• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

B-7 vítamín / Biotin

Skrifað 2010-02-24 · Bætiefni og vítamín

  B7 vítamín / Bíótín – vítamín er vatnsleysanlegt vítamín.

 Bíótín – vítamín er vatnsleysanlegt vítamín.  Bíótín hefur verið kallað ýmsum nöfnum s.s. B7- vítamín, H- vítamín, kóensím R, bios, bios II og Protective factor X. Ástæðan fyrir öllum þessum nöfnum er sú að efnasambandið var einangrað í mismunandi löndum á tiltölulega skömmum tíma og hver hópur vísindamanna gaf efninu sitt heiti.  Bíótín er vatnsleysanlegt eins og önnur B vítamín.. 

Meginhlutverk Bíótíns.   Biotin er nauðsynlegt fyrir myndun á fitusýrum og glúkósa, sem eru nauðsynlegar fyrir framleiðslu á orku. Það hjálpar líka við umbrot kolvetna, fitu og próteina.  Við fáum það úr fæðunni, auk þess sem það myndast í þörmunum þegar gerlagróður meltingarfæranna er heilbrigður

Bíótín (B7- vítamín) er nauðsynlegt fyrir taugakerfið.  Bíótín hefur áhrif á heilbrigði hárs, hárvöxt og hárlos. Það getur dregið úr gránun hárs og skallamyndun.  Einnig gæti styrkt stökkar neglur.    Gæti hjálpað við lystarleysi, síþreytu, ógleði, vöðvasleni, feitri húð, hárlosi, svefnleysi og  þunglyndi. 

Bíótín skortur

Stöðug neysla bíótíns er mikilvæg þar sem það er vatnsleysanlegt efni og safnast ekki upp í líkamanum. Bíótín er mjög algengt í fæðu og auk þess myndast það í meltingarfærum.

Biotin skortur er ekki algengur, nema ef þú borða of mikið af hrárri eggjahvítu, sem inniheldur prótein sem hindrar frásog  Bíótíns.  En skortseinkenni geta koma fram í hárlosi, flösu, húðexemi, óreglulegri starfsemi fitukirtla, geðdeyfð, vöðvaverkjum, þreytu og lystarleysi.  Biotin skortur getur valdið, háu kólesteróli og hjartasjúkdómum

Erfðafræðileg röskun sem skortur á bíótíni hjá ungbarni kemur fram sem truflun á starfsemi fitukirtla og getur valdið húðbólgu.

Skurðaðgerðir á meltingarvegi, eða óhófleg áfengisneysla getur aukið þörf einstaklings á Bíótíni.

Fæðutegundir

Hrá eggjarauða er ein af okkar bestu bíótíngjöfum og er skaðlaus varðandi Cholesterol í líkamanum.  En aftur á móti geta soðnar eggjarauður haft áhrif á cholesterol, því við hitun oxast efni og umbreytast í cholesterol sem líkaminn tekur á móti.  Prótein í eggjahvítu binst aftur á móti bíótíni svo það nýtist ekki líkamanum.

Góð uppspretta Bíótíns er í  ölgeri, innmat svo sem nýrum og lifur, kjöti, blómkáli, laxi, bönunum og ávöxtum, gulrótum, hráum eggjarauðum, sardínum, grænmeti og sveppum, haframjöli, heilhveiti og sojabaunum, mjólk og hýðishrísgrjón.

Bíótín vinnur með B2, B6, B3 og A-vítamíni og er því yfirleitt tekið inn í fjölvítamín- og blönduðum B-vítamíntöflum.

Súlfalyf, estrógen, áfengi, suða, og mikil neysla hrárrar eggjahvítu draga úr frásogi bíótíns.

Aukaverkanir virðast ekki þekktar, en fólk með sögu um krampa ættu ekki að nota Biotin nema undir eftirliti lækna eða heilsusérfræðinga.

Ráðlagðir dagsskammtar eru:

• Börn allt að 6 mánaða 10 mcg
• Börn 6-12 mánaða  15 mcg
• Börn 1-3 ára   20 mcg
• Börn 4-6 ára   25 mcg
• Börn 7-10 ára   30 mcg
• Börn 11-14 ára    30-100 mcg
• 14 ára og eldri    30-100 mcg

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).