• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

B-6 vítamín / pýridoxín

Skrifað 2010-02-22 · Bætiefni og vítamín

 B6 – vítamín er vatnsleysanlegt vítamín 

B6 – vítamín er vatnsleysanlegt vítamín  vinnur með öðrum B-vítamínum.  Þau safnast ekki fyrir í líkamanum, heldur skiljast út úr líkamanum með þvagi og því síður hætta á eiturverkunum.  Þar sem B6-vítamín er vatnsleysanlegt vítamín, þarf að neyta þess á hverjum degi þar sem líkaminn getur ekki geymt umframmagn.  Það getur tapast við matreiðslu. 

Meginhlutverk B6 – vítamíns eru margvísleg í líkamanum.  Til dæmis tekur það þátt í fjölda efnahvarfa amínósýra, kjarnasýra og fyrir myndun adrenalíns og serótóníns.  Það er nauðsynlegt fyrir starfsemi lifrar og til þess að aðstoða líkamann við að brjóta niður fitusýrur.  Til að geta nýtt sér og geymt prótein, fitu og kolvetni sem fást úr fæðunni.  B-6 hjálpar til við að halda jafnvægi á milli natríums og kalíums í líkamanum, en þessi efni sjá meðal annars um að halda vökva líkamans í réttu horfi.  B6-vítamín aðstoðar við myndun hemóglóbíns (sem er nauðsynlegt til að flytja súrefni um líkamann)

B6 - vítamín (Pýridoxín) er nauðsynlegt  vökvajafnvægi líkamans (samhliða magnesíum).  B-6 er nauðsynlegt myndun tauga- og boðefna, það er því mikilvægt fyrir starfsemi heila og vöðva.  Líkaminn þarfnast B-6 til blóðmyndunar og til að nýta B-12 vítamín.  Það er einnig mikilvægt til framleiðslu mótefna gegn sýkingum.
 

Aðstoðar gegn síþreytu, þunglyndi, pirring, svima, ógleði, höfuðverk vegna saltnotkunar.  Dregur úr sætindalöngun.  Getur dregið úr fyrirtíðaspennu.  Krampastillandi.  Aðstoðar PMT vegna hormóna,  líkamann að nýta betur magnesíum og Zink.   Nægilegt magn af B-6 í líkamanum getur dregið úr hættu á húðsjúkdómum, getur t.d. gagnast gegn gelgjubólum. 

Þörfin fyrir B6-vítamín eykst með aukinni próteinneyslu og er ráðlögð neysla 0,015 mg fyrir hvert gramm af próteinum.  Rannsóknir benda til þess að aldraðir hafi aukna þörf fyrir B6-vítamín og að vítamínið gegni ef til vill verndandi hlutverki gagnvart hjarta- og æðasjúkdómum, því eru ráðleggingar fyrir 60 ára og eldri þær sömu og fyrir aðra fullorðna en fara ekki lækkandi með aldri eins og með flest önnur vítamín.

B6 – vítamín skortur. Einkenni um skort eru m.a. ofþreyta, sprungur í munnvikjum, húð flagnar kringum nef og augu.  Gætu líst sér sem  krampakennd flog,  geðdeyfð, uppköst, húðbólgur, taugabólgur og nýrnasteinar, truflun á starfsemi miðtaugakerfis, fjöltaugbólga, ónóg blóðmyndun, blóðskortur, tannskemmdir og beináta. 

Skortur á serótóníni er oft tengdur þunglyndi og örum skapbreytingum. Tíðaþrautir geta t.d. orsakast af slíkum skorti, enda sýna margar rannsóknir fram á gagnsemi B-6 vítamíns gegn tíðaþrautum.  Þungaðar konur eiga á hættu að þjást af pýridoxín skorti, en vítamínið er nauðsynlegt fóstrinu.  

Alvarlegur skortur eða hörgulsjúkdómur er sjaldgæfur en einkenni slíks skorts eru flogakrampar hjá börnum ásamt þyngdartapi, meltingartruflunum og óróleika en hjá fullorðnum sjást breytingar á heilalínuritum, geðtruflanir og húðbreytingar.

Misnotkun áfengis getur leitt til skorts í pýridoxíni. Ýmis lyf geta valdið skorti á pýridoxín t.d. ísóníazíð (berklalyf), hýdralazín,  getnaðarvarnartöflur, penicillamín, neómycín og rífampicín.  Pýridoxín minnkar virkni L-dópa í Parkinson´s meðferð.  Þannig að Parkinson´s sjúklingar sem nota L-dópa í lyfjameðferð ættu ekki að taka inn pýridoxín.

Fæðutegundir B6-vítamín er vatnsleysanlegt vítamín en það þýðir að þess þarf að neyta á hverjum degi þar sem líkaminn getur ekki geymt umframmagn.  Það getur tapast við matreiðslu.  Það virðist virka betur með öðrum B-vítamínum og er stundum notað með sinki og magnesíum, sem eru náttúrulegir félagar þess í ýmissi starfsemi líkamans. 

Auðugt í:  ölgeri, hveitikími, soya, lifur, nýrum, kjöti, fiski, eggjum, avacado, hýðishrísgrjónum, heilhveiti.  Heilhveiti, rúgur, hirsi og annað heilt korn eru góðir B6-vítamíngjafar. Bananar, kartöflur, gulrætur og baunir.  Nokkuð er af vítamíninu í kjöti og fiski.
Með neyslu á fjölbreyttu fæði á að vera hægt að uppfylla þörfina fyrir B6-vítamín. Ef tekin eru inn fæðubótarefni sem innihalda B6-vítamín er mikilvægt að gæta að því að taka ekki of mikið.

Aukaverkanir  Aukaverkanir eru óþekktar nema um ofskömmtun sé að ræða.  Fram geta komið taugaskemmdir sem lýsa sér í dofa í fótum og höndum.  Einkennin ganga þó yfirleitt til baka ef dregið er úr inntöku,  en varanlegar taugaskemmdir eftir stóra skammta eru þó vel þekktar.

Ráðlagðir dagsskammtar eru:

• ungbörn að hálfs árs aldri:  0,3 mg
• ungbörn 6-11 mánaða  0,4 mg
• Börn 12-23 mánaða  0,8 mg
• Börn 2-5 ára:    0,7 mg
• Börn 6-9 ára:    1,0 mg 
• Stúlkur  10-13 ára  1,1 mg
• Konur  14-30 ára  1,3 mg
• Konur 31 árs og eldri  1,2 mg
• Drengir 10-13 ára  1,3 mg
• Karlar 14 ára og eldri  1,6 mg
• Konur á meðgöngu  1,5 mg
• Kona með barn á brjósti 1,6 mg

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).