B-12 vítamín / Kóbalamín
B12 – vítamín er vatnsleysanlegt vítamín. Það gengur einnig undir nafninu kóbalamín. Af því eru til ýmis afbrigði, en stöðugasta formið er sýanókóbalamín sem notað er í B-12 bætiefni. Það er eina vítamínið sem í miðri sameind inniheldur málmjónin kóbalt, en það er nauðsynlegt líkamanum. C-vítamín, B-6 og önnur B-vítamín auka frásog þess, einnig kalíum og natríum.
Meginhlutverk B12 – vítamíns. Frásog á B12-vítamíni er mjög flókið ferli sem krefst meðal annars sérstaks próteins sem framleitt er í maga.
Kóbalamín verður eingöngu til í sérstökum örverum sem eru að finna í meltingarvegi og vatni
Vitað er að kóbalamín tekur þátt í einu efnahvarfi í myndun erfðaefnisins (DNA). Svo blóðmyndun sé eðlileg er mikilvægt að nægjanlegt magn kóbalamíns, fólínsýra og járns sé fyrir hendi.
B12 - vítamín (Kóbalamín, Cyanocobalamine, Sýanókóbalamín) er nauðsynlegt fyrir heilbrigðan vöxt (frumuskiptingu), kjarnsýruhvörf og heilbrigði tauga, húðar og slímhúðar. Það einnig mikilvægt fyrir eðlilega blóðmyndun, við myndun rauðra blóðkorna sem sjá um að flytja súrefni um líkamann. B-12 er nauðsynlegt fyrir efnaskipti prótína, og að vinna orku úr fitu og kolvetnum. Það er nauðsynlegt fyrir allan frumuvöxt í meltingarfærum, beinmerg og taugavefjum. Nauðsynlegt fyrir virkni fólasíns (sem er annað B-vítamín)
B12 – vítamín skortur er algengari meðal eldra fólks en þeirra sem yngri eru. Algeng orsök B12-vítamínskorts er skert upptaka í meltingarvegi vegna sjúkdóma í maga eða þörmum. En ástæður fyrir B12 skorti geta verið af ýmsum toga. Þar má nefna B12 skort í fæðu viðkomandi einstaklings því vítamín finnst aðallega í kjöti, eggjum og mjólkurafurðum og er því hætta á skorti hjá þeim grænmetisætum sem sneiða hjá öllum dýraafurðum. Einnig geta risaskammtar af C-vítamíni valdið skorti á kóbalamíni. Sé skorturinn alvarlegur koma fram áhrif á ónæmiskerfið þannig að ónæmisviðbrögð skerðast
Truflanir í blóðmyndun geta þó einnig stafað af fólínsýruskorti og því þýðingarmikið að greina orsökina. Stafi blóðleysi af völdum kóbalamíns en er meðhöndlað sem um fólínsýruskort væri að ræða gætu orðið varanlegar taugaskemmdir vegna áframhaldandi skorts á kóbalamíninu. Langvarandi skortur á B12 vítamíni getur valdið taugarýrnun í mænu, heila, sjóntaug og taugum í útlimum
Þar sem B-12 er mikilvægt fyrir frumuskiptingu gætir skorts fyrst þar sem frumuskipting er örust. Frumuskipting er til dæmis mjög hröð í þekjuvef. Því verður þar fljólega vart við skortinn með særindum á tungu, magaslímhúð rýrnar, sem aftur leiðir til niðurgangs. En niðurgangur leiðir aftur til frekari kóbalamínskorts. Skortur veldur blóðleysi. Fækkun rauðra blóðkorna kemur fram í aukinni þreytu og við fækkun hvítra blóðkorna eykst sýkingarhætta. Einnig getur skortur á blóðflögum dregið úr storknun blóðs og orsakað tíðari marbletti og þrálátari blæðingar úr sárum. Alvarlegur skortur getur valdið lömun og banvænt blóðleysi (af stórkornóttri gerð). Illkynja blóðleysi (e. pernicious anemia) stafar af því að líkaminn getur ekki nýtt sér B12 vítamín úr fæðunni. Undir eðlilegum kringumstæðum er innri þáttur myndaður af frumum í slímhúð magans. Ýmislegt getur valdið því að myndun hans eigi sér ekki stað. Til dæmis má nefna magabólgur og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Crohns-sjúkdóminn sem valda því að mótefnin ráðast á prótínið sjálft eða frumurnar sem mynda það. Einnig má nefna að brottnám maga getur haft í för með sér illkynja blóðleysi. Til er sjaldgæfur meðfæddur sjúkdómur sem hefur í för með sér að viðkomandi myndar ekki þennan innri þátt sem þarf fyrir upptöku B12. Sjúkdómurinn stafar af víkjandi gölluðu geni og þarf barn því að erfa það frá báðum foreldrum til þess að sjúkdómurinn komi fram.
