir.  Hreinsar lifrina.
Nokkrar tilvísanir :   Útbrot á húð. Skán á tungu.  Blóðnasir.  Hósti með hita, þrálátri hæsi og bronkítis.. Eyrnabólga, með útskilnaði úr eyra.  Bólga bakvið eyru.  Sýking í auga. Höfuðverkur með svima og ógleði.  Unglingabólur.  Eykur frjósemi. Hormónaójafnvægi.

Efnafræðileg- og Lífefnafræðileg heiti :  Ferrum phosphoricum  (Ferr. Phos.)
Almennt heiti:     Járnfosfat 
Hlutverk :
Fyrirfinnst í rauðum blóðkornum.  Súrefnisflutningur. Styrkir veggi frumna og slagæða. Hitalækkandi.
Nokkrar tilvísanir:  Bólga, minni háttar meiðsli; kvef á byrjunarstigi; hálsbólga; lungnakvef; gigt.
Blóðleysi með þreytu.  Járnhörguls-sjúkdómur.  Hjálpa til við að mynda járn.  Ef fólk hefur fengið blóðtappa eða hjartaáfall.  Tognun á vöðva. Tanntökuhiti. Eykur matarlyst. Hægðavandamál. Dautt hár eða glanslaust.. Eykur blóðstreymi.  Hæsi af söng eða tali. Skordýrabit. Uppköst á meðgöngu. Ósjálfráð þvaglát.

Efnafræðileg- og  Lífefnafræðileg heiti:  Kali muriaticum  (Kali. Mur.)
Almennt heiti:   Kalíumklóríð  
Hlutverk:   Finnst í blóði, taugafrumum og vöðvum.  Örvar efnaskipti.  Bólgur. 
Nokkrar tilvísanir:  Blóð- eða slímstíflur.  Krónískt kvefrennsli.  Hálsbólga.  Missir rödd. Asmi. Útskilnaður hvítleitur og þykkur.  Munnangur. Skán á tungu.  Flasa.  Suð í eyrum. Gyllinæð. Blöðrubólga með dökku þvagi.  Þvagrásarbólga.  Morgunógleði á meðgöngu. Liðagigt.  Bólur og fílapenslar.  Stífluð eyrnagöng.  Losar um hellu fyrir eyrum eftir flug.

Efnafræðileg- og Lífefnafræðileg heiti:  Kali phosphoricum  (Kali. Phos.) 
Almennt heiti:  Kalíumfosfat 
Hlutverk:
   Nærandi fyrir tauga- og heilavef, blóðfrumur og vöðva.  Sýkladrepandi 
Nokkrar tilvísanir:   Taugaveiklun, svefnleysi. Geðvonska. Þreyta. Óróleiki. Taugaverkir. Kvíði. Feimni. Hræðsla. Stress. Martraðir. Fótafýla. Kláði í húð. Minnisleysi eða slæmt minni. Heimþrá.  Heymæði.  Asma með kvíða. Taugaverkir t.d. tannpína.

Efnafræðileg- og Lífefnafræðileg heiti:   Kali sulphuricum  (Kali. Sulph.) 
Almennt heiti:  Kalíumsúlfat 
Hlutverk:
  Stuðlar að myndun heilbrigðra húðfruma, eyðingu dauðra fruma og flutningi súrefnis til vefjanna.  “Smurolía líkamans”
Nokkrar tilvísanir:  Asmi; gigtarsótt; kvef; höfuðverkur; meltingartruflanir. Útbrot á húð og hársverði. Flasa.  Gult eða grænt nefrennsli. Öndunarerfiðleikar. Slímhúðarþroti.  Örvar súrefnisflutning með blóðinu. Sinadráttur/krampar í útlimum.

Efnafræðileg- og Lífefnafræðileg heiti:  Magnesia phosphoricum  (Mag. Phos.) 
Almennt heiti :  Magnesíumfosfat
Hlutverk:
   Nærandi fyrir blóð, bein, tennur, heila, mænu, taugar og vöðva.
Nokkrar tilvísanir:  Taugajafnvægi, skjótandi verkir, krampar, taugaverkir, sinadráttur, taugahvot, kláði. Nístandi sársauki, Vatnsniðurgangur.  Þreyta og magnleysi.  Magakrampi og ristilkrampi.  Gott fyrir parkinsonsjúklinga, MS-sjúklinga og flogaveika. Þvagteppa. Einbeitingarleysi. Lélegt minni. Svimi og hitaköst á breytingaskeiði.

Efnafræðileg- og  Lífefnafræðileg heiti:   Natrum muriaticum  (Nat. Mur.)
Almennt heiti:   Natríumklóríð
Hlutverk:
   Stuðlar að vökvajafnvægi í líkamanum. Dregur úr bjúgmyndun.
Nokkrar tilvísanir:   Saltaójafnvægi í líkamanum.  Orkuleysi. Vonleysi. Þreyta á morgnana.  Hraður púls. Hjartsláttaróregla. Tannpína og taugaverkir í andliti.  Munnvatnsmyndun. Exem í hársverði og andliti.  Sprungin húð.  Bjúgur. Þreyta í augnvöðvum Brjóstsviði vegna hægrar meltingar. Vörtur í lófum. Heymæði. Hamrandi höfuðverkur.

