Börn og svefn
Svefnröskun barna

Mörg börn þjást af svefnröskunum. Þau vakna oft á nóttunni, tala upp úr svefni, eiga erfitt með að sofna, fámartraðir, pissa undir og einnig geta sum börn þjáðst af kæfisvefni. Þessi börn vakna oft þreytt, pirruð og eru syfjuð á daginn. Óreglulegir svefnhættir geta valdið kvíða og tengjast oft tilfinningalegum vandamálum. Góð leið til að draga úr kvíðanum er að þróa reglulegt og stöðugt svefnmynstur.

Flest börn þjást af aðskilnaðarkvíða á vissum aldri, sem er eðlilegt stig í vitsmuna- og tilfinningaþroska barna. Sumum börnum er því erfitt að venjast því að sofa í sínu herbergi án þess að koma upp í rúm foreldra ef þau vakna að nóttu til. Önnur geta fengið martraðir og mun vera um 10 – 50% barna á aldrinum 3 – 5 ára sem fá martraðir. Svefnskelfing er svefnröskun sem er frekar sjaldgæf. Barnið vaknar snögglega og grætur eða öskrar, virðist hálf ringlað og oft er erfitt að hugga það. Ekki skal rugla svefnskelfingu saman við martraðir. Einkenni geta stundum verið eins, en er ekki það sama og er algengast á aldrinum 4-12 ára.
Svefnganga barna er ekki óalgeng. Börn virðast vakandi, en eru þó sofandi og geta meitt sig. Svefnganga á sér yfirleitt stað frá 6-12 ára. Svefnskelfing og svefnganga flokkast undir svefnröskun sem heitir parasomnia. Venjulega eldist þetta af þeim, en á meðan það varir getur það truflað endurnærandi svefn.
Ónægur svefn barna getur stuðlað að offitu, því of stuttur svefn truflar jafnvægi hormóna sem stjórna matarlyst, og síðan getur ofþyngd valdið öndunarerfiðleikum, sem aftur geta haft áhrif á svefninn. Þannig myndast vítahringur. Öndunarerfiðleikar vegna vandamála með hálskirtla geta einnig truflað svefninn. Ónægur svefn veldur því að börn verða þreytt, vansæl og illa upplögð.
Meltingarvandamál hafa oft truflandi áhrif á nætursvefn. Hægðatregða, vindverkir og magakrampar eru mjög algeng orsök svefntruflana hjá börnum á öllum aldri. Asmi, hósti , eyrnavandamál o.fl. eru einnig algeng vandamál. Stundum er erfitt að átta sig á hvað veldur, meðan börnin eru ekki farin að geta tjáð sig og sagt hvað amar að. Oftast geta foreldrar gefið einhverja mynd af einkennum, sem hómópati getur síðan áttað sig á og fundið síðan einhverja lausn í samvinnu við foreldrana.
Ónógur svefn barna og unglinga – hefur neikvæð áhrif á vellíðan, námsgetu og heilsu.
Svefnþörfin er að einhverju leyti einstaklingsbundin og breytist í gegnum lífið, en góður svefn er nauðsynlegur til að takast á við viðfangsefni dagsins. Yngstu skólabörnin þurfa í kringum 9 tíma svefn, en þegar komið er á unglingsárin þá gæti svefnþörfin aukist u.þ.b. klukkustund á nóttu, vegna þess aukna álags sem fylgir gelgjuskeiðinu. Reyndin er þó sú að meiri hluti unglinga stytta svefntíma sinn í stað þess að lengja hann. Fyrir utan að sinna heimalærdómi og áhugamálum tekur sjónvarpið og internetið sífellt meiri tíma barna og unglinga.

Rannsóknir hafa sýnt að gæði og lengd nætursvefns hefur áhrif á minni og námsgetu. Í svefni fer fram upprifjun og úrvinnsla úr þeim upplýsingum sem við höfum fengið yfir daginn og þær upplýsingar festast í minninu. Svefninn er nauðsynlegur fyrir ónæmiskerfið og hann er einnig nauðsynlegur fyrir vöxt og þroska unglingsins. Á unglingsárunum eiga sér stað miklar hormónabreytingar í líkamanum, en mikill hluti þeirra hormóna framleiðist á nóttunni og því háð góðum nætursvefni. Að sofa á daginn kemur því ekki í staðinn fyrir tapaðan nætursvefn.
Þeir unglingar sem hafa góðar svefnvenjur og sofa nóg eru hamingjusamari, taka frekar ábyrgð á heilsunni, borða hollari mat, eru hæfari að takast á við streitu og ástunda frekar reglulega hreyfingu en þeir unglingar sem sofa ekki nóg.
Hér eru nokkur einföld ráð fyrir foreldra sem komið geta að notum til að hjálpa unglingum að ná betri nætursvefni.
1 Hvetjið unglinginn til að fara að sofa og vakna á svipuðum tíma á hverjum degi. Ef unglingurinn fær nægjanlegan svefn á virkum dögum þarf hann ekki að sofa lengur um helgar.
2 Áhyggjur og streita geta valdið því að erfitt er að slappa af og sofa vel. Verið í góðu sambandi og næm fyrir hvernig unglingnum líður. Það er ekki alltaf létt að fá ungling að tala um hvernig honum líður. Stundum getur hjálpað að skrifa hugsanir og tilfinningar í dagbók. Hómópatar hafa einnig oft lausnir við streitu og vanlíðan.
3 Óæskilegt er að unglingar sitji fyrir framan sjónvarpið eða tölvuna seint á kvöldin, því það örva heilann og trufla svefn. Það getur hjálpað að bjóða unglingum að taka upp sjónvarpsefni sem hann vill alls ekki missa af.
4 Dagleg hreyfing er góð bæði fyrir svefninn og heilsuna. Hvettu unglinginn til að stunda íþróttir eða daglega hreyfingu.
5 Ekki borða eða drekka mikið fyrir svefninn. Kenndu barninu frekar að slappa af með því að fá sér smávegis heitt að drekka. Heitt bað eða sturta getur einnig verið róandi.
6 Hjálpaðu unglingnum að stilla hitastigið í svefnherberginu, svo það verði hæfilega svalt. Gott er að sofa við opinn glugga og vera með dökk gluggatjöld.
7 Margir unglingar vilja vera lengur úti á kvöldin. Fylgið útivistareglum alla daga vikunnar. Æskilegt er að unglingurinn hafi tíma til að komast í ró áður en hann fer í rúmið.
8 Munið að gott fordæmi eykur áhrif góðra ráða.

Ekki má gleyma að minnast á remedíurnar sem sagt var frá í pistli F-25. Svefnvandamál. Hómópatar eru svo ávallt tilbúnir til að aðstoða við að finna út remedíur og styrkleika fyrir hvern og einn.