B-3 vítamín / níasín
Vítamín B3, sem einnig er þekkt sem níasín er vatnsleysanlegt eins og önnur B-vítamín. Það er raunverulega samheiti yfir 2 efnasambönd, nikótínamíð og nikótínsýru og bæði þessi efni er að finna í fæðu. Líkaminn getur myndað nikótínsýru úr amínósýrunni tryptófan. Þrátt fyrir nöfnin eiga þessi efni ekkert skylt við nikótin í tóbaki.
Meginhlutverk B3 – vítamíns er hluti ákveðinna hjálparhvata sem taka þátt í efnahvörfum glúkósa, amínósýra og fitu og hjálpar því við myndun orku úr fæðunni sem borðuð er. Stuðlar að sýruframleiðslu í meltingarkerfinu og hjálpar þannig til við meltinguna. Það er einnig áhrifaríkt andoxunarefni.
Það styður við taugakerfið.
B3 - vítamín (níasín) er nauðsynlegt blóðrásinni, minnkar kólesteról í blóði, er æðavíkkandi og lækkar því blóðþrýsting. Það gerir húðinni gott, eykur þol hennar gegn sól, vinnur gegn sárum í munni og andremmu
B3 vítamín er nauðsynlegt við myndun kynhormóna (estrógens, prógesteróns og testósteróns). Það getur reynst vel í meðferð gegn flogaveiki sé það tekið inn með flogaveikilyfjum. B3 vítamín hefur hjálpað þeim sem stríða við geðklofa og önnur geðræn vandamál.
Þekktast var B3 fyrir að lækna húðangur (pellagra), sem orsakast af skorti þessa vítamíns. Staðfest hefur verið að stórir skammtar af B-3 lækki kólesteról en auki magn HDL kólesteróls (góðs kólesteróls) og séu þannig vörn gegn hjarta- og æðasjúkdómum.
B3 – vítamín skortur
Skortur þessa vítamíns er algengur hjá áfengissjúklingum með einkenni sem húðvandamál, ljósfælni, svefnleysi, þrýstingsverkir, þreyta, anorexia og þunglyndi.
Skortur á níasíni veldur hörgulsjúkdómnum pellagra sem lýsir sér sem húðbólga (húðangur), sár í munni, orkuleysi, þunglyndi, sljóleika, höfuðverk, svefnleysi, húðvandamálum, veikleika í vöðvum, sársauka í útlimum og lágum blóðsykri. Einnig listaleysi, niðurgangur, meltingartruflanir, andleg vanlíðan og geðræn einkenni sem að lokum geta leitt til sturlunar. Skortur á níasíni tengist helst fæði þar sem bæði níasín og prótein eru af skornum skammti og hefur pellagra verið landlægur sjúkdómur á svæðum þar sem maís eða aðrar tryptófansnauðar korntegundir eru uppistaðan í fæði fólks.
Fæðutegundir
Níasín er vatnsleysanlegt vítamín en það þýðir að þess þarf að neyta á hverjum degi þar sem líkaminn getur ekki geymt umframmagn níasíns. Níasín þolir hita, ljós, sýru og basa og rýrnar því lítið við suðu eða aðra fæðuvinnslu. Níasínþörfinni á að vera hægt að fullnægja með því að borða fjölbreyttan mat. Ef tekin eru fæðubótarefni, sem innihalda níasín, er rétt að hafa í huga að taka ekki inn of mikið magn.
Flestar dýraafurðir eru auðugar af tryptófani og eykur það á níasíngildi þeirra. T.d. er mikið af tryptófani í mjólk og eggjum. Auðugustu uppsprettur vítamíns B-3 eru ölger, magurt kjöt, úr nautalifur, fiskur og kjúklingur, einnig lifur, nýru, hveitikím, heilhveiti, hrísgrjónahýði, sólblómafræ og jarðhnetur, döðlur, brokkólí, gulrótum, osti, kornhveiti, möndlum, döðlum, eggjum, fiski, mjólk, salthnetum, svínakjöti, kartöflum, sojabaunum, tómötum og heilkornavörum. Jurtir sem innihalda B vítamín eru meðal annars alfa alfa spírur, burdock root, kattarmynta, cayenne, kamilla, haugarfi, augnfró, fennelfræ, lakkrísrót, netlur, hafrastrá, steinselja og piparmynta.
Líkaminn getur unnið níasín úr amínósýrunni tryptofan, en til þess þarf nægilegt magn vítamína B-1, B-2 og B-6 að vera til staðar. Önnur B-vítamín, C-vítamín og fosfór stuðla að frásogi níasíns, en kaffi, áfengi, sykur og sterkja draga úr frásogi þess.
Aukaverkanir
Engar rannsóknir benda til neikvæðra áhrifa af neyslu níasíns sem er í fæðu frá náttúrunnar hendi. Eiturvirkni er afar sjaldgæf, gæti komið fram eftir 100 mg daglega inntöku. Of stórir skammtar geta valdið nýrnaskaða
Nikótínsýra (níasín) er B-Vítamín(B3) sem vaxtarræktarfólk hefur notað í mörg ár til að auka vöðvapump áður en það tekur þátt í keppnum. Nikótínsýran eykur blóðflæði m.a. undir húðinni, aukaverkanir geta verið roði, hiti í húð og kláði. Þeir sem finna fyrir þessum aukaverkunum losna oftast við þau á 30mín. Fyrir þá sem þykja þessi aukaáhrif óþægileg þá geta þeir tekið skammtana með máltíðum, þetta hægir á frásogi.
Ráðlagðir dagsskammtar eru:
• Börn 6-11 mánaða: 5 mg
• Börn 12-23 mánaða 7 mg
• Börn 2-5 ára: 9 mg
• Börn 6-9 ára: 12 mg
• Stúlkur 10-13 ára: 14 mg
• Konur 14-60 ára 15 mg
• Konur 75 ára og eldri: 13 mg
• Drengir 10-13 ára 16 mg
• Karlar 14-30 ára 20 mg
• Karlar 31-60 ára 19 mg
• Karlar 61-74 ára 17 mg
• Karlar 75 ára og eldri 15 mg
• Konur á meðgöngu 17 mg
• Með barn á brjósti 20 mg