Skortur á kóbalamíni getur líka valdið hrörnun taugafrumna, skertri hreyfigetu útlima, truflaðri titrings- og stöðuskinjun, minnistapi, sjóntruflunum og ruglaðri hugsun, ofskynjanir og rangskynjanir. Einnig getur skortur einkennst af mæði og náladofa í útlimum.
Meðferð við skorti á B12-vítamíni fer að sjálfsögðu eftir því hver orsökin er. Ef orsökina er að finna í mataræði viðkomandi má lagfæra ástandið með því að breyta því eða taka fjölvítamíntöflur. En ef um tímabundið illkynja blóðleysi að ræða er hægt að gefa B12 sprautur þar til ástandið hefur jafnað sig. En ef um varanlegt illkynja blóðleysi er að ræða þurfa sjúklingar að fá B12 sprautur ævilangt.
Fæðutegundir
Þó B12-vítamín sé vatnsleysanlegt getur líkaminn samt geymt einhvern forða af því. Aftur á móti getur Rúmlega helmingur kóbalamíns í fæðunni farið forgörðum við suðu.
Þar sem B12 vítamín finnst nær eingöngu í matvörum úr dýraríkinu er mikilvægt fyrir þá sem lifa á jurtafæði eingöngu að fá efnið í formi fæðubótarefnis. Móðurmjólk kvenna, sem borða eingöngu jurtafæði, getur orðið afar snauð af þessu vítamíni þannig að skortur getur komið fram hjá ungbarninu. Sú jurt sem er hvað auðugust af B-12 er spírulina.
Helstu fæðutegundir með kóbbalamín eru lifur, nýru, magurt kjöt, kjúklingur, fiskur, og egg. Einnig úr laxi, þorski, síld, ufsa, mjólk, ostum. B12-vítamínþörfin er mjög lítil og því ætti að vera auðvelt að fá ráðlagðan dagskammt.
Aukaverkanir
Stórir skammtar virðast hvorki valda eitrun né öðrum skaða.
En tóbak, áfengi, kaffi og ýmis lyf draga úr frásogi, sem og skortur á járni og B6. Frásog þess virðist jafnframt minnka með aldrinum. Drykkjusjúklingar er annar hópur sem er í hættu á að líða skort á B12 vítamíni.
Ýmis lyf geta stuðlað að myndun illkynja blóðleysis eins og til dæmis Neómýcin, getnaðarvarnartöflur, asetýlsalicýlsýra og afleiður hennar, krampastillandi lyf sem fenóbarbital, fenýtóín og primidón, Matýldópar, kólesteróllækkandi lyf svo sem kólestýramín og clófibrat.
Ráðlagðir dagsskammtar eru:
• ungbörn að hálfs árs aldri: 0,3 mcg
• Börn 6-11 mánaða: 0,5 mcg
• Börn 12-23 mánaða 0,6 mcg
• Börn 2-5 ára: 0,8 mcg
• Börn 6-9 ára: 1,3 mcg
• Börn 10 ára og eldri: 2,0 mcg
• Fullorðnir: 2,0 mcg
• konur á meðgöngu: 2,0 mcg
• kona með barn á brjósti: 2,6 mcg