• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

B9 vítamín / Fólínsýra

Skrifað 2010-02-25 · Bætiefni og vítamín

Fólínsýra er vatnsleysanlegt vítamín sem tilheyrir hópi B-vítamína og er einnig þekkt sem fólasín

B9-vítamín / Fólínsýra er vatnsleysanlegt vítamín sem tilheyrir hópi B-vítamína og er einnig þekkt sem fólasín. Fólínsýra er raunverulega hópur efnasambanda og er nafnið dregið af latneska orðinu “folium” sem merkir lauf.. Fólinsýra, fólat og fólasín eru heiti á efninu í náttúrulegum myndum þess. 

Meginhlutverk Fólínsýru er fyrir alla frumuskiptingu. Í líkamanum er fólínsýru breytt í tetrahýdrófólínsýru, en hún er mikilvæg við myndun amínósýra og kjarnsýra (DNA sem halda saman genaupplýsingum líkamans og RNA sem eru nauðsynlegar fyrir nýmyndun próteins). 

Jafnframt því sem hún gegnir mikilvægu hlutverki við endurmyndun og vöxt frumna.  Við að mynda rauð og hvít blóðkorn,  blóðfrumur í beinberg,

frumur í slímhúð og aðrar frumur sem skipta sér ört.  Þetta er ástæðan fyrir því að fólínsýra er svo mikilvæg á fósturskeiði þegar frumuskipting er hvað örust. Einnig er Fólínsýra talin varna því að gallar myndist í taugakerfi fósturs

Fólínsýra gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi mótefnakerfis líkamans. Örvar framleiðslu kjarnsýra, prótína og vinnur með B12 við myndun heilbrigðra blóðfrumna.  Þetta vítamín hindrar ákveðnar gerðir blóðleysis.

B9 - vítamín (Fólínsýra, Fólasín, Folic acid) er nauðsynleg  fyrir taugakerfið og blóðstreymi, hemaglóbin (rauðu blóðkornin),  lágar magasýrur, getur haft áhrif á asma og litla matarlist.  Getur hjálpað vegna síþreytu, svefnleysi, þunglyndi, andlegu ójafnvægi (sérstaklega hjá öldruðum),  ef um er að ræða hægan  bata og ef sár gróa hægt. Folínsýra virðist minnka líkur á hjartaslagi og dregið úr líkum á því að krabbamein myndist.  Getur hjálpað vegna fótapirrings og við gigt.

Fólínsýra stuðlar að heilbrigði húðar, gæti aðstoðað sem vörn gegn matareitrun og sníkjudýrum í þörmum, ómissandi til nýtingar sykurs og amínósýra, eykur matarlyst og spornar við blóðleysi.

Æskilegt væri ef konur á barnseignaaldri að taka fólínsýru þegar þungun er áformuð, sem sagt fyrir getnað og svo fyrstu 12 vikur á meðgöngunni.  Fólínsýra minnka líkur á klofnum hrygg og fleiri fósturgöllum.  Einnig eykur hún mjólkurmyndun.

Mögulega samband á milli minnkandi heyrnar, (sérstaklega hjá eldra fólki) og skorts á fólínsýru og vítamíni B-12 sem hafa áhrif á starfsemi tauga og blóðstreymi í eyrum og umhverfis þau.

Fólínsýruskortur.


Skortur á fólínsýru er útbreiddasti vítamínskorturinn, einkum meðal fátækra þjóða. Ef neytt er of lítils af fólínsýru þá getur amínósýran hækkað í blóði, en há gildi hennar valda aukinni áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum.
Skortur dregur úr eðlilegum vexti og getur valdið blóðskorti og öðrum truflunum á starfsemi blóðs. 

Skortur getur valdið truflun á starfsemi meltingarfæra, niðurgangur og vanhæfni við fæðuuppsog, skerta matarlyst, valdið eymslum í tungu, orsakað höfuðverk minnisleysi og sljóleika. Skortur getur valdið síþreytu, fölva, svefnleysi, þunglyndi, andlegu ójafnvægi (sérstaklega hjá öldruðum), hægur bati, sár gróa hægt og taugafræðileg vandamál.  Streita getur verið meðvirkandi orsakavaldur skorts og fólk sem er undir stöðugu  og miklu álagi er hætt við fólínsýruskorti.


Þungaðar konur ættu ávallt að ganga úr skugga um að þær fái nægilegt
magn af fólínsýru, þ.e. daglega 400 mcg, því skortur á fólínsýru getur
valdið galla í taugakerfi fósturs.

Talið er að fólínskortur geti valdið skemmdum í kjarnsýrum sem geta leitt til krabbameins.  Möguleg tenging við minnkandi heyrn.  Fólínsýra er notuð við blóðleysi af völdum fólínsýruskorts.  Einnig sem fyrirbyggjandi meðferð á meðgöngu.

Hún er notuð samhliða lyfjum sem draga úr myndun á fólínsýru í frumum, eins og t.d. metótrexati.

Fæðutegundir

Geymsluþol fólinsýru er lítið og innihald í matvælum minnkar hratt við geymslu. Fólínsýra þolir illa hita og skemmist við suðu, einnig er hún viðkvæm fyrir sólarljósi. Fólínsýrubirgðir endast aðeins í líkamanum í nokkra mánuði.

Mest er af fólati í grænmeti einkum grænu grænmeti, spergilkáli, spínati, ávöxtum og innmat, kjöti, eggjum, fiski, ostrum og túnfiski. Ölgeri, soya, baunum,  hnetum, heilhveiti, heilkorni, hveitiklíði, ostum, og mjólk. 

Áfengi og ýmis lyf svo sem súlfalyf, sýrubindandi lyf, ýmis sýklalyf, ýmis flogaveikilyf, aspirín, metótrexat,  getnaðarvarnarpillan, svo og algeng verkja- og sýklalyf eru gagnvirk fólínsýru. 

Aukaverkanir

Engar vísbendingar eru um neikvæð áhrif af mikilli neyslu fólats úr náttúrlegri fæðu.  Stórir skammtar af fólínsýru (úr fæðubótaefnum eða vítamínbættum matvælum) geta þó verið varhugaverðir þar sem þeir geta dulið einkenni B12-vítamínsskorts og einnig komið í veg fyrir nýtingu sinks úr fæðu.
Einstaka fólk getur fengið húðofnæmi ef þess er neytt í óhófi.

Ráðlagðir dagsskammtar eru mældir í míkrógrömmum (mcg):

Ungbörn að hálfs árs aldri:  35 mcg
Börn 6-12 mánaða:   50 mcg
Börn 1-3 ára:   75 mcg
Börn 4-6 ára:   100 mcg
Börn 7-10 ára:   150 mcg
Konur 11-14 ára:   240 mcg
Konur 15 ára og eldri:  300 mcg
Karlar 11-14 ára:   240 mcg
Karlar 15 ára og eldri:  300 mcg
Konur á meðgöngu:   400 mcg
Konur með barn á brjósti:  400 mcg


 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).