• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

B-5 vítamín / pantótensýra

Skrifað 2010-02-20 · Bætiefni og vítamín

 B5 – vítamín er vatnsleysanlegt vítamín

B5 – vítamín er vatnsleysanlegt vítamín, eins og önnur B-vítamín og safnast því ekki fyrir í líkamanum, heldur skilst út úr líkamanum með þvagi   Það er að finna í fæðunni auk þess sem hún getur myndast í þörmum með aðstoð þarmagerla.

Meginhlutverk B5 – vítamíns.  B5 vítamín er þekkt sem "afstressunar vítamínið" því það spilar stórt hlutverk við framleiðslu adrenalín hormónsins og í uppbyggingu mótefna, upptöku vítamína og við ummyndun fitu, kolvetna og prótína í orku.  Það örfar ónæmiskerfið er nauðsynlegt við myndun mótefna. Það  er nauðsynlegt til þess að líkaminn geti myndað D vítamín, dregur úr einkennum liðagigtar og sár gróa fyrr. Það dregur úr hárlosi,  gæti hægt á öldrun og að hárið gráni eins fljótt.   Pantótensýra tekur þátt í að breyta fitu, kolvetnum, sykri og prótínum í orku. Stuðningur við nýrnahettur.  Það aðstoðar við uppbyggingu miðtaugakerfis, við fumubyggingu og eðlilegan vöxt.

Það hjálpar til við ofnæmi, asma, magaverki, sýkingar í brjósthol, svima,  einbeitingarleysi, sviða í fótum og við flugnabit.  Það getur reynst vel að taka inn 1000 mg af B5 vítamíni þegar álag er fyrirséð. Einnig gæti 1000 mg á dag dregið úr gigtarverkjum

B5 – vítamín skortur á pantótensýru þekkist varla í mönnum sem borða sem neyta algengrar fæðu, því  B5 vítamín er svo víða í fæðunni, auk þess sem hún myndast í meltingarfærum.  Skortseinkenni geta þó verið sljóleiki, höfuðverkur, svimi, hárlos og náladofi í höndum. Einkenni skorts gætu komið fram sem húðvandamál, lár blóðþrýstingur, blóðsykurskortur, þrálátt slen og þreyta.  Þunglyndi, geðveiki,  önuglyndi, slappleiki í vöðvum, líkamsbeiting getur truflast, truflun í hjarta og æðakerfi, ógleði, uppköst, meltingafæratruflanir, aukin tilhneiging til sýkinga einkum í efri hluta öndunarfæra og vöðvakrampar. Sumir telja skort á pantótensýru vera ein af orsökum asma og ofnæmis. 

Hormón og getnaðarvarnartöflur, kaffi, niðursuða, hiti, svefntöflur, áfengi og súlfalyf geta dregið úr frásogi á B5 vítamíni.

 
Fæðutegundir.  Auðvelt er að finna pantótensýru, bæði í jurta- og dýraríkinu.  Eins og nafnið bendir til en það er dregið af gríska orðinu ,,pantos” sem merkir alls staðar.  Fæðutegundir sem eru auðugar af pantótensýru eru m.a. ölger,  kjöt, nýru, lifur, hjörtu, fiskur, egg, baunir, korn, hveitikím, klíð, kartöflur, sveppir, ávextir og fersku grænmeti, sölur, sveppir, hnetur og mjólkurafurðir.

 
Aukaverkanir eru afar fátíðar en gætu þó valdið niðurgangi.

Ráðlagðir dagsskammtar eru:

• ungbörn að hálfsárs aldri: 2 mg
• 6-12 mánaða:  3 mg
• börn 1-3 ára:  3 mg
• 4-6 ára:  3 - 4 mg
• 7 -10 ára:  4 - 5 mg
• bæði kyn 10 ára og eldri 4-7 mg

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).