Efnafræðileg- og  Lífefnafræðileg heiti:   Natrum phosphoricum   (Nat. Phos.)
Almennt heiti:   Natríumfosfat
Hlutverk:
   Stuðlar að sýrujafnvægi í frumum. Góð fyrir gall. Kemur í veg fyrir stíflur og vökvatap.
Nokkrar tilvísanir:  Röskun á gallframleiðslu, þvagsýruframleiðslu; meltingartruflanir; flökurleiki. Brjóstsviði. Vökvatap.  Vöðvagigt, liðagigt og meltingartruflanir. Gallsteinar og nýrnasteinar.  Andleg örmögnun. Bólgin eða stíf liðamót.
Brakar í liðum.

Efnafræðileg- og  Lífefnafræðileg heiti:   Natrum sulphuricum    (Nat. Sulph.)
Almennt heiti:   Natríumsúlfat
Hlutverk:
   Örvar eðlilegan kirtilfrumuútskilnað. Stjórnar starfsemi lifrar og galls.  
Nokkrar tilvísanir:  Kvillar í lifur; höfuðverkur; asmi; flökurleiki. Höfuðverkur.   Súr niðurgangur. Tunga með skán. Asmi, verri í raka.  Þroti í berkjum með asma.  Gigtarverkir í liðum. Settaugabólga. Kippir í svefni. Þvagsýrugigt. Inflúensa.  Pirringur. Svefnleysi.

Efnafræðileg- og  Lífefnafræðileg heiti:   Silicea (silica)
Almennt heiti:   Kísill
Hlutverk:
  Eykur graftarmyndun; Hreinsandi. Örvar næringarupptöku og útskilnað.  Mikilvægur efnisþáttur í stoðvef.  
Nokkrar tilvísanir:   Ígerðir. Hreinsar húðina. Krónískar meltingartruflanir.  Lömun á ristilhreyfingum.  Hægðatregða. Langvarandi niðurgangur.  Almennt þróttleysi; fylgikvillar eiturefnaneyslu. Bakvandamál. Ígerð í kirtlum.  Andfýla. Slæm líkamslykt.  Pirringur og ofurviðkvæmni. Góð fyrir hár og neglur.


Ýmsar blöndur New Era


A.   Ferr. Phos. + Kali. Phos. + Mag Phos  =  Andlegt jafnvægi, settaugabólga, þjótak
B.   Calc. Phos. + Kali. Phos. + Ferr. Phos. =  Taugaórói, óþolinmæði, viðkvæmni, pirringur í skapi, þrekleysi, uppgjöf, afturbati.
C.   Mag. Phos. + Nat. Phos. + Nat. Sulph  = Meltingartruflun, brjóstsviði, sýrustig 
D.   Calc. Sulph. + Kali Mur. + Kali sulp. + Sulph =  Minni háttar skinnvandamál.
E.   Calc. Phos. + Mag. Phos. + Nat. Phos. + Nat. Sulph. = Meltingartruflun, magakrampi, magakveisa, uppþemba, vindgangur
F.   Kali. Phos. + Mag. Phos. + Nat. Mur. + Silica = Höfuðverkjaköst vegna mígrenis eða álags
G.   Calc. Fluor. + Calc. Phos. + Kali. Phos. + Nat. Mur =  Bakverkir, lendargigt, þursabit
H.   Mag. Phos. + Nat. Mur. + Silica.  =  Frjókornaofnæmi, heymæði, nefrennsli vegna ofnæmis
I.   Ferr. Phos. + Kali. Sulph. + Mag. Phos = Verkir í vöðvum, vandvefsbólga, bandvefshersli
J.   Ferr. Phos. + Kali. Mur. + Nat. Mur  = Hósti og kvef sem leitar niður brjósthol
K.   Kali. Sulph. + Nat. Mur. + Silica.  =   Neglur sem þurfa styrkingu
L.   Calc. Fluor. + Ferr. Phos. + Nat. Mur.  = Æðahnútar, mikil kyrrseta
M.   Nat. Phos. + Nat. Sulph. + Kali. Mur. + Calc. Phos =  Gigtarverkir
N.   Calc. Phos. + Kali. Mur. + Kali. Phos. + Mag. Phos =  Tíðarverkir
P.   Calc. Fluor. + Calc. Phos. + Kali. Phos. + Mag. Phos =  Stöðugir verkir í fótleggjum. Fótapirringur.
Q.   Ferr. Phos. + Kali. Mur. + Kali. Sulph. + Nat. Mur. =  Kinnholubólgur, slím
R.   Calc. Fluor. + Calc. Phos. + Ferr. Phos. + Mag. Phos. + Silica =  Tanntökuverkir ungbarna
S.   Kali. Mur. + Nat. Phos. + Nat. Sulph  =   Uppköst, flökurleiki, höfuðverkir


Bestu kveðjur
Sigríður Bjarnadóttir og Sigrún Árnadóttir
Hómópatar LCPH

 

 

